Trump mælir ekki með lögfræðiþjónustu Cohens

Bandaríkja­forseti segir á Twitter-reikningi sínum að ef fólk sé að leita sér að lögfræði­þjónustu þá skuli það ekki kaupa þjónustu Michael Cohens. Hann mærir aftur á móti Paul Mana­fort í annarri Twitter-færslu í dag.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna. Mynd: EPA

Donald Trump forseti Banda­ríkjanna hefur brugðist við atburðum síðustu daga en á Twitter-síðu sinni í dag segir hann að ef fólk ætli sér að leita að lögfræði­þjónustu ætti það ekki að sækja hana til Michael Cohens.

Cohen er fyrr­verandi lögfræðingur Trumps en í gær ját­aði hann á sig um­fangs­­mik­il fjár- og skatt­svik. Hann hef­ur und­an­farið ver­ið til rann­­sókn­ar vegna mög­u­­legra skatts­vika og fleiri svika við fjár­­­mála­­stofn­an­ir, og hefur sekt hans nú verið sönnuð og við­ur­kennd.

Tengd­ist hún meðal ann­ars 20 millj­óna Banda­ríkja­dala lán­veit­ingum til fjöl­skyldu­rekst­urs hans, á sviði leigu­bíla­starf­sem­i.

Hann sagð­ist enn fremur hafa greitt tveim­ur kon­um að beiðni Trumps Banda­ríkja­for­seta, til að tryggja að þær myndu ekki tala um sam­­band sitt við for­­set­ann.

Cohen sagði að greiðsl­urn­ar hefðu átt að hafa áhrif á for­­seta­­kosn­­ing­­arn­ar 2016. Þetta er brot á lögum um fjár­mögnun kosn­inga­bar­áttu, og segir á vef CNN að margir telji Trump sjálfan nú vera í vand­ræð­um. Ekki eru öll kurl komin til grafar enn, hvað þetta varð­ar, en Trump hefur enn ekki tjáð sig um þessi mál.

Ann­arri kon­unni greiddi Cohen 150 þús­und Banda­ríkja­dali en hinni, klám­mynda­leikkon­unni Stor­my Dani­els, greiddi hann 130 þús­und Banda­ríkja­dali. Var það gert til að Dani­els þegði um sam­­band henn­ar og Trump sem varði í stutt­an tíma, á meðan hann var kvænt Mel­aniu Trump, eig­in­konu sinni og for­seta­frú.

Dani­els steig fram fyrr á árinu og sagði að sér hefði verið hótað ef hún myndi tjá sig um sam­bandið við for­set­ann, en hún gerði það samt, og leiddi það meðal ann­ars til þess að rann­sókn hófst á Cohen. Var hús­leit fram­kvæmd á skrif­stofu hans í apríl og hefur rann­sókn staðið yfir síð­an.

Kennir í brjósti um Manafort

Trump virðist hafa meiri samúð með Paul Mana­fort, fyrr­verandi kosninga­stjóra sínum, en forsetinn tjáir sig um skattsvik hans á Twitter í dag.

Þá segir hann að hann kenni í brjósti um Manafort og fjöl­skyldu hans. Að „réttlætið“ hafi tekið 12 ára gamalt mál og lagt gríðarlegt álag á manninn. Hann hafi þó ekki „brotnað“ á sama hátt og fyrr­nefndur Cohen. Trump segist bera mikla virðingu fyrir slíkum hugrökkum manni.

Paul Mana­fort var í gær sak­­felld­ur fyr­ir skattsvik, banka­­svik og fyr­ir að hafa ekki greint frá inn­i­­stæðum leyni­legra félaga í skatta­skjól­u­m.

Fjöl­miðlar í Banda­ríkj­unum túlka dóminn sem sig­ur fyr­ir sér­­stak­an sak­­sókn­­ara, Robert S. Mu­ell­er, og starfs­­menn hans.

Þeir ákærðu Mana­­fort fyr­ir að fela millj­­ón­ir Banda­­ríkja­dala á af­l­ands­­reikn­ing­um til þess að forð­ast skatta og að hafa logið ít­rekað til þess að geta fengið 20 millj­­ón­ir doll­­ara að láni hjá fjár­­­mála­­stofn­un­­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár