Kosningastjóri Trumps ákærður

Trún­að­ar­menn Trumps í kosn­inga­bar­áttu hans eru undir smá­sjá yfir­valda, og hafa tveir verið ákærðir og einn sak­aður um að ljúga að FBI við yfir­heyrslu.

Fyrr­ver­andi kosn­inga­stjóri fram­boðs Donalds Trumps Banda­ríkja­for­seta, Paul Manafort, hefur verið ákærður fyrir sam­særi gegn yfir­völdum í Banda­ríkj­unum og pen­inga­þvætti.

Við­skipta­fé­lagi hans Rick Gates var einnig ákærður og ráð­gjafi Trumps - og áber­andi tals­maður fram­boðs hans - George Papadopolous, hefur einnig játað lög­brot, með því að hafa sagt alrík­is­lög­regl­unni FBI ósatt við yfir­heyrslur.

Rannsókn Mueller skilar árangri

Þetta eru fyrstu ákær­urnar sem líta dags­ins ljós, á grunni rann­sóknar sem Robert Mueller, fyrr­ver­andi for­stjóri FBI, hefur leitt, en hann tók við stjórn­ar­taumunum í rann­sókn­inni eftir að James Comey var rek­inn sem for­stjóri FBI í miðri rann­sókn á tengslum fram­boðs Trumps við Rússa, og fleiri atriðum.

Donald Trump, Banda­ríkja­for­seti, brást æfur við tíð­und­unum af ákær­unum og not­aði Twitter - eins og svo oft áður - til að koma sínum sjón­ar­miðum á fram­færi. Hann beindi spjót­unum að Hillary Clinton og spurði hvers vegna í ósköp­unum ekki væri verið að fara á eftir henni og Demókrötum. Hann sagði enn fremur að ákær­urnar fjöll­uðu um eitt­hvað sem gerð­ist fyrir mörgum árum og tengd­ist honum ekk­ert, en fjöl­miðlar í Banda­ríkj­unum hafa þegar leið­rétt það, þó ákær­urnar nú teng­ist öðru fremur tengslum Manafort við Úkraínu og Viktor Janúkovíts, fyrr­ver­andi for­seta.

Faldir sjóðir og landráð

Ákærunar eru í tólf liðum, og snú­ast meðal ann­ars um að millj­ónum Banda­ríkja­dala hafi verið haldið leyndum í aflands­fé­lögum og að tengslum Manafort við Úkraínu, og hvernig hann beitti þeim, hafi verið beitt gegn hags­munum Banda­ríkj­anna.

Málin eru for­dæma­laus með öllu.

Lögmenn Manafort og Gates hafa vísað ákær­unum á bug, og sögðu þeir - á dramat­ískum blaða­manna­fundi fyrr í dag, þar sem stóru orðin voru ekki spöruð - að þeir hefðu ekk­ert gert af sér, og að þeir neiti stað­fast­lega sök.

Ákær­urnar snúa meðal ann­ars að því að Manafort hafi átt falda sjóði upp á 18 millj­ónir Banda­ríkja­dala sem hann hafi notað til að njóta þess að lifa hátt, og en einnig til að borga fyrir ýmsa þjón­ustu. Sjóð­irnir voru faldir og er litið svo á, sam­kvæmt frá­sögn BBC, að með þessu hafi hann brotið gegn lögum um pen­inga­þvætti og einnig stundað sam­særi gegn Banda­ríkj­unum. 

Verði hann fund­inn sekur getur legið við því allt að því ævi­langt fang­elsi.

Hvað er framundan?

Sé mið tekið af umfjöll­unum AFP, Reuters, New York Times og Washington Post í dag, þá er fast­lega búist við að fleiri ákærur líti dags­ins ljós á grunni rann­sóknar Muellers. Auk þess að er búist við því að tölu vert magn af gögnum verði birt, ofan á það sem þegar hefur komið fram, sem renni stoðum undir það að fram­boð Trumps hafi verið í tengslum við rúss­nesk yfir­völd, og að Rússari hafi verið að skipta sér af kosn­ing­unum með sér­tækum aðgerðum, meðal ann­ars tölvu­árásum og her­ferðum á sam­fé­lags­miðlum.

Tugir manna hafa verið yfir­heyrðir í tengslum við rann­sókn­ina, þar á meðal tveir synir Trumps og tengda­sonur hans, Jared Kushner. Þá liggur fyrir að fyrr­ver­andi þjóðar­ör­ygg­is­ráð­gjafi Trumps til skamms tíma, Michael Flynn, hefur rétt­ar­stöðu sak­born­ings í rann­sókn FBI vegna tengsla hans við Rússa og Tyrki líka.

Ströng við­ur­lög eru við því að starfa sjálf­stætt með öðrum ríkjum fram­hjá yfir­völdum, og varðar það við lög um land­ráð, ef fólk er staðið að slíku.

Þá hafa verið fram­kvæmdir tugi hús­leita, meðal ann­ars á fjár­öfl­un­ar­skrif­stofu Repúblik­ana. Þá bein­ist rann­sókn Muellers einnig að því upp­lýsa um hvort Rússar hafi - með sjálf­stæðum aðgerðum - reynt að hafa áhrif á nið­ur­stöðu kosn­ing­ana í nóv­em­ber í fyrra, sem Donald Trump vann, eins og kunn­ugt er.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár