„Nauðsynlegt að sátt ríki um skipun dómara við Landsrétt“

Minni­hluti stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar segir ekki ljóst hvort ráðherra hafi sinnt rannsóknar­skyldu sinni og virt andmæla­rétt í samræmi við stjórn­sýslulög þegar tillaga um skipun dómara var lögð fram. Skipun dómara verði að vera hafin yfir allan vafa.

Fulltrúar stjórnar­andstöðunnar í stjórn­skipunar- og eftirlits­nefnd kalla eftir því að tillögu Sigríðar Á. Andersen um skipun dómara í Landsrétt verði vísað frá.

Telja nefndar­mennirnir óljóst hvort ráðherra hafi sinnt rannsóknar­skyldu sinni og virt andmæla­rétt í samræmi við stjórnsýslulög þegar tillagan var lögð fram. Ekki hafi reynst unnt að afla nægjanlegra sérfræði­álita í málinu, þinginu og nefndinni hafi verið gefinn óhóflega skammur tími til skoðunar þess og stjórnar­meirihlutinn hafi ekki sýnt neinn vilja til að fresta afgreiðslu málsins til að veita ráðherra tækifæri til að bæta úr annmörkum og tryggja vandaða máls­meðferð.

Þetta kemur fram í áliti minni­hlutans sem lagt var fram í kvöld, en undir það rita Katrín Jakobs­dóttir, formaður Vinstri grænna, Birgitta Jóns­dóttir og Jón Þór Ólafsson úr Pírötum og Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknar­flokksins.

Eins og Stundin greindi frá fyrr í kvöld styður meirihluti stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar Alþingis tillögu dómsmála­ráðherra þess efnis að vikið verði frá mati nefndar um mat á umsækjendum um dómara­störf við skipun í Landsrétt. Þing­flokkur Pírata hefur hins vegar undirbúið vantrausts­tillögu á Sigríði Andersen dómsmála­ráðherra og íhugar að leggja hana fram ef málinu verður ekki vísað frá.

„Um er að ræða grund­vallarmál sem varðar skipun nýs dómstóls sem er falið mikilvægt hlutverk í dómskerfi landsins og markar tímamót í réttar­sögunni,“ segir í áliti minni­hlutans sem telur nauðsynlegt að sátt ríki um skipun dómara við Landsrétt og skipun þeirra sé hafin yfir allan vafa. 

„Minni hlutinn deilir ekki um að ráðherra hefur heimild til að víkja frá mati dómnefndar svo fremi sem meiri hluti Alþingis samþykki þá tilhögun. Hins vegar er ráðherra ekki undan­þeginn þeirri megin­reglu stjórnsýslu­laganna sem fjallað hefur verið um í dómum og álitum umboðs­manns Alþingis og byggt hefur verið á hér á landi í langan tíma að skipa skuli þann hæfasta sem völ er á úr hópi umsækjenda. Sú regla tryggir almannahags­muni og uppfyllir jafnræðis­reglu stjórnar­skrárinnar,“ segir í nefndar­álitinu. Vísað er sérstak­lega til dóms Hæstaréttar í máli nr. 412/2010, frá 14. apríl 2011, þar sem hluti niður­stöðunnar var að ráðherra hefði við skipan héraðs­dómara í embætti ekki uppfyllt rannsóknar­skyldu sína við töku ákvörðunarinnar. „Ljóst er að liggja þarf fyrir fullnægjandi rökstuðningur fyrir því að þeir umsækjendur sem ráðherra leggur til séu a.m.k. jafnhæfir og þeir sem dómnefndin leggur til.“

Minni­hlutinn telur að bæði ráðherra og Alþingi hefðu þurft lengri tíma til að afgreiða málið svo ráðherra gæti uppfyllt rannsóknar­skyldu sína með óyggjandi hætti. Þannig gæti þingið vel komið saman síðar í sumar til að ljúka málinu. „Það er í takt við álit þeirra sérfræðinga sem komu fyrir nefndina sem töldu að til að leggja á það sérfræði­lega skoðun hvort ráðherra hefði framkvæmt fullnægjandi mat á einstökum umsóknum miðað við þau sjónarmið sem hann teldi að samræmdist best þörfum Lands­réttar þyrfti einfald­lega miklu meiri tíma og miklu meiri aðgang að gögnum.“ Fram kemur að minni­hlutinn hafi ítrekað lagt til að málinu yrði frestað þannig að ráðherra gæti farið yfir þær athuga­semdir sem hafa komið fram á þeim skamma tíma sem liðinn er frá því að tillaga ráðherra lá fyrir, sem og að stjórn­skipunar- og eftirlits­nefnd Alþingis fengi eðlilegan tíma til að sinna hlutverki sínu. Við þessari kröfu hafi ekki verið orðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár