Bandaríkin tróna á toppi plastfjallsins

Engin þjóð í heiminum hendir jafn miklu af plasti og Bandaríkja­menn. Þúsundir tonna enda árlega í hafinu, ám og vötnum.

Sjálfboðaliði tínir upp plastflösku í fenjunum í Miami í Flórída.
Sjálf­boða­liði tínir upp plast­flösku í fenj­unum í Miami í Flórída. Mynd: EPA

Hvergi í heiminum fellur til jafn mikið af plast­úrgangi og í Banda­ríkjunum og stefnu­breytingar er þörf til að takast á við vandann, segir í nýrri skýrslu nefndar Banda­ríkjaþings. Vandinn hefur verið að byggjast upp í áratugi, segir í skýrslunni. Undra­efnið plast sem fundið var upp á síðustu öld og gjör­breytti allri fram­leiðslu hefur leitt af sér alþjóðlegt vandamál því plast, sem aðallega er búið er til úr olíu, „virðist vera að safnast upp hvert sem litið er“.

Árið 2016 er talið að plast­úrgangur í Banda­ríkjunum hafi numið 42 milljónum tonna sem er um tvisvar sinnum meira en féll til í Kína og meira en féll til innan Evrópu­sambandsins alls.

„Magnið er óhugnanlega mikið,“ hefur Washington Post eftir Margaret Spring, yfir­vísinda­manni hjá Monterey Bay-stofnuninni og formanni þing­nefndarinnar sem rann­sakaði plast­úrganginn.

Í skýrslunni kemur fram það mat vísinda­manna að 1-2 milljónir tonna af plast­úrgangi í landinu fari út í umhverfið á hverju ári. Talið er að um átta milljónir tonna af plasti endi árlega í sjónum á heimsvísu og að með sama áfram­haldi verði tonnin 54 milljónir í lok áratugarins. Vísinda­mennirnir benda á að það myndi þýða að meira plastrusl færi í hafið en veitt væri úr því af fiski.

Fulltrúa­deild Banda­ríkjaþings samþykkti á síðasta ári að kalla eftir skýrslu um plast­vandann og lögðu vísinda­menn í bæði Banda­ríkjunum og Kanada hönd á plóg við vinnu hennar.

„Niður­staða skýrslunnar er alvarleg áminning um umfang þessa vanda,“ segir þing­maðurinn og Repúblikaninn Dan Sullivan sem átti sæti í nefndinni. Hann segir að í skýrslunni séu saman tekin gögn frá „okkar færustu vísinda­mönnum“ sem eigi að verða vegvísir inn í fram­tíðina. Grípa þurfi til frekari laga­setninga til að vernda lífríki sjávar svo ekki verði grafið undan fisk­veiðum og efnahags­lífi almennt.

„Við getum ekki lengur leitt hjá okkur þátt Banda­ríkjanna í plast­mengun, einni stærstu ógn sem steðjar að umhverfinu á okkar tímum,“ sagði í yfir­lýsingu frá

Christy Leavitt, framkvæmda­stjóra Oceana-náttúru­verndar­samtakanna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár