12 atriði sem fengu fólk til að missa trú á Sigmundi Davíð

Aðeins 9 prósent lands­manna telja Sigmund Davíð Gunnlaugsson forsætis­ráðherra vera heiðar­legan og 5 prósent álíta hann vera í tengslum við almenning. Hvað gerðist?

1Samsæriskenningarnar

Eftir yfir­lýsingar Sigmundar um leyni­skýrslur og sálgreiningar erlendra kröfuhafa á íslenskum einstaklingum kom í ljós að veru­leikinn var ekki jafn ævintýra­legur og hann gaf til kynna. „...Reglulega eru skrifaðar leyni­skýrslur hérlendis fyrir kröfu­hafana… Og í sumum tilvikum hafa verið gerðar sálgreiningar á fólki til að átta sig á því hvernig best sé að eiga við það,“ sagði Sigmundur. Full­yrðing hans um að í leyni­skýrslu hafi komið fram sú niður­staða að „Framsóknar­flokkurinn gæfi ekki eftir íslenska hagsmuni“ varð vandræðaleg þegar kom í ljós að hún var ekki niður­staða í leyni­skýrslu heldur endur­tekning á full­yrðingu aðstoðar­manns Sigmundar í dreifi­bréfi.

2Óþol fyrir gagnrýni

Ekki var liðinn nema einn mánuður af valdatíma Sigmundar Davíðs þegar hann byrjaði að ásaka aðra um að gera „loft­árásir“ á sig. Hluti af því var að RÚV skyldi fjalla um undir­skrifta­söfnun gegn lögum um veiði­gjald. Síðan hefur Sigmundur nýtt mörg tækifæri á opinberum vettvangi til að gagnrýna þá sem eru gagnrýnir á hann. Meðal annars hefur hann uppnefnt þá „niðurrifsöfl“ og gefið til kynna að þeir vilji Íslandi illt, eða hafi „.. brenglaða sýn [sem] nær athyglinni og gefur tóninn fyrir umræðuna...“
„Þeir eru til sem hafa ekki trú á Íslandi, þeir sem ala á sundrung og þeir sem aðhyllast öfga­kennda hugmynda­fræði,“ sagði hann meðal annars hálfu ári eftir að hann komst til valda.

3Matarskatturinn

Þegar Sigmundur frétti af því að síðasta ríkis­stjórn væri að íhuga að hækka matar­skattinn þótti honum það kalla á að hann kæmist til valda. „Það er löngu sannað að skatta­hækkanir á matvæli koma verst við þá sem lægst hafa launin ... Að hækka virðis­aukaskatt á matvæli í þeirri stöðu sem nú ríkir er hrein aðför að láglaunafólki. Þetta er rangt og þetta verður að stöðva … Ef af slíkum skatta­hækkunum verður er algerlega ljóst að fyrsta verk Fram­sóknar í ríkis­stjórn verður að afnema þær,“ lýsti hann yfir.

Eftir að Sigmundur og Framsókn komust í ríkis­stjórn gerðu þau eftir­farandi: Hækka matar­skatt um 4 prósentu­stig, eða hátt í 60%.

4Norska lánið

Sigmundur Davíð stimplaði sig heldur betur inn í þjóðfélags­umræðuna haustið 2009 þegar hann fullyrti í fjöl­miðlum að hann væri með lausn á kreppunni. Hann hefði farið til Noregs með Höskuldi Þór Þórhalls­syni, félaga sínum, og fengið vilyrði fyrir yfir tvö þúsund milljarða lán frá Noregi. Jens Stoltenberg, forsætis­ráðherra Noregs, svaraði síðan umleitan um það skriflega með neitun. Sigmundur kenndi Jóhönnu Sigurðar­dóttur, þáverandi forsætis­ráðherra, um að hafa eyðilagt fyrir láninu.

5SMS-styrkir

Í mars í fyrra kom í ljós að Sigmundur hefði einhliða tekið ákvörðun um að senda 100 milljóna króna í styrki í kjör­dæminu sínu. Meðal annars sendi Sigmundur SMS-skilaboð á oddvita Framsóknar­flokksins í Fljótsdals­héraði og tilkynnti um 5 milljón króna styrk, án þess að umsókn hefði borist um styrkinn. Þegar Ríkis­endurskoðun gerði athuga­semdir við að forsætis­ráðherra úthlutaði einhliða styrkjum hingað og þangað ófaglega, og án ferla eða auglýsinga, var svar Sigmundar að senda yfir­lýsingu til fjölmiðla þar sem því var fagnað að hann hefði ekki gerst brotlegur við lög. „Úttektin stað­festir að forsætis­ráðuneytið fór að lögum,“ sagði í yfir­lýsingunni, en jafnframt var allri gagn­rýninni hafnað.

6Moskumálið

Eftir að fram­bjóðendur Framsóknar­flokksins gerðu það að kosninga­máli að leggjast gegn því að múslimar fengju að byggja mosku í Reykjavík þagði Sigmundur Davíð. Síðar, þegar hann tjáði sig, gagnrýndi hann þá sem gagnrýndu stefnu flokksins. „Þegar menn seilast svo langt að saka heilu hópana um kynþáttaníð að ósekju þá er það ekki bara alvarlegt mál fyrir þá sem fyrir því verða heldur fyrir samfélagið allt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár