Rannsókn á þætti norska bankans DNB í Samherjamálinu felld niður

Rann­sakendur í Noregi telja ekki að starfs­menn DNB hafi tekið þátt í meintum lögbrotum tengdum starfsemi Samherja og hafa fellt niður rannsókn á bankanum.

Rannsókn á mögulegum þætti starfs­manna norska bankans DNB í meintum lögbrotum tengdum starfsemi Samherja, meðal annars í Namibíu, hefur verið felld niður. Þetta kemur fram í tilkynningu frá DNB til norsku kaup­hallarinnar, en hann er skráður á markað.

Í tilkynningunni segir að rannsókn norsku ríkis­saksóknara­embættisins hafi ekki leitt að sér neinar upplýsingar sem þyki tilefni til saksóknar gegn einstaklingum sem starfi hjá bankanum né að hún þyki líkleg til að leiða til sektar­greiðslna. þar er haft eftir Thomas Midteide, yfirmanni samskipta­mála hjá DNB, að bankinn hafi átt í góðu samstarfi við Økokrim, norsku efnahags­brota­deildina, frá því að rann­sóknin hófst síðla árs 2019, í kjölfar uppljóstrunar Kveiks, Stundarinnar, Wikileaks og Al Jazeera á meintum brotum Samherja­samstæðunnar í tengslum við umsvif hennar í Namibíu. Í þeirri umfjöllun var fjallað um meintar mútu­greiðslur, skatta­sniðgöngu og peninga­þvætti.

Kjarn­inn greindi frá því í fyrra­haust að æðsti yfir­maður Økokrim hafði lýst sig van­hæfan til þess að fjalla um málið vegna fyrri starfa sinna í lög­mennsku. Málið var í kjöl­farið fært frá efna­hags­brota­lög­regl­unni til rík­is­sak­sókn­ara.

Rann­sóknin á DNB snerist um hvort að bankinn hefði tekið þátt í glæp­samlegu athæfi með því að tilkynna ekki milli­færslur Samherja­félags til félags í Dúbaí til fjármála­eftirlitsins í Noregi sem grunsamlegar milli­færslur.

Hentu Samherja úr viðskiptum

Í umfjöllun Kjarnans um rann­sóknina, sem birtist í desember 2020, kom fram að verið væri að rannsaka hvort að DNB hefði tekið þátt í glæp­samlegu athæfi vegna hlutverks hans í því sem „virðist vera mútu­greiðslur sem greiddar voru af banka­reikningum félaga Samherja hjá DNB,“ samkvæmt því sem fram kemur í bréfi Økokrim sem Kjarninn hefur undir höndum, og er dagsett 29. apríl 2020.

Rann­sóknin snéri að uppistöðu að því að komast til botns í því af hverju DNB tilkynnti ekki greiðslur til Tundavala til norska fjármála­eftirlitsins sem grunsamlegrar milli­færslur.

DNB, sem er að hluta til í eiga norska ríkisins, lauk viðskipta­sambandi sínu við Samherja í lok árs 2019 vegna þess að stjórn­endur dóttur­félaga sjávar­útvegs­risans, sem áttu reikninga í bankanum, svöruðu ekki kröfu bankans um frekari upplýsingar um starfsemi þess, milli­færslur sem það framkvæmdi og tengda aðila, með fullnægjandi hætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hluthafar Samherja taka út milljarð í arð eftir uppskiptingu félagsins

Verulegar breytingar voru gerðar á uppbyggingu útgerðar­risans Samherja í fyrra þegar fjár­festingar­starfsemin var aðskilin frá útgerðar­rekstri með stofnun eignarhalds­félagsins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eigendur Samherja ætli sér einnig að færa útgerðar­félagið inn í eignarhalds­félagið Látra­fjöll en skattalegar ástæður geta legið þar að baki.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár