Ríkisendurskoðun gagnrýnir fjölmargar sölur Landsbankans

Rík­is­end­ur­skoðun gerir fjöl­margar athuga­semdir við það hvernig Lands­bank­inn hefur staðið að sölu á fjöl­mörgum eignum sínum árin 2010 til 2016, einna helst Vestia, Icelandic Group, Promens, Fram­taks­sjóði Íslands, IEI, Borgun og Valitor. „Allar þessar sölur fóru fram í lok­uðu ferli og í sumum til­vikum fékkst lík­lega lægra verð fyrir eign­ar­hlut­ina en vænta mátti miðað við verð­mætin sem þeir geymdu,“ segir Rík­is­end­ur­skoðun í nýrri skýrslu sinni.

Vinnu­brögð bank­ans við söl­una á 31,2% hlut í greiðslu­korta­fyr­ir­tæk­inu Borgun hafa verið harð­lega gagn­rýnd, enda var hlut­ur­inn seldur í lok­uðu ferli árið 2014 og vís­bend­ingar voru strax um að það hefði verið gert á lægra verði en eðli­legt hefði mátt þykja. Rík­is­end­ur­skoðun segir að bank­inn hafi haft nægan tíma til að kynna sér starf­semi Borgunar auk þess sem tími hefði verið til að hafa sölu­ferlið opið.

Bankinn hafi auk þess ekki gætt að hugs­an­legum verð­mætum sem fylgdu hlutnum, sem var hlut­deild í fjár­munum sem fyr­ir­tækið sékk þegar Visa Inc. tók yfir Visa Europe. Það voru 6,2 millj­arðar króna. Starfs­menn Lands­bank­ans sem komu að söl­unni á Borgun vissu af þessu, og bank­inn vissi frá því í jan­úar 2013 að það voru veru­leg verð­mæti fólgin í þessu. Sér­fræð­ingar bank­ans um greiðslu­korta­við­skipti upp­lýstu banka­ráðið á fundi í jan­úar 2013 um mögu­legan hagnað Valitors af val­rétt­inum, en full­trúar bank­ans segj­ast ekki hafa vitað að Borgun væri aðili að Visa Europe líka. Þetta gagn­rýnir Rík­is­end­ur­skoðun og segir að aðild Borgunar að Visa Europe hafi staðið frá árinu 2010 og hafi verið for­senda þess að fyr­ir­tækið var með færslu­hirð­ingu vegna Visa­korta.

Rík­is­end­ur­skoðun segir að greiðslu­korta­sér­fræð­ingar Lands­bank­ans hafi ekki átt hlut að máli þegar hlut­ur­inn í Borgun var seldur, þar sem ekki var leitað til þeirra. Þá hefði bank­inn getað fengið vit­neskju um þetta ef gerð hefði verið áreið­an­leika­könnun upp úr gögn­unum sem bank­anum stóð til boða í gagna­her­bergi. Það hefði að mati Rík­is­end­ur­skoð­unar verið eðli­legur hluti af sölu­ferl­inu.

Ein þeirra ábend­inga sem Rík­is­end­ur­skoðun beinir til bank­ans er að hann verði að grípa til ráð­staf­ana til að end­ur­reisa orð­spor sitt. Trú­verð­ug­leika bank­ans hafi verið stefnt í hættu með verk­lagi við sölu á verð­mætum eignum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár