Ekki í fyrsta sinn sem ríkisbanki, Ríkisendurskoðun og Bankasýslan fara í hár saman

Fyrir rúmum sex árum gagn­rýndi Banka­sýsla rík­is­ins Lands­bank­ann harka­lega fyrir að hafa haldið illa á sölu­ferli á óbeinni rík­is­eign, meðal ann­ars fyrir að við­hafa lokað sölu­ferli og val á kaup­endum. Rík­is­end­ur­skoðun tók undir þá gagn­rýni.

Í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um söl­una á 22,5 pró­sent hlut íslenska rík­is­ins í Íslands­banka, sem birt var síð­ast­lið­inn mánu­dag, er Banka­sýsla rík­is­ins gagn­rýnt harð­lega fyrir það hvernig hún hélt á sölu­ferl­inu. Að mati hennar voru ann­markar þess fjöl­margir sem lúta bæði að und­ir­­bún­­ingi og fram­­kvæmd söl­unn­­ar. Þar segir meðal ann­ars að ljóst megi vera að „orð­­sporðs­á­hætta við sölu opin­berra eigna var van­­metin fyrir sölu­­ferlið 22. mars af Banka­­sýslu rík­­is­ins, fjár­­­mála- og efna­hags­ráðu­­neyti og þing­­nefndum sem um málið fjöll­uðu í aðdrag­anda söl­unn­­ar.“ Hægt hefði, að mati Rík­is­end­ur­skoð­unar, verið hægt að fá hærra verð fyrir eign­ar­hlut rík­is­ins en ákveðið var að selja á lægra verði til að ná fram öðrum mark­miðum en lög­bundnum. Þá hafi hug­lægt mat ráðið því hvernig fjár­festar voru flokk­aðir, en útboðið var lokað með til­boðs­fyr­ir­komu­lagi og ein­ungis 207 fengu að kaupa hlut í því, sam­tals fyrir 52,65 millj­arða króna.

Banka­sýslan hefur hafnað nán­ast öllum aðfinnslum Rík­is­end­ur­skoð­unar og telur sig ekki hafa gert neitt rangt. Þvert á móti telur stofn­unin að salan hafi gengið gríð­ar­lega vel og nið­ur­staðan verið góð. Í til­kynn­ingu sem Banka­sýslan sendi frá sér á mánu­dag sagði í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar væru ábend­ingar um atriði í und­ir­bún­ingi og fram­kvæmd söl­unnar sem að mati stofn­un­ar­innar hefðu betur mátt fara. „Banka­sýsla rík­is­ins er ósam­mála Rík­is­end­ur­skoðun um flest þessi atriði sem sum hver afhjúpa tak­mark­aða þekk­ingu stofn­un­ar­innar á við­fangs­efn­in­u.“ Á mið­viku­dag birti Banka­sýslan svo ítar­legar athuga­semdir sínar við skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar á 46 blað­síðum, en skýrslan sjálf er 72 blað­síður.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Rík­is­end­ur­skoðun, rík­is­banki og Banka­sýsla rík­is­ins fara í hár saman. Það gerðu þessir aðilar líka á árinu 2016 í tengslum við sölu Lands­bank­ans, sem er að öllu leyti í eigu rík­is­ins, á hlut sínum í greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Borgun. Þá rann­sak­aði Rík­is­end­ur­skoðun sölu­ferlið og skil­aði svartri nið­ur­stöðu um það. Áður hafði Banka­sýslan, sem fer með eign­ar­hlut rík­is­ins í Lands­bank­anum, fellt áfelli yfir sölu­ferl­inu í bréfi til banka­ráðs bank­ans.

Þar hafn­aði hún nær öllum rök­semd­ar­færslum sem Lands­bank­inn hafði teflt fram sér til varnar í Borg­un­ar­mál­inu og sagði að svör Lands­bank­ans við þeirri gagn­rýni sem ­sett hefur verið fram á fram­göngu hans hafi „ekki verið sann­fær­and­i“.

Banka­sýslan gagn­rýndi til að mynda rök­stuðn­ing bank­ans fyr­ir­ því að selja hlut­inn í lok­uðu sölu­ferli, verk­lag við samn­ings­gerð, mál­flutn­ing hans um mein­tan sölu­þrýst­ing frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu, verð­mat á eign­ar­hlutn­um í Borgun og að Lands­bank­inn hafi komið sér í þá stöðu að eini við­semj­andi hans hafi verið hópur fjár­festa sem inni­hélt meðal ann­ars stjórn­endur Borg­un­ar.

Gagn­rýnin kost­aði banka­stjóra Lands­bank­ans starfið í lok árs 2016.

Selt bak við luktar dyr

Lands­bank­inn seld­i 31,2 pró­sent hlut sinn í greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Borgun, sem í dag heitir Salt Pay, til félags í eigu stjórn­enda fyr­ir­tæk­is­ins og ­með­fjár­festa þeirra þann 25. nóv­em­ber 2014 fyrir 2,2 millj­arða króna. Félagið hét Eign­ar­halds­fé­lagið Borgun.

Fjár­festa­hóp­ur­inn ­gerði fyrst til­boð í hlut­inn í mars 2014. Hlutur Lands­bank­ans, sem er að mest­u í rík­i­s­eigu, var ekki seldur í opnu sölu­ferli. Öðrum mögu­lega áhuga­söm­um ­kaup­endum bauðst því ekki að bjóða í hlut­inn. Kjarn­inn upp­lýsti um það þann 27. nóv­em­ber 2014 hverjir hefðu verið í fjár­festa­hópnum og hvernig salan hefð­i ­gengið fyrir sig. Á meðal þeirra var, auk gömlu stjórn­enda Borg­unnar, félag í eigu Einars Sveins­sonar, föð­ur­bróðir Bjarna Bene­dikts­son­ar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, gamla útgerð­ar­fyr­ir­tækið Stálskip og félagið Þrír stærstu aðil­­­arnir sem stóðu að Eign­­­ar­halds­­­­­fé­lag­inu Borgun voru gamla útgerð­­­ar­­­fyr­ir­tækið Stál­­­skip og félagið Pétur Stef­áns­­­son ehf. (Í eigu Pét­­­urs Stef­áns­­­son­­­ar).

Miðað við hefð­bundna mæli­kvarða sem fjár­festar styðj­ast við í fjár­fest­ingum þótti verð­ið lágt, hvort sem miðað er við fyr­ir­tæki erlendis eða skráð fyr­ir­tæki á Íslandi.

Falin verðmæti

Fljót­lega vökn­uðu grun­semdir um að Borgun væri mun verð­mæt­ara fyr­ir­tæki en árs­reikn­ingar þess gáfu til kynna, sér­stak­lega vegna þess að á meðal eigna Borg­unar var hlutur í Vísa Europe, sem var keyptur af Visa Inc. skömmu eftir að kaupin gengu í gegn. Þessi eign­­­ar­hlutur var marga millj­­­arða króna virði en hafði ekki verið metin þannig við söl­una á eign­­­ar­hlut Lands­­­bank­ans. Enn fremur var ekki gerður neinn fyr­ir­vari í kaup­­­­samn­ingnum um við­­­­bót­­­­ar­greiðslur vegna val­réttar Borg­unar vegna mög­u­­­­legrar sölu Visa Europe til Visa Inc., en slíkur fyr­ir­vari var til að mynda verið gerður þegar Arion banki keypti hlut Lands­bank­ans í öðru greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tæki sem átti hlut í Visa Europe, Valitor. Árið 2020 var Borgun svo selt til Salt Pay. Hlutur Eign­ar­halds­fé­lags­ins Borgunar er tal­inn hafa verið um 1,3 millj­arða króna. For­gangs­hluta­bréf í Visa Inc fylgdu ekki með í söl­unni heldur voru færð yfir í annað félag. Virði þeirra um mitt ár í fyrra var 3,1 millj­arður króna.

Eign­ar­halds­fé­lagið Borgun tvö­fald­aði því fjár­fest­ingu sína í Borgun á tæpum sex árum með arð­greiðsl­um, söl­unni til Salt Pay og með því að fá bréfi í félagi sem heldur á bréfum í Visa Inc.

Bankastjórinn missti starfið

Í nóv­­em­ber 2016 birti Rík­­­is­end­­­ur­­­skoð­un skýrslu um fjöl­margar eigna­­­sölur Lands­­bank­ans á árunum 2010 til 2016 og gagn­rýndi þær harð­­­lega. Á meðal þeirra var salan á hlut í Borg­un. Tíu dögum síðar var Stein­þóri Páls­­syni, banka­­stjóra Lands­­bank­ans, sagt upp störf­­um. Hann starfar nú sem milli­göngu­að­ili fyrir hönd fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins til að reyna að finna lausn milli eig­enda krafna á ÍL-sjóð og rík­is­sjóðs um hvernig sé hægt að slíta þeim sjóði.

Sú ákvörðun að segja Stein­þóri upp störfum var rakin beint til Borg­un­ar­máls­ins og sér­stak­lega skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar. Nokkrum vikum síð­ar, í jan­úar 2017, höfð­aði Lands­bank­inn mál gegn Borgun hf., þáver­andi for­­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins, BPS ehf. og Eign­­ar­halds­­­fé­lag­inu Borgun slf. Bank­inn taldi sig blekktan og hlunn­far­inn við söl­una á hlut sínum í Borgun og vill fá 1,9 millj­arða króna greiddar frá stefndu auk vaxta.

Steinþór Pálsson, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans. Mynd: Aðsend
Steinþór Pálsson, fyrr­ver­andi banka­stjóri Lands­bank­ans. Mynd: Aðsend

Nú, næstum sex árum síðar, hefur aðal­með­ferð enn ekki farið fram, og hefur frest­ast mörgum sinnum. Í nýjasta árs­reikn­ingi Lands­bank­ans kemur fram að hún verði í jan­úar 2023.

Bankasýslan sagði að fagleg ásýnd hefði beðið hnekki

Áður en Rík­is­end­ur­skoðun birti svarta nið­ur­stöðu sína um Borg­un­ar­söl­una hafði Banka­sýsla rík­is­ins, sem fer með eign­ar­hlut rík­is­ins í Lands­bank­anum, beitt sér hart í mál­inu. Hún sendi banka­ráði Lands­bank­ans bréf í jan­úar 2016 og óskaði eftir upp­lýs­ingum um söl­una. Banka­ráðið svar­aði í febr­úar með 126 blað­síðna bréfi þar sem það bar af sér allar sakir og benti á að bank­inn hefði farið þess á leit við Rík­is­end­ur­skoðun að stofn­unin skoð­aði sölu bank­ans á eign­ar­hlutum í Borgun.

Banka­sýslan svar­aði í ítar­legu svar­bréfi í mars 2016. Þar hafn­aði hún nær öllum rök­semd­ar­færslum sem Lands­bank­inn hafði teflt fram sér til varnar í Borg­un­ar­mál­inu og sagði að svör Lands­bank­ans við þeirri gagn­rýni sem ­sett hefur verið fram á fram­göngu hans hafi „ekki verið sann­fær­and­i“.

Banka­sýslan gagn­rýndi rök­stuðn­ing bank­ans fyr­ir­ því að selja hlut­inn í lok­uðu sölu­ferli, verk­lag við samn­ings­gerð, mál­flutn­ing hans um mein­tan sölu­þrýst­ing frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu, verð­mat á eign­ar­hlutn­um í Borgun og að Lands­bank­inn hafi komið sér í þá stöðu að eini við­semj­andi hans hafi verið hópur fjár­festa sem inni­hélt meðal ann­ars stjórn­endur Borg­un­ar.

Nið­ur­staða Banka­sýsl­unnar var sú að sölu­með­ferðin hefði varpað veru­legum skugga á árang­ur Lands­bank­ans og að fag­leg ásýnd bank­ans og stjórn­enda hans hafi beðið hnekki. Af þeim sökum taldi Banka­sýsla rík­is­ins að banka­ráð Lands­bank­ans yrði að grípa til „við­eig­andi ráð­staf­ana til að end­ur­heimta það ­traust sem bank­inn tap­aði vegna sölu­með­ferð­ar­inn­ar. Fer stofn­unin fram á að hlut­höfum í Lands­bank­anum hf. verði hið fyrsta gerð grein fyrir því með hvaða hætti banka­ráðið telur rétt að bregð­ast við og ekki siðar en tveimur vik­um ­fyrir aðal­fund sem fram fer þann 14. apríl nk."

Í des­em­ber 2016 var, líkt og áður sagði, banka­stjóra Lands­bank­ans sagt upp störfum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár