Selur bílinn sinn til að borga ríkinu fyrir eigin brottflutning

Amir giftist íslenskum unnusta sínum á dögunum. Nú þurfa þeir að selja bílinn sinn til þess að greiða íslenskum yfir­völdum kostnaðinn við að flytja hann nauðugan úr landi.

Fluttur úr landi
Fluttur úr landi Amir Shokrgozar var fluttur á brott til Póllands og er nú á leið til Ítalíu. Mynd: Andri Snær Magnason

Amir Shokrgozar, samkyn­hneigður flótta­maður frá Íran, hefur auglýst bílinn sinn til sölu til þess að geta borgað íslenskum yfir­völdum reikning vegna flugfars lögreglu­manna sem fóru með hann úr landi.

Amir bjó í tvö ár á Íslandi og hafði verið að læra íslensku, átt íslenskan unnusta og verið sjálfboða­liði hjá Samtökunum ’78 og Rauða krossinum, áður en honum var vísað úr landi í febrúar. 

Amir hugði á endurkomu til Íslands, en verður að greiða skuld sína til íslenskra yfirvalda eigi það að ganga eftir. Hann giftist íslenskum unnusta sínum á Sikiley fyrr í mánuðinum.

Skulda­yf­ir­lýs­ingAmir ber að greiða rík­inu and­virði dag­pen­inga og ferða­kostn­aðar lög­reglu­þjón­anna fimm sem fylgdu honum úr landi.

Í skulda­yfirlýsingu vegna kostnaðarins við brott­vísun hans, sem hann birtir á Facebook, kemur fram að hann eigi að greiða 427.907 krónur fyrir fimm lögreglu­þjóna sem fylgdu honum úr landi. Þá skuldar hann íslenska ríkinu dagpeninga til handa lögreglu­þjónunum, samtals 120.422 krónur. Samtals er skuldin, að meðtöldu hans eigin flugfari við brott­vísunina, 634.944 krónur.

Samkvæmt útlendinga­lögum er ríkinu heimilt að rukka hælis­umsækjendur, sem ekki fá samþykkta beiðni um hæli, fyrir brott­flutning þeirra úr landi.

„Útlend­ingur sem færður er úr landi samkvæmt lögum þessum skal greiða kostnað af brottför sinni. Útlend­ingurinn skal einnig greiða kostnað af gæslu þegar hennar er þörf vegna þess að hann fer ekki úr landi af sjálfs­dáðum. Krafan er aðfararhæf og hún getur auk þess verið grund­völlur frávísunar við síðari komu til landsins. Lögreglunni er heimilt að leggja hald á farseðla sem finnast í fórum útlend­ingsins til notkunar við brottför. Sama gildir um fjármuni til greiðslu á kröfu vegna kostnaðar við brottför og gæslu samkvæmt ákvæði þessu.“ 

„Fyrir íslenskum yfir­völdum er ég einskis virði“

Amir segist í samtali við Stundina þakka Íslendingum fyrir stuðning sem hann hefur fengið, en hann kveðst hafa áhyggjur af framferði íslenskra yfirvalda. „Mann­réttindi útlendinga eru ekki virt,“ segir hann. „Ég er utan­aðkomandi og fyrir íslenskum yfir­völdum er ég einskis virði.“

Amir flúði heima­landið vegna kynhneigðar sinnar, en samkyn­hneigðir geta átt von á refsingum í Íran. Hann segir yfirvöld hér á landi hafa staðið í vegi fyrir því að hann gæti gifst íslenskum unnusta sínum. „Við giftum okkur á Ítalíu vegna þess að íslensk yfirvöld synjuðu okkur um heimild til að gifta okkur hér. Við viljum selja bílinn okkar til þess að láta íslensk yfirvöld fá peninginn. Ég kem aftur til Íslands, en svo lengi sem ég borga ekki má ég ekki koma aftur.“

Bíllinn, sem er Toyota Avensis frá árinu 2004, er til sölu á 400 þúsund krónur. „Ég vona að bíllinn seljist eins fljótt og mögulegt er til þess að ég geti borgað íslenskum yfir­völdum og snúið aftur eins fljótt og hægt er,“ segir Amir.

Amir er ekki eini innflytjandinn sem íslensk yfirvöld rukka fyrir að flytja úr landi. Eugene Imotu fær ekki að koma aftur til Íslands fyrr en hann hefur borgað fyrir brott­flutning sinn úr landi. Hann var hand­tekinn í sumar, aðskilinn fjöl­skyldu sinni og fluttur úr landi, eftir að hafa búið á Íslandi í þrjú ár. Stuttu síðar fengu börnin hans þrjú dvalar­leyfi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár