Spyr Bjarna hvort Fjármálaeftirlitið hafi lagaheimildir til að rannsaka Bjarna

Þingmaður Viðreisnar hefur lagt fram fyrir­spurn til fjármála- og efnahags­ráðherra þar sem hún spyr meðal annars hvort hann telji að Fjármála­eftirlitið hafi heimildir til að rannsaka ákvarðanir og ábyrgð ráðherrans við banka­söluna.

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, og Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir, þing­maður Við­reisnar, og Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck/samsett

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugs­dóttir, þingmaður Viðreisnar, hefur lagt fram fyrir­spurn til Bjarna Benedikts­sonar, fjármála- og efnahags­ráðherra, um laga­heimildir Fjármála­eftirlits Seðla­banka Íslands (FME).

Í fyrir­spurninni, sem er í þremur liðum spyr hún Bjarna í fyrsta lagi hvort hann telji að FME hafi laga­heimildir til að rannsaka embættis­færslu fjármála- og efnahags­ráðherra, en hann fer með málefni eftirlitsins. Í öðru lagi vill hún fá að vita hvort eftir­litið hafi einhverjar heimildir til að rannsaka ákvarðanir og ábyrgð fjármála- og efnahags­ráðherra í tengslum við sölu á hlut ríkisins í Íslands­banka. Í þriðja lagi spyr Þorbjörg hvort FME hafi að lögum einhverjar heimildir til að rannsaka starfsemi Banka­sýslu ríkisins.

Skýrsla Ríkis­endur­skoðunar var birt fyrir viku síðan. Að mati stofn­un­ar­innar voru ann­markar sölu­ferl­is­ins fjöl­margir sem lúta bæði að und­ir­­­bún­­­ingi og fram­­­kvæmd söl­unn­­­ar. Þar segir meðal ann­­ars að ljóst megi vera að „orð­­­sporðs­á­hætta við sölu opin­berra eigna var van­­­metin fyrir sölu­­­ferlið 22. mars af Banka­­­sýslu rík­­­is­ins, fjár­­­­­mála- og efna­hags­ráðu­­­neyti og þing­­­nefndum sem um málið fjöll­uðu í aðdrag­anda söl­unn­­­ar.“ Hægt hefði, að mati Rík­is­end­ur­skoð­un­ar, verið hægt að fá hærra verð fyrir eign­ar­hlut rík­is­ins en ákveðið var að selja á lægra verði til að ná fram öðrum mark­miðum en lög­bundn­um. Þá hafi hug­lægt mat ráðið því hvernig fjár­festar voru flokk­að­ir, en útboðið var lokað með til­boðs­fyr­ir­komu­lagi og ein­ungis 207 fengu að kaupa hlut í því, sam­tals fyrir 52,65 millj­arða króna. Sölu­verðið var 4,1 prósent undir dagsloka­gengi bréfa í Íslands­banka.

Banka­sýslan hefur hafnað nán­ast allri gagn­rýni sem sett hefur verið fram á hana og sagt að skýrslan afhjúpi tak­mark­aða þekk­ingu Rík­is­end­ur­skoð­unar á við­fangs­efn­inu.

Ekki tæmandi rannsókn á sölunni

Í skýrsl­unni kemur fram að stjórn­sýslu­út­tektin sé ekki tæm­andi rann­sókn á söl­unni á Íslands­banka. Þar er ekki tekin afstaða til þess hvort rétt­mætt hafi verið að selja hlut rík­is­ins í bank­anum á þeim tíma sem það var gert eða til þeirra 207 aðila sem fengu að kaupa.

Þá er ekki tekin afstaða til þess hvort beita hafi átt annarri sölu­að­ferð né lagt mat á hvort vinnu­brögð umsjón­ar­að­ila sölu­ferl­is­ins, sölu­ráð­gjafa og sölu­að­ila, hafi verið í sam­ræmi við lög og gild­andi regl­ur. Þar með talið er hvort söl­unni hafi verið beint að öðrum en hæfum fjár­fest­um, en fyrir liggur að alls 59 aðilar fengu að kaupa fyrir minna 30 millj­­ónir króna í útboð­inu. „Það síð­ast­nefnda sætir eft­ir­liti Fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands,“ segir í skýrsl­unni en það hefur verið með ákveðna anga söl­unnar til rann­sókn­ar.

Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans er meðal ann­ars verið að skoða hluta­bréfa­við­skipti í aðdrag­anda útboðs­ins á tíma þar sem fjár­festar áttu ekki að vita að sala á hlut í Íslands­banka væri yfir­vof­and­i.

Stjórnarliðar vilja ekki rannsóknarnefnd

Fjöl­margir stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn köll­uðu í vor eftir því að skipuð yrði rann­sókn­ar­nefnd Alþingis til að fara yfir sölu­ferlið, en slík nefnd hefur víð­tæk­ari heim­ild­ir. Því var hafnað af stjórn­ar­flokk­unum en margir þing­menn þeirra sögðu að þeir myndu styðja skipun rann­sókn­ar­nefndar ef spurn­ingum væri ósvarað eftir að Rík­is­end­ur­skoðun lyki sinni vinnu.

Kröfur um skipun rann­sóknar­nefndar hafa verið endur­teknar eftir birtingu skýrslu Ríkis­endur­skoðunar, og þá sérstak­lega bent á þá fleti sem stofnunin telur sig ekki hafa laga­heimild til að svara. Meðal þess sem rann­sókn­ar­nefnd getur gert er að gefa álit sitt á stjórn­sýslu ráð­herra án þess að meta ábyrgð hans á grund­velli laga um ráð­herra­á­byrgð.

Engin stjórnar­þingmaður hefur stutt skipun rann­sóknar­nefndar eftir að skýrsla Ríkis­endur­skoðunar var birt og Katrín Jakobs­dóttir forr­sæt­is­ráð­herra hefur sagt að hún telji ekki ástæðu til að meta hvort skipa eigi rann­­sókn­­ar­­nefnd Alþingis til að fara yfir sölu­­ferlið fyrr en stjórn­­­skip­un­­ar- og eft­ir­lits­­nefnd hefur fjallað um skýrsl­una.

Talið er að Fjár­mála­eft­ir­litið muni opin­bera nið­ur­stöður rann­sóknar sinnar á sölu­ferl­inu í jan­ú­ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár