Kostnaður við starfslok Haraldar 57 milljónir

Það hefði kostað rík­is­sjóð meira að láta Harald Johann­es­sen sitja áfram sem rík­is­lög­reglu­stjóra en að gera við hann starfs­loka­samn­ing, enda hefði hann þá fengið laun út skip­un­ar­tíma sinn. Á móti hefði hann þurft að vinna.

Kostn­aður vegna starfs­loka­samn­ings sem dóms­mála­ráð­herra hefur gert við Harald Johann­es­sen, sem samdi nýverið um að hætt sem rík­is­lög­reglu­stjóri, er 47,2 millj­ónir króna án launa­tengdra gjalda. Þegar þeim er bætt við er kostn­að­ur­inn 56,7 millj­ónir króna. Þetta kemur fram í svarið dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn fjár­laga­nefndar vegna starfs­loka Haraldar sem birt var í dag.

Í svar­inu segir að ef Haraldur hefði setið út skip­un­ar­tíma sinn, sem átti að ljúka 28. febr­úar 2023, hefði þurft að greiða honum 80,5 millj­ónir króna í laun án launa­tengdra gjalda, en 104,7 millj­ónir króna með þeim. Fjár­hæðir samn­ings­ins hljóði því upp á 54 pró­sent af kostn­aði við laun út skip­un­ar­tím­ann að teknu til­liti til launa­tengdra gjalda.

[adspot]Ef Haraldur hefði setið áfram hefði hann hins vegar sinnt starf­inu allan þann tíma en sam­kvæmt star­floka­samn­ingnum mun Haraldur taka að sér sér­staka ráð­gjöf við dóms­mála­ráð­herra í þrjá mán­uði á árinu 2020 og verða síðan áfram á launum fram á mitt ár 2021. Ekki verður gerð krafa um við­veru á þeim tíma þótt ráð­herra geti óskað eftir því að hann taki að sér ákveðin verk­efni.

Ráðherra ekki heimilt að reka hann

Í frétt á stjórn­ar­ráð­inu segir að frum­kvæðið að starfs­lok­unum hafi komið frá Haraldi sjálfum og að eng­inn annar grund­völlur hafi verið að þeim.“ Ráðherra hafi ekki verið heim­ilt að víkja Haraldi úr starfi þar sem emb­ætt­is­menn njóti sér­stak­lega ríkrar rétt­ar­verndar á grund­velli stjórn­ar­skrár­innar og ákvæða í lögum um rétt­indi og skyldur rík­is­starfs­manna.

Í svar­inu kemur einnig fram að ekki sé gert ráð fyrir sér­stakri fjár­mögnun vegna samn­ings­ins heldur rúmist hann innan fjár­veit­inga mála­flokks­ins.

Þar er einnig sagt, vegna umræðu sem átti sér stað í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum á Alþingi í gær, að ummæli á þá leið að „verið sé að „kaupa“ HJ frá starfi eiga í sjálfu sér við um alla starfs­loka­samn­inga hvort heldur sem er hjá einka­að­ilum eða opin­berum aðilum, kjósi menn að orða hlut­ina með þeim hætti“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár