Samkomulag ríkislögreglustjóra hækkaði laun yfirmanna um 48 prósent

Þeir yfir­menn hjá rík­is­lög­reglu­stjóra sem skrif­uðu undir sam­komu­lag við emb­ættið í fyrra hækk­uðu sam­tals grunn­laun sín um 314 þús­und krónur á mán­uði og sam­eig­in­legar líf­eyr­is­greiðslur um 309 millj­ónir.

Haraldur Johanessen var enn ríkislögreglustjóri þegar samkomulagið var gert. Hann lét af störfum skömmu síðar
Haraldur Johanes­sen var enn rík­is­lög­reglu­stjóri þegar sam­komu­lagið var gert. Hann lét af störfum skömmu síðar Mynd: Birgir Þór Harðarson

Þeir tveir yfir­lög­reglu­þjónar og sjö aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónar sem skrif­uðu undir sam­komu­lag við rík­is­lög­reglu­stjóra um aukin líf­eyr­is­rétt­indi hækk­uðu mán­að­ar­laun sín að með­al­tali um 48 pró­sent. Með sam­komu­lag­inu færð­ust 50 yfir­vinnu­stundir inn í föst mán­að­ar­laun starfs­mann­anna, og með því aukast líf­eyr­is­rétt­indi þeirra sem greiða iðgjöld í B-deild Líf­eyr­is­sjóð starfs­manna rík­is­ins (LSR). Heild­ar­á­hrif þeirrar aukn­ingar er metin 309 millj­ónir króna.

Meðaltal fastra mán­að­ar­launa fyrir dag­vinnu yfir­lög­reglu­þjóna og aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjóna hjá rík­is­lög­reglu­stjóra fór úr um 672 þús­und krónum í um 986 þús­und krónur vegna sam­komu­lags rík­is­lög­reglu­stjóra. Með­al­tals­hækkun fastra mán­að­ar­launa fyrir dag­vinnu umræddra starfs­manna í krónum talið var því um 314 þúsúnd krónur á mán­uði og hlut­falls­leg hækkun nam um 48 pró­sent.

Þetta kemur fram í svari Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Ólafs Ísleifs­sonar, þing­manns Mið­flokks­ins, um málið. Sam­komu­lagið var gert 26. ágúst 2019, á meðan að Haraldur Johann­es­sen sat enn í stóli rík­is­lög­reglu­stjóra. Hann sam­þykkti að láta af störfum skömmu eftir gerð þess. Kostn­aður vegna starfs­loka­samn­ings sem dóms­mála­ráð­herra gerði við Har­ald Johann­essen var 47,2 millj­ónir króna án launa­tengdra gjalda. Þegar þeim er bætt við er kostn­að­ur­inn 56,7 millj­ónir króna. 

Úlfar Lúð­víks­son, for­maður Lög­reglu­stjóra­fé­lags Íslands og lög­reglu­stjóri á Vest­ur­landi, skrif­aði bréf til dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins í októ­ber í fyrra þar sem hann gerði veru­legar athuga­semdir við sam­komu­al­gið og sagði það leiða til þess að aðstoðar- og yfir­lög­reglu­þjón­arnir ryðu með hærri laun en sjö af níu lög­reglu­stjórum lands­ins. Til við­bótar myndu líf­eyr­is­greiðslur þeirra sem greiða í B-deild LSR hækka.

309 milljón króna viðbótarkostnaður vegna lífeyrisgreiðslna

Í svar­inu segir að alls hafi tveir yfir­lög­reglu­þjónar og sjö aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónar skrifað undir samn­ing­anna. Einn aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn lét hins vegar af störfum vegna ald­urs í lok des­em­ber 2019 en sam­kvæmt lögum ber emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra því kostn­að­inn af auknum skuld­bind­ingum vegna hækk­unar á líf­eyri þess starfs­manns. Einn yfir­lög­reglu­þjónn og einn aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn eru hins vegar með óbreytt föst mán­að­ar­laun fyrir dag­vinnu.

Ólafur spurði einnig um hvaða áhrif samn­ing­arnir hefðu á líf­eyri umræddra starfs­manna. Í svari Bjarna segir að mat á hlut­falls­legri hækkun líf­eyris hjá B-deild LSR vegna rétt­inda yfir­lög­reglu­þjóna og aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjóna hjá emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra bygg­ist á upp­lýs­ingum sem ráðu­neytið fékk frá Fjár­sýslu rík­is­ins, LSR og Talna­könnun hf. „Nið­ur­staðan er að skuld­bind­ingar miðað við launin áður en sam­komu­lagið var gert voru 563 millj. kr. en verða 872 millj. kr. miðað við launin sam­kvæmt sam­komu­lag­inu. Sam­komu­lag rík­is­lög­reglu­stjóra leiðir því til hækk­unar um 309 millj. kr. vegna umræddra starfs­manna.“ Hlut­falls­leg hækkun líf­eyris þeirra af fyrr­greindum ástæðum nemur því um 55 pró­sentum. Því til við­bótar er hækkun sem emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra ber sjálft kostnað af að fjár­hæð 51 milljón króna og hlið­stæður kostn­aður emb­ættis lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum nemur um 66 millj­ónum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár