Mynd: Skjáskot

Raunveruleg ástæða þess að norskur stórbanki sagði upp viðskiptum við Samherja

Norska efna­hags­brota­deildin rann­sakar hvort DNB bank­inn hafi tekið þátt í glæp­sam­legu athæfi með því að til­kynna ekki milli­færslur Sam­herj­a­fé­lags til félags í Dúbaí til fjár­mála­eft­ir­lits sem grun­sam­legar milli­færslur.

Norski bank­inn DNB, sem er að hluta til í eiga norska rík­is­ins, lauk við­skipta­sam­bandi sínu við Samherja í lok síð­asta árs vegna þess að stjórn­endur dótt­ur­fé­laga sjáv­ar­út­vegs­ris­ans, sem áttu reikn­inga í bank­anum, svör­uðu ekki kröfu bank­ans um frek­ari upp­lýs­ingar um starf­semi þess, milli­færslur sem það fram­kvæmdi og tengda aðila, með full­nægj­andi hætti. Þá er norska efna­hags­brota­deildin Økokrim er með milli­færslur sem greiddar voru út af reikn­ingum Samherja hjá DNB og inn á reikn­ing í Dúbaí, í eigu þáver­andi stjórn­ar­for­manns rík­is­út­gerðar Namibíu, til rann­sóknar. Und­ir­liggj­andi í þeirri rann­sókn er hvort að DNB hafi tekið þátt í glæp­sam­legu athæfi með því að til­kynna greiðsl­urnar ekki til norska fjár­mála­eft­ir­lits­ins.

Þetta kemur fram í máls­gögnum sem rík­is­sak­sókn­ari Namibíu hefur lagt fram vegna kyrr­setn­inga­máls þar í landi.

DNB krafð­ist upp­lýs­ing­anna seint í nóv­em­ber í fyrra, í kjöl­far þess að Kveikur, Stundin, Wikileaks og Al Jazeera opin­ber­uðu við­skipta­hætti Samherja í Namibíu. Í þeirri umfjöllun var fjallað um meintar mútu­greiðslur, skatta­snið­göngu og pen­inga­þvætti.

Þegar svör Sam­herj­a­sam­stæð­unnar reynd­ust ekki full­nægj­andi ákvað DNB að slíta við­skipta­sam­bandi við hana. Það var gert með bréfi sem var sent 9. des­em­ber 2019.

Málefni Samherja eru nú til rann­sóknar í að minnsta kosti þremur löndum: Namibíu, Íslandi og Noregi. Sex manns sitja í gæslu­varð­haldi í Namibíu vegna máls­ins og sex Íslend­ingar eru með rétt­ar­stöðu sak­born­ings í rann­sókn hér­aðs­sak­sókn­ara á mál­inu á Íslandi. Á meðal þeirra er Þor­steinn Már Bald­vins­son, annar for­stjóra Samherja.

Málsgögn aðgengileg á netinu

Á vefnum eJUSTICE Namibia er hægt að nálg­ast grein­ar­gerð rík­is­sak­sókn­ara Namibíu í málum þar sem kraf­ist er kyrr­setn­ingar á eignum Samherja sem metnar eru á nokkra millj­arða króna og kyrr­setn­ingar á eignum þeirra sex Namib­íu­manna sem sitja í gæslu­varð­haldi, og tíu félaga á þeirra vegum. Þetta er meðal ann­ars gert á grund­velli laga um varnir gegn skipu­lagðri glæp­a­starf­semi.

Í grein­ar­gerð­inni er sex­menn­ing­unum og fimm Íslend­ing­um, undir for­ystu Þor­steins Más, lýst sem skipu­lögðum glæpa­hóp.

Í gögn­unum sem aðgengi­leg eru á eJUSTICE Namibia eru líka þús­undir ann­arra skjala, fylgi­gögn sem styðja við það sem sagt er í grein­ar­gerð­unum.

Á meðal þess sem þar er að finna eru tölvu­póst­sam­skipti DNB og félaga í eigu Samherja sem áttu sér stað seint á síð­asta ári.

Óskað eftir gögnum

Í skjöl­unum má finna upp­lýs­ingar um það hvernig banka­við­skiptum DNB við fjölda félaga í eigu Samherja var lokið. Hægt er að sjá nöfn þeirra félaga hér að neðan.

Yfirlit yfir félög úr samstæðu Samherja sem voru með bankareikninga í DNB.
Yfirlit yfir félög úr sam­stæðu Samherja sem voru með banka­reikn­inga í DNB.

Eitt þess­ara félaga heitir Noa Pelagic Limited, er í eigu Samherja og með heim­il­is­festi á Kýpur.

29. nóv­em­ber 2019 sendi norski bank­inn DNB tölvu­póst á Ingvar Júl­í­us­son, fjár­mála­stjóra Samherja á Kýpur, þar sem bank­inn óskaði eftir upp­færðum upp­lýs­ingum um Noa Pelagic Limited, meðal ann­ars á grund­velli laga um pen­inga­þvætti. Í póst­inum var vísað sér­stak­lega í þær upp­lýs­ingar sem komu fram í opin­berun Kveiks, Stund­ar­innar, Wikileaks og Al Jazeera á við­skipta­háttum Samherja í Namibíu nokkrum dögum fyrr.

Í tölvu­póst­inum óskaði DNB eftir ýmis­konar gögnum og að Ingvar, fyrir hönd Noa Pelagic Limited, myndi leggja mat á þær ásak­anir sem fram höfðu komið og hvort það væri hætta á því að við­skipta­sam­band félags­ins við DNB hefði verið, eða gæti verið notað, til að með­höndla illa fengið fé.

Á meðal þeirra ganga sem óskað var eftir voru árs­reikn­ingar fyrir árin 2016,2017 og 2018, skrán­ing­ar­gögn, end­ur­skoð­un­ar­skýrslur, sam­an­tekt á öllum starfs­mönnum félags­ins og öðrum sem kæmu fram fyrir þess hönd og lýs­ingu á starf­semi félags­ins. Þá krafð­ist DNB þess að fá upp­lýs­ingar um alla við­skipta­vini Noa Pelagic og nán­ustu sam­starfs­fé­lög félags­ins.

Sérstök áhersla á millifærslur til Dúbaí

Þá vildi DNB fá upp­lýs­ingar um ýmsar milli­færslur af reikn­ingum Noa Pelagic á und­an­förnum árum. Sú beiðni var í tveimur hlutum. Fyrri hluti hennar sner­ist um að fá upp­lýs­ingar um á fjórða tug milli­færsla inn á reikn­inga Cape Cod Fs. Ltd. á árunum 2016 til 2018. Sam­an­lagt virði þeirra er um 155 millj­ónir króna á núver­andi gengi. Seinni hlut­inn snýst um fjölda milli­færslna inn á reikn­inga félaga í eigu Samherja.

Annars vegar er um að ræða greiðslur frá félag­inu Karee Invest­ments One Eight Zero, nambísks félags í eigu Samherja, inn á reikn­ing­anna og hins vegar út af þeim til Tunda­vala Invest­ment Limited. Umræddar milli­færslur áttu sér stað frá febr­úar 2017 og til loka jan­úar 2019. Sam­an­lagt er um að ræða milli­færslur upp á rúm­lega 3,8 millj­ónir dala, um 490 millj­ónir króna á núver­andi gengi.

Fyrra félagið, Karee Invest­ments One Eight Zero, er dótt­ur­fé­lag Esju Invest­ments, félags skráð í skatta­skjól­inu Mauri­tíus. Eign­ar­hald Esju teygir sig svo í gegnum net aflands­fé­laga, meðal ann­ars á Kýpur, sem eru í eigu Sæbóls Fjár­fest­inga­fé­lags á Íslandi. Eini eig­andi Sæbóls er Samherji hf., sam­kvæmt myndi sem norska efna­hags­brota­deildin Økokrim teikn­aði upp af erlendri starf­semi Samherja.

Erlend starfsemi Samherja eins og hún var teiknuð upp af Økokrim fyrr á þessu ári.
Erlend starf­semi Samherja eins og hún var teiknuð upp af Økokrim fyrr á þessu ári.

Í umfjöllun Kveiks fyrir rúmu ári kom fram að Sam­herji hefði nýtt sér tví­skött­un­ar­samn­ing við eyj­una Mári­tíus í við­skiptum sínum í Namibíu og flutt hagnað sem varð til vegna veiða þar í lág­skatt­ar­skjólið Kýp­ur, þar sem Sam­herji hefur stofnað tug félaga á und­an­förnum árum. Frá Kýpur fóru pen­ing­arnir svo inn á banka­reikn­ing Sam­herja í DNB.

DNB til rannsóknar vegna millifærslna Samherja

Seinna félagið, Tunda­vala, var skráð í Dúbaí og er í eigu James Hatuikulipi. Hann er frændi Tamson Hatuikulipi, tengda­sonar Bernhard Esau, fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra. James er líka fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður rík­is­út­gerð­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Fischor sem tryggði Samherja hrossa­makríl­kvóta í Namibíu. Hann, Tamson og Bernhard Esau eru á meðal þeirra sex ein­stak­linga sem setið hafa í gæslu­varð­haldi í Namibíu í rúmt ár fyrir að hafa stundað skipu­lega glæp­a­starf­semi og þegið mútur í tengslum við kvóta­við­skipti Samherja þar í landi.

Í tölvu­póst­inum til Ingvars er honum, og Noa Pelagic, gefið til 4. des­em­ber 2019 til að bregð­ast við, eða fimm daga.

Það var kannski ekki skrýtið að DNB væri að bregð­ast hratt og hart við gagn­vart Samherja.

Økokrim var að rann­saka hvort að DNB hefði tekið þátt í glæp­sam­legu athæfi vegna hlut­verks hans í því sem „virð­ist vera mútu­greiðslur sem greiddar voru af banka­reikn­ingum félaga Samherja hjá DNB,“ sam­kvæmt því sem fram kemur í bréfi Økokrim sem finna má í skjöl­unum, og er dag­sett 29. apríl 2020.

Rann­sóknin snýr enn sem komið er að uppi­stöðu að því að kom­ast til botns í því af hverju DNB til­kynnti ekki greiðslur til Tunda­vala til norska fjár­mála­eft­ir­lits­ins sem grun­sam­legrar milli­færslur.

Úr bréfi Økokrim til namibískra yfirvalda dagsett 29. apríl 2020.
Úr bréfi Økokrim til namibískra yfir­valda dag­sett 29. apríl 2020.

Þann 9. des­em­ber sendi DNB nýtt bréf til fyr­ir­svars­manna Noa Pelagic. Þar er þeim til­kynnt að skýr­ingar á þeim þáttum sem velt var upp í bréf­inu 29. nóv­em­ber væru ekki full­nægj­andi. Þessu dótt­ur­fé­lagi Samherja yrði hent úr við­skiptum við norska stór­bank­ann og þremur gjald­eyr­is­reikn­ingum þess hjá honum lokað. Það var meðal ann­ars gert með vísun í norsk pen­inga­þvætt­is­lög.

Þetta þýddi að frá 2. jan­úar 2020 myndi hvorki vera hægt að leggja inn á eða taka út af umræddum reikn­ingum. Sama átti við um banka­reikn­inga ann­arra félaga innan Sam­herj­a­sam­stæð­unnar hjá DNB.

Telur sig ekki hafa gefið rangar eða villandi upplýsingar

Í við­tali við Stundina 13. febr­úar 2020 sagði Björgólfur Jóhanns­son, annar for­stjóra Samherja, að DNB hafi ekki gefið neinar skýr­ingar á því af hverju við­skipta­sam­bandi bank­ans var sagt upp.

Sú skýr­ing stang­ast á við tölvu­póst DNB til fjár­mála­stjóra Samherja á Kýpur 9. des­em­ber 2019, sem rak­inn var hér að ofan. Bréf Økokrim til namibískra yfir­valda dag­sett 29. apríl 2020 sýnir líka svart á hvítu að rann­sókn norsku efna­hags­brota­deild­ar­innar snýst um þátt DNB í því að til­kynna ekki greiðslur frá félögum Samherja til Tunda­vala.

Björgólfur segir í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans um þessi ummæli að þau séu í óbeinni ræðu og byggð á SMS-sam­skiptum við blaða­mann Stund­ar­innar. „Þannig virð­ist hann hafa túlkað orð mín í skila­boðum til hans á þann hátt að DNB hafi engar skýr­ingar gefið fyrir sinni ákvörðun. Ég bendi þér á að í við­tölum við aðra fjöl­miðla stað­festi ég að DNB hafi átt frum­kvæði að lokun við­skipt­anna og að Samherji hafi verið í sam­skiptum við bank­ann um skýr­ingar á þeirri ákvörðun.“

Björgólfur Jóhannsson, annar forstjóri Samherja.
Björgólfur Jóhanns­son, annar for­stjóri Samherja.

Því til stuðn­ing vís­aði Björgólfur meðal ann­ars í við­tal við sig á RÚV 12. febr­úar síð­ast­lið­inn þar sem hann sagði meðal ann­ars: „Það var að frum­kvæði norska bank­ans og við höfum verið í sam­vinnu við hann varð­andi spurn­ingar sem þeir höfðu út af okkar við­skiptum og við vorum þá þegar að und­ir­búa flutn­ing á öllum okkar við­skiptum sem þar voru.“

Því telur Björgólfur það ekki ekki rétt að hann hafi gefið rangar eða vill­andi skýr­ingar á við­skipta­sam­bandi Samherja og tengdra félaga við DNB.

Greiðslur lögmætar frá sjónarhóli félaga sem tengjast Samherja

Kjarninn óskaði eftir við­brögðum frá Samherja vegna þess sem fram kemur í skjöl­unum sem hér eru til umfjöll­unar. Sér­stak­lega var spurt um hvaða skýr­ingar Samherji hefði á greiðslum af reikn­ingi dótt­ur­fé­lags síns hjá DNB inn á reikn­inga Tunda­vala, allt fram til loka jan­ú­ar­mán­aðar 2019.

Þá var einnig spurt um hvernig það pass­aði við fyrri full­yrð­ingar ann­ars for­stjóra Samherja, Björg­ólfs Jóhanns­sonar um að Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ar­inn sem kom upp um við­skipta­hætti Samherja í Namibíu og starf­aði hjá fyr­ir­tæk­inu fram á mitt ár 2016 hefði verið einn að verki þegar kom að greiðslum sem stæð­ust ekki skoð­un, þegar þær greiðslur sem DNB kall­aði eftir upp­lýs­ingum um, meðal ann­ars til Tunda­vala, voru allar fram­kvæmdar eftir að hann lét af störfum hjá Samherja.

Umræddar full­yrð­ingar voru settar fram í við­tali við norska við­skipta­blaðið Dagens Nær­ingsliv fyrir um ári síðan. Þar var haft eftir Björgólfi að hann efað­ist „um að nokkrar mútu­greiðslur hafi átt sér stað eða að fyr­ir­tækið sé eða hafi verið flækt í nokkuð ólög­mætt.“ Þar sagði hann enn fremur að hann teldi að Jóhannes hafi verið einn að verki þegar kom að greiðslum sem stæð­ust ekki skoð­un.

Í svari Björg­ólfs segir að Samherji hafi alfarið neitað því að félög tengd Samherja hafi greitt mútur eða aðrar óeðli­legar greiðslur. „Hvort sem það er í tengslum við rekst­ur­inn í Namibíu eða ann­ars staðar. Við lítum svo á að greiðslur, í tengslum við rekst­ur­inn í Namibíu, séu lög­mætar frá sjón­ar­hóli félaga sem tengj­ast Samherja. Gildir það um allar greiðslur til félags­ins Tunda­vala Invest.“

Hann segir að skortur hafi verið á eft­ir­liti með rekstr­inum í Namibíu og að Samherji hafi þegar brugð­ist við því með inn­leið­ingu sér­staks kerfis fyrir reglu­vörslu sem gildi um öll félög innan Samherja. Markmið þeirra sé að Samherji verði leið­andi á sviði stjórn­unar- og innra eft­ir­lits í sjáv­ar­út­veg­inum á heims­vísu.

Stendur við fyrri fullyrðingar sínar

Björgólfur segir að eftir að Jóhann­esi hafi verið sagt upp störfum sum­arið 2016 hafi mikil vinna ann­arra starfs­manna farið í að taka til í rekstr­inum í Namibíu, afla skýr­inga á ein­stökum við­skiptum og búa svo um hnút­ana að bók­hald félags­ins stæð­ist lög­bundnar kröfur þar sem að undir stjórn Jóhann­esar hafi þessi rekstur í molum. „Þannig eru til alls kyns gögn og tölvu­póstar þar sem aðrir starfs­menn eru að afla skýr­inga á ýmsum reikn­ingum og við­skiptum sem gerð voru í tíð Jóhann­esar og stóð­ust ekki skoðun. Þá komu í ljós reiðu­fjár­út­tektir sem engar skýr­ingar hafa fund­ist á og engin skjöl eru til um. Fjöl­miðlar á Íslandi hafa hins vegar lít­inn áhuga á þess­ari hlið máls­ins því það myndi eðli­lega varpa rýrð á trú­verð­ug­leika heim­ild­ar­manns­ins og þeirra frétta sem sagðar voru í nóv­em­ber 2019.“

Björgólfur seg­ist því standa við fyrri full­yrð­ingar, sem settar voru fram í við­tal­inu við Dagens Nær­ingsliv.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið undanfarið ár