Framsókn býður Samfylkingu, Pírötum og Viðreisn til viðræðna um myndun meirihluta

Bandalag þriggja flokka mun ræða við Framsókn um myndun meirihluta í Reykjavík sem myndi hafa 13 af 23 borgar­fulltrúum á bakvið sig. Boðað hefur verið til blaðamanna­fundar klukkan 11 til að svara spurningum fjölmiðla um málið.

Einar Þorsteinsson og Þordís Lóa Þórhallsdóttir leiða tvö af þeim fjórum framboðum sem munu ræða saman um myndun meirihluta.
Einar Þor­steins­son og Þordís Lóa Þór­halls­dóttir leiða tvö af þeim fjórum fram­boðum sem munu ræða saman um myndun meiri­hluta. Mynd: Bára Huld Beck

Framsóknar­flokkurinn hefur boðið Samfylkingu, Pírötum og Viðreisn til formlegra viðræðna um myndun meirihluta í Borgar­stjórn Reykja­víkur. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Einar Þorsteinsson, oddviti flokksins, sendi frá sér rétt í þessu. Þar er auk þess boðað til blaðamanna­fundar í Grósku kl. 11:00 í dag þar sem oddvitar flokkanna verða tilbúnir að svara spurningum fjölmiðla.

Þórdís Lóa Þórhalls­dóttir, oddviti Viðreisnar, gaf út tilkynningu á sunnudag þar sem hún sagði það alveg kýrt að flokkur hennar sé í banda­lagi með Pírötum og Sam­­fylk­ing­unni hvað varðar meiri­hluta­við­ræður í kjöl­far borg­­ar­­stjórn­­­ar­­kosn­­ing­anna og að flokk­­ur­inn ætli ekki að leita ann­að. Banda­lagið sé aug­­ljós kostur þegar mál­efna­á­herslur Við­reisnar í kosn­inga­bar­átt­unni séu skoð­að­­ar, sér­­stak­­lega hvað varðar skipu­lags-, sam­göngu- og lofts­lags­­mál. Við­reisn vilji láta reyna á að banda­lagið hefji meiri­hluta­við­ræður við Fram­sókn­ar­flokk­inn, en slíkur meiri­hluti hefði tæp­lega 56 pró­sent atkvæða á bak­við sig og 13 af 23 borg­ar­full­trú­um.

Í Morg­un­út­varpi Rásar 2 í gærmorgun bætti Þór­dís Lóa við að þótt meiri­hlut­inn hafi fallið í síð­ustu kosn­ing­um, mætti segja að minni­hlut­inn hafi líka gert það. Stjórn­ar­flokk­arnir hafi tapað tveimur mönnum en stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir þrem­ur. „Það er ekki verið að kjósa þá, þeir falla meira en meiri­hlut­inn og þegar við tökum þetta inn þá hugsa ég; hvað er það sem að borg­ar­búar voru að kjósa? Þeir voru að kjósa nýtt afl sann­ar­lega en þeir voru að kjósa eftir stórum lín­um.“

Einar Þor­steins­son boðaði bak­land sitt á fund í gærkvöldi þar sem það sem virð­ist vera eini mögu­leik­inn í stöð­unni sem stend­ur var ræddur: meiri­hluti með Sam­fylk­ingu, Pírötum og Við­reisn­. Heimildir Kjarnans herma að Framsókn muni gera þá kröfu að Einar verði borgar­stjóri allt kjör­tímabilið ef af samstarfinu verði.

Sagði „þrjóskubandalag“ stunda klækjastjórnmál

Hildur Björns­dótt­ir, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, brást við tíðindunum í gær með því að setja stöðu­uppfærslu á Facebook. Þar sagði hún að það sem komið hafi upp úr kjör­köss­unum í kosn­ing­unum fyrir rúmri viku síðan hafi verið skýrt ákall á breytt stjórn­mál. Að hennar mati voru nið­ur­stöð­urnar skýr­ar. Sitj­andi meiri­hluti féll og þeir flokkar sem stóðu utan hans fengu nálægt 60 pró­sent atkvæða.

Þetta telur Hildur hafa verið ákall kjós­enda eftir breyt­ingum og að þeir hafi sömu­leiðis verið að hafna klækja­stjórn­málum úr Ráð­húsi Reykja­vík­ur. „Ná­kvæm­lega sömu klækja­stjórn­málum og þrjósku­banda­lag Sam­fylk­ing­ar, Við­reisnar og Pírata beitir nú við meiri­hluta­við­ræð­ur. Banda­lagið þráskall­ast við að halda völdum sem kjós­endur vilja ekki fela þeim lengur – með úti­lok­unum og þving­un­um. Það getur tæp­lega talist upp­taktur að far­sælu sam­starfi fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn.“

Án Við­reisnar á Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn ekki leið í meiri­hluta en Sam­fylk­ing­in, Píratar og Sós­í­alista­flokk­ur­inn hafa allir úti­lokað sam­starf við flokk­inn og Vinstri græn hafa gefið það út að þau muni ekki setj­ast í meiri­hluta eftir að hafa beðið afhroð í síð­ustu kosn­ing­um. Án Við­reisnar getur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn ein­ungis náð ell­efu borg­ar­full­trúum með sam­starfi við Fram­sókn og Flokk fólks­ins, sem dugir ekki í meiri­hluta.

Hildur er þó ekki sam­mála því mati Einars Þorsteins­sonar að Framsókn standi einungis frammi fyrir einum möguleika. Í stöðu­upp­færslu sinni sagði hún að það þurfi eng­inn að und­ir­gang­ast þær þving­anir sem banda­lagið bjóði upp á að hennar mati. „Það eru margir mögu­leikar á borð­inu við myndun meiri­hluta. Ekki síst ef flokk­arnir velja að svara ákalli kjós­enda eftir mál­efna­legum stjórn­málum og auk­inni sam­vinnu um mik­il­væg fram­fara­mál. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er reiðu­bú­inn til sam­tals við alla flokka um verk­efni næsta kjör­tíma­bils. Við gengum óbundin til kosn­inga, boð­uðum breyt­ingar og vorum heið­ar­leg gagn­vart okkar kjós­end­um. Nú reynir á Fram­sókn­ar­flokk­inn – og auð­vitað alla flokka innan borg­ar­stjórnar - að hafa hug­rekkið til að svara kröfu kjós­enda um breytt stjórn­mál.“

Einar sagði í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi að hann skildi vel að Hildur væri súr yfir því að nokkrir flokkar hefðu útilokað samstarf við Sjálfstæðis­flokkinn. „Hún þarf kannski bara að horfast í augu við það og finna út úr því hvers vegna það er.“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kosningar 2022

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár