Theodóra: Sorglegt hvernig lögð er „ofuráhersla“ á að Bjarni hafi setið á skýrslunni

Þing­flokks­formaður Bjartrar framtíðar segir að fólk sé enn að drukkna í skulda­feni vegna mistaka Samfylk­ing­ar­innar og að fyrirtæki hafi verið rekin í gjaldþrot með ólögmætum hætti. Hún kallar eftir allsherjar­uppgjöri við stefnu vinstri­stjórnarinnar í skulda­málum heimila og fyrir­tækja.

Theodóra S. Þorsteins­dóttir, þing­flokks­formaður Bjartrar framtíðar, gagnrýnir þingmenn stjórnar­andstöðunnar fyrir að „leggja ofuráherslu á hvort“ Bjarni Benediktsson fyrr­verandi fjármála­ráðherra hafi setið á skýrslunni um skiptingu höfuðstóls­lækkunar húsnæðis­lána fram yfir kosningar. 

Þetta kemur fram í stöðu­uppfærslu sem hún birti á Facebook í dag. Eins og greint var frá fyrr í mánuðinum voru lokadrög að skýrslu um skiptingu leið­réttingarinnar milli þjóð­félagshópa tilbúin í júní 2016 og vinnslu við hana lokið fyrir kosningar í október 2016. Hún var hins vegar ekki birt fyrr en 18. janúar síðastliðinn að frumkvæði Benedikts Jóhannessonar, nýs fjármála- og efnahags­ráðherra. Skýrslan varpar ljósi á það hvernig stór hluti af þeim fjármunum sem varið var til höfuðstóls­lækkunar verð­tryggðra húsnæðis­lána á síðasta kjör­tímabili rann til stóreigna­fólks.

Theodóra telur að sömu aðilar og gagnrýna Bjarna Benediktsson fyrir að hafa setið á skýrslunni fram yfir kosningar – en slík gagnrýni hefur einkum heyrst frá þing­mönnum Vinstri grænna, Pírata og Samfylkingarinnar – séu þannig að „komast hjá því“ að ræða um innihald skýrslunnar. Hún kallar eftir uppgjöri við þá stefnu sem rekin var í stjórnartíð Samfylkingarinnar og Vinstri grænna að því er varðar skuldamál heimila og fyrir­tækja. 

„Sorglegt að horfa upp á þá sem kusu með leið­réttingunni eða sátu hjá komast hjá því að ræða innihald skýrslunnar og leggja ofuráherslu á hvort ráðherra hafi setið á henni yfir kosningar,“ skrifar Theodóra. Nær allir þingmenn Vinstri grænna, Samfylkingarinnar og Pírata greiddu atkvæði gegn frumvarpi um höfuðstóls­lækkun verð­tryggðra húsnæðis­lána árið 2014 en Framsóknar­flokkinn, sem nú er í stjórnar­andstöðu, stóð að málinu ásamt Sjálfstæðis­flokknum. 

Theodóra vitnar í bréf Árna Páls Árnasonar, fyrr­verandi formanns Samfylkingarinnar, til flokks­systkina þar sem hann sagði Samfylkinguna hafa tekið að sér „í of ríkum mæli að útskýra fyrir fólki að það ætti að borga skuldir sínar“ í stað þess að taka sér „stöðu með fólki gegn fjármála­kerfi“. 

Theodóra fullyrðir að Samfylkingin hafi enn tækifæri til „að leiðrétta þessi mistök“. Hún skrifar: „Fólk er enn að drukkna í skuldar­feni [sic] og það er óuppgert tjón hundruða heimila vegna nákvæmlega þessara mistaka sem Samfylkingin gerði. Væri fallegt að sjá Vinstri græna fara í sambærilega innri skoðun og jafnvel fleiri flokka. Þar fyrir utan þurfum við uppgjör á þeim úrræðum sem flokkarnir buðu upp á eftir banka­hrunið. Ein skýrsla um "Leið­réttinguna" dugar ekki. Sorglegt að horfa upp á þá sem kusu með leið­réttingunni eða sátu hjá komast hjá því að ræða innihald skýrslunar [sic] og leggja ofuráherslu á hvort ráðherra hafi setið á henni yfir kosningar. Skýrsla um þau fyrirtæki sem rekin voru í gjaldþrot með ólögmætum hætti væri gagnleg, heildar­skýrsla um öll þau úrræði sem í boði voru er nauðsynleg.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár