Fögr loptsjón og vígahnöttr

Illugi Jök­uls­son fann „víga­hnött“ í Þjóðólfi fyrir 151 ári

Víga­hnöttur var á ferð­inni yfir land­inu síð­ast­liðna nótt og sást víða að. Mörgum þótti greini­lega orðið „víga­hnöttur“ vera nokkuð fram­and­legt yfir það sem yfir­leitt er ein­fald­lega kall­aður loft­steinn, en sann­leik­ur­inn er sá að þetta orð er gam­al­kunn­ugt.

Af handa­hófi birti ég hér frétt úr Þjóðólfi 27. nóv­em­ber 1866, þar sem Páll Melsteð segir frá einu miklu loft­steina­regni sem þá hafði greini­lega átt sér stað tveim vikum fyrr.

„Að kvöldi 13. þessa mán­aðar sást hér fögr lopt­sjón og vil ég með nokkrum orðum geta hennar hér og síðan leiða athygli manna lítið eitt að því efni.

Þetta sama kveld var veðr bjart í lopti, en ský eða þoku­bakkar niðr við fjöll og sjón­deil­rdar­hring, frost nokk­urt og föl á jörðu. Nætr­verðir bæar­ins komu á strætin kl. 10 um kveldið og tóku þegar eptir því, að stjörnv­hröp í frekara lagi sáust um austr­loptið; aðrir menn sátu inni og vissu svo eigi hvað úti gjörð­ist.

Þessi stjörnu­hröp fóru alltaf vaxaudi, og þegar kom fram um 11. stund voru þau mörg á lopti í einu, ofar og neðar í lopti og til beggja hliða; þá urðu nokkrir aðrir menn hér í bænum þessa varir, og horfðu á um stund; hér um bil kl. 12 stóð þetta sem hæzt, en síðan fór það heldr mínk­andi, og kl. 1 fór veðr að þykkna; þó sáu nætr­verðir Ijós­glampana við og við fram til kl. 4 um nótt­ina.

Öll þessi lopt­ljós komu úr norð­austri (land­norðri) og flugu upp á loptið til suð­vestrs (útsuðrs), komust sum eigi nema nokkra leið upp á loptið, en sum upp á háhvolfið og eydd­ust þar. Öll voru þau smá, eins og venju­leg stjörnu­hröp, nema eitt, það var all­mik­ill eld­hnöttr (víga­hnöttr?), og lýsti mjög af, er hann þaut upp á loptið, en þar hvarf hann; eigi heyrðu þeir þyt eða bresti til þess­ara lopt­sjóna, en mjög hafði sjón þessi verið fögr, og lík­ast til að sjá einsog ótal flug­eldum (Raketter) væri skotið upp af litlu svæði á norð-austr­lopt­inu.

Nóttina þar á undan höfðu nokkur af þessum flug­ljósum sézt eins og að und­an­förnu í vetr, en aldrei þykj­ast þeir, sem á horfðu, hafa séð neitt þessu líkt.

Það eru mikil lík­indi til að þessi sjón hafi víðar sézt hér á landi, og væri æski­legt, að þeir, sem hafa verið svo heppnir að sjá hana, vildu senda til blað­anna skýrslu um það, og sömu­leiðis ef þeir hefðu séð slíkt að und­an­förnu.

En hvað vita menn nú um þesskyns lopt­sjónir, sem hér er um að ræða? ... Vér köllum þetta stjörnu­hrap, þegar það er eigi stærra til að sjá en stjarna, en eld­hnetti eða víga­hnetti og víga­branda, þegar það er stærra ...

 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár