Kína leggur allt að 25 prósent verndartolla á bandarískar vörur

Kínversk stjórn­völd hafa svarað ákvörðun Donald Trump um að setja háa tolla á innfluttar vörur frá Kína með því að gera slíkt hið sama. Alls leggjast nýju tollarnir, sem taka gildi í dag, á 128 bandarískar vörur. Tolla­stríð er skollið á.

Xi JInping, forseti Kína, hefur svarað Donald Trump í sömu mynt.
Xi JInping, for­seti Kína, hefur svarað Donald Trump í sömu mynt. Mynd: EPA

Kínversk stjórn­völd hafa ákveðið að leggja allt að 25 prósent verndar­tolla á 128 bandarískar innflutnings­vörur. Aðgerðin er svar þeirra við ákvörðun Donald Trump, forseta Banda­ríkjanna, um að hækka tolla á erlenda stál- og álframleiðslu í byrjun mars.

Á meðal þeirra vara sem tollar verða hækkaðir á eru svínakjöt og vín. Talið er að virði þeirra vara sem nýju verndar­tollarnir muni hafa áhrif á séu um þrír milljarðar Bandaríkja­dalir, eða um 300 milljarðar króna. Þeir taka gildi í dag, mánudag. Frá þessu er greint á vef BBC.

Í frétt miðilsins er haft eftir stjórn­völdum í Peking að aðgerðin sé til þess fallin að vernda hagsmuni og viðskipta­jöfnuð Kínverja, sem hafi tekið á sig högg vegna þeirra verndar­tolla sem Trump lagði á í mars.

Trump að fylgja boðaðri einangrunarstefnu

Don­ald Trump marg­ít­rek­aði í kosn­inga­bar­áttu sinni árið 2016 að Banda­ríkin þyrftu að end­ur­skoða utan­rík­is­verslun sína og þátt­töku sína í alþjóða­sam­starfi og fjöl­þjóð­legum frí­versl­un­ar­samn­ing­um.

Í byrjun mars lét hann til skarar skríða í þessum efnum. Þá setti hann á tolla á inn­flutn­ing á stáli og áli, en Trump sagði sjálfur þegar til­kynnt var um þessar aðgerð­ir, að þær myndu skapa störf í Banda­ríkj­unum og leiða til þess að banda­rísk fyr­ir­tæki gætu eflt við­skipti sín, meðal ann­ars við bíla­fram­leið­endur í land­inu sjálfu.

Um 25 pró­sent tollur var lagður á inn­flutt stál og tíu pró­sent á ál. Þessar aðgerðir voru risa­vaxnar á flesta mæli­kvarða, og leiddu af sér mikil mót­mæli frá öðrum mark­aðs­svæð­um, eins og í Evr­ópu og Asíu.

Aðgerðirnar þá beindust ekki síst að Kín­verj­um, en málm­iðn­að­ur­inn hefur vaxið gríð­ar­lega hratt þar á und­an­förnum árum, og hefur sala þaðan verið sífellt umfangs­meiri, meðal ann­ars til Banda­ríkj­anna. Kín­verjar sögðu strax að þeir hefðu ekki hafa áhuga á tolla­stríði við Banda­rík­in, en létu þó með fylgja að ef fari svo að hags­munir Kína yrðu skað­að­ir, þá verði slíkum aðgerðum svar­að. Það gerðist í dag.

Fleiri tollar í bígerð

Trump hefur sagt opinber­lega að tolla­stríð séu af hinu góða og að það sé auðvelt fyrir Banda­ríkin að vinna slík stríð. Stjórn­völd þar í landi hafa þegar kunngert ráða­gerðir um að leggja tolla á enn fleiri vörur sem innfluttar eru frá Kína og samkvæmt frétt BBC er árlegt virði þeirra vara tugir milljarðar Bandaríkja­dala.

Vænta má þess að kínversk stjórn­völd haldi áfram að svara öllum slíkum aðgerðum í sömu mynt. Tolla­stríð er því sannarlega skollið á.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár