Manafort í stofufangelsi og 10 milljónir dala í tryggingu

Alríkis­dómstóll í Washington úrskurðaði um stofu­fangelsið eftir að Manafort gaf sig fram við FBI vegna ákæru á hendur honum.

Paul Manafort, fyrr­verandi kosninga­stjóri Donalds Trumps, hefur verið úrskurðaður í stofu­fangelsi. Alríkis­dómari í Washington komst að þessu, en eins og greint var frá í gær þá hefur Manafort verið ákærður fyrir samsæri gegn bandarískum stjórn­völdum og peninga­þvætti.

Tryggingajaldið fyrir Manafort, eða lausnar­gjald, var ákveðið tíu milljónir Bandaríkja­dala. Rick Gates, viðskipta­félagi Manaforts, var líka úrskurðaður í stofu­fangelsi og tryggingar­gjald hans ákveðið fimm milljónir Bandaríkja­dala.

Þetta eru fyrstu ákærur Roberts Muellers, síðan hann tók við rannsókn á tengslum Rússa við framboð Trumps, og einnig hvort rússnesk yfirvöld hafi verið að skipta sér af kosningunum í Banda­ríkjunum með einhverjum hætti.

Þeir voru ákærðir fyrir samsæri gegn Banda­ríkjunum og peninga­þvætti. Meðal annars snúa ákærurnar að því að að Manafort hafi nýtt aflandsfélög og leynilega reikninga til að kaupa þjónustu og lifa hátt.

Meðal annars er þeim Manafort og Gates gefið að sök að hafa þegið greiðslur frá Viktor Janúkovitsj, fyrr­verandi forseta Úkraínu, en hann var þá í góðu pólitísku sambandi við Rússland og yfirvöld í Kreml.

George Papadopolous, ráðgjafi Trumps í utan­ríkismálum í kosninga­baráttunni, viðurkenndi fyrir rann­sóknar­mönnum Muellers að hafa sagt ósatt við yfirheyrslur hjá FBI, um samskipti sín við breskan prófessor sem hann taldi hafa tengsl við rússnesk yfirvöld. Enn fremur játaði hann að hafa reynt að koma á samskiptum við rússnesk yfirvöld.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár