Bandaríkjaþing birtir lögmanni Trump stefnu

Þing­nefndir Banda­ríkjaþings sem rannsaka afskipti Rússa af framboði Trumps hafa krafist þess að fá afhent gögn. Eftir neitun um afhendingu var lögmönnum stefnt.

Þing­nefnd­ir beggja deilda Banda­ríkja­þings hafa birt Michael Cohen, lög­fræðingi Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seta, stefnu. Krefjast nefnd­irn­ar þess að Cohen „veiti upp­lýs­ing­ar og vitn­is­b­urð“ um öll þau sam­skipti sem hann hafi átt við ráðamenn í Rússlandi, en afskipti Rússa af framboði Trumps, og samskipti við ráðamenn í Banda­ríkjunum, eru nú til rann­sóknar hjá þing­nefndum Banda­ríkjaþings.

New York Times seg­ir Cohen hafa staðfest við banda­ríska miðla að hann hafi verið beðinn um að veita slík­ar upp­lýs­ing­ar, en að hann hafi hafnað beiðninni. Skýring hans var sú að beiðnin hafi ekki verið rétt orðuð og of umfangs­mikil, að hans mati. „Ég hafnaði beiðninni um að taka þátt, af því að hún var illa orðuð, allt of um­fangs­mik­il og það var ómögu­legt að svara henni,“ sagði Cohen við ABC-sjón­varps­stöðina.

Spjót þing­nefndanna beinast líka að Jared Kushner, tengda­syni forsetans, sem sagður er hafa viljað koma á leyni­legum samskiptum við yfirvöld í Rússland, í desember í fyrra. Þetta ræddi hann við Sergey Kislyak, sendi­herra Rússlands í Banda­ríkjunum, og einnig ónefndan bankamann sem er sagður trúnaðar­maður Pútíns forseta.

Þing­nefnd­irn­ar hafa einnig stefnt Michael Flynn, fyrr­ver­andi þjóðarör­ygg­is­ráðgjafa Trump, en hann hætti störfum 13. febrúar á þessu ári eftir að hafa verið að staðinn að því að segja ósatt um samskipti sín við fyrr­nefndan Kislyak.

Lög­fræðing­ar Flynns sögðu hann ekki ætla að af­henda skjöl um sam­skipti sín við Rússa allt aft­ur til júní­mánaðar árið 2015. Meðal annarra fyrr­ver­andi aðstoðar­manna for­set­ans sem hafa fengið slík­ar beiðnir eru Roger Stone, Paul Mana­fort og Cart­er Page.

Þá beinist rannsókn FBI, á tengslum Rússa við framboð Trumps, meðal annars að núverandi dómsmála­ráðherra Jeff Sessions, en hann fundaði í tvígang í fyrra með Kislyak, í aðdrag­anda kosninganna 8. nóvember. Sessions sagði Banda­ríkjaþingi, eiðsvarinn, ósatt um samskipti sín við Rússa, eins og frægt er orðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár