Sigmundur: „Við sjáum til, bless bless“

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætis­ráðherra sagði Bjarna Benediktsson á fundi þeirra í morgun að hann myndi boða kosningar ef sjálfstæðis­menn treystu sér ekki til að styðja ríkis­stjórnina. Hann ráðfærði sig ekki við þingflokk sinn fyrir yfir­lýsinguna.

Forðaðist spurningar
Forð­að­ist spurn­ingar Sig­mundur stökk undan hljóð­nemunum inn í bíl með orð­unum: „Bless, bless!“ Mynd: Kristinn Magnússon

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætis­ráðherra hótar Sjálfstæðis­flokknum kosningum í Facebook-færslu sinni, án þess þó að hafa ráðfært sig við þingflokk sinn.

Sigmundur kom af fundi með forseta Íslands á Bessa­stöðum nú í hádeginu. „Við vorum að spjalla. Við sjáum til með þetta allt saman. Bless bless,“ sagði hann eftir fundinn.

Ólafur Ragnar greindi hins vegar frétta­mönnum frá fundinum. Kom þá í ljós að hann hafði neitað Sigmundi um heimild til að boða kosningar.

Hótaði Bjarna þingrofi

Sigmundur hitti Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðis­flokksins, á fundi í morgun og svaraði áhyggjum hans af stöðu ríkis­stjórnarinnar með þeim orðum að hann myndi boða kosningar ef sjálfstæðis­menn treystu sér ekki til að styðja ríkis­stjórnina. 

„Jafnframt fór ég yfir það með formanni Sjálfstæðis­flokksins að ef þingmenn flokksins treystu sér ekki til að styðja ríkis­stjórnina við að ljúka sameiginlegum verkefnum okkar myndi ég rjúfa þing og boða til kosninga hið fyrsta,“ segir Sigmundur í færslu sinni um fundinn.

Samkvæmt orðum Karls Garðars­sonar, þingmanns Framsóknar­flokksins, í hádegis­fréttum RÚV, ráðfærði Sigmundur sig ekki við þingflokk Framsóknar­flokksins áður en hann sendi út yfir­lýsinguna. „Hann hefði kannski átt að segja þing­flokknum frá þessu fyrst,“ sagði Karl og kveðst myndu hafa gert þetta öðruvísi.

Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðis­flokksins, sagði: „Það ber okkur enginn til hlýðni“. Hann sagði að í ljós kæmi hvað tæki við.

Sigmundur kemur af fundi
Sigmundur kemur af fundi Hann vildi ekki ræða við frétta­menn.

Svarar fyrir ákvarðanir sínar með ánægju

Sigmundur fer yfir stjórnmála­feril sinn í færslu sinni fyrir stundu.

„Hvort sem litið er til stjórnmála­baráttu undan­farinna ára og alls þess sem þar hefur gengið á, bæði opinber­lega og innbyrðis, eða til persónulegra málefna fjöl­skyldu minnar get ég óhræddur, óhikað og með ánægju svarað fyrir verk mín og ákvarðanir. Þegar ég ákvað að hefja þátttöku í stjórn­málum gerði ég það vegna þess að ég hafði ákveðna sýn á hvað væri nauðsynlegt að gera til að koma íslensku samfélagi á réttan kjöl og gera því kleift að nýta þau óþrjótandi tækifæri sem þjóðin býr yfir, samfélaginu öllu til heilla. Það hefur gengið betur en jafnvel ég þorði að vona að vinna að þeirri fram­tíðarsýn og henni mun ég fylgja áfram á meðan mér gefst tækifæri til.“

Þegar allt lék í lyndi
Þegar allt lék í lyndi Sigmundur Davíð og Bjarni kynntu nýja ríkis­stjórn á Laugar­vatni 22. maí 2013.

Bjarni ræddi um „ráðstafanir“

Bæði Heim­dallur, félag sjálfstæðis­manna í Reykjavík, og sjálfstæðis­menn á Akureyri, hafa farið fram á afsögn Sigmundar Davíðs. Þá hafa fram­sóknarmenn á Akureyri farið fram á „tafar­lausa afsögn“ formanns síns úr embætti forsætis­ráðherra. 

Vanga­veltur hafa verið um hvort Sigmundur stígi úr stóli forsætis­ráðherra, án þess þó að ríkis­stjórnar­samstarfinu ljúki. Hann virðist hins vegar ekki vera tilbúinn til þess og hefur neitað að segja af sér.

Bjarni Benediktsson sagði í samtali við fréttir Sjón­varpsins í gær að staða Sigmundar væri óheppileg. „Það er auðvitað alltaf óheppilegt þegar menn þurfa að bæta í skýringar eftir að máli vindur fram.“ 

Bjarni neitaði aðspurður að lýsa stuðningi við Sigmund. „Svona spurningum ætla ég ekkert að svara vegna þess að þannig gerast nú ekki hlutirnir þar sem ég er í samstarfi, að menn fái stuðnings­yfir­lýsingar eða vantrausts­yfir­lýsingar í fjöl­miðlum. Við þurfum einfald­lega að vinna þetta eins og almennilegt fólk, setjast niður yfir stöðuna og meta það hvort við teljum okkur hafa nægilegan stuðning til þess að sinna þeim verkefnum sem okkur voru falin og sett á dagskrá. Hvað er til bragðs að taka, hvort ríkis­stjórnin treystir sér til þess að halda áfram, eftir atvikum eftir einhverjar ráðstafanir.“

Facebook-færsla Sigmundar í heild sinni:

Nú í morgun átti ég mjög góðan fund með Bjarna Benedikts­syni, formanni Sjálfstæðis­flokksins. Við ræddum árangur ríkis­stjórnarinnar og mikilvægi þess að klára þau stóru verkefni sem undirbúin hafa verið síðustu misseri og ár. Mörg þeirra eru gríðar­lega mikilvæg fyrir íslenskt samfélag. Meðal annars þarf að ljúka afnámi fjármagns­hafta, endur­skipuleggja fjármála­kerfið svo að það virki í þágu almennings, ljúka því sem ríkis­stjórnar­flokkarnir höfðu samþykkt um afnám verð­tryggingar og innleiða umfangs­miklar úrbætur í húsnæðis­málum. Mörgum þessara verkefna hefði ég viljað sjá vinda hraðar fram en enn er þó nægur tími til að klára þau, sé viljinn fyrir hendi.

Jafnframt fór ég yfir það með formanni Sjálfstæðis­flokksins að ef þingmenn flokksins treystu sér ekki til að styðja ríkis­stjórnina við að ljúka sameiginlegum verkefnum okkar myndi ég rjúfa þing og boða til kosninga hið fyrsta.

Ég er stoltur af verkum mínum í stjórn­málum til þessa og óhræddur við að leggja þau í dóm kjósenda hvort sem það verður gert nú eða síðar. Ég er líka stoltur af eiginkonu minni og þeim heiðar­leika og fórnfýsi sem hún hefur ætíð sýnt.

Hvort sem litið er til stjórnmála­baráttu undan­farinna ára og alls þess sem þar hefur gengið á, bæði opinber­lega og innbyrðis, eða til persónulegra málefna fjöl­skyldu minnar get ég óhræddur, óhikað og með ánægju svarað fyrir verk mín og ákvarðanir. Þegar ég ákvað að hefja þátttöku í stjórn­málum gerði ég það vegna þess að ég hafði ákveðna sýn á hvað væri nauðsynlegt að gera til að koma íslensku samfélagi á réttan kjöl og gera því kleift að nýta þau óþrjótandi tækifæri sem þjóðin býr yfir, samfélaginu öllu til heilla. Það hefur gengið betur en jafnvel ég þorði að vona að vinna að þeirri fram­tíðarsýn og henni mun ég fylgja áfram á meðan mér gefst tækifæri til.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár