Starfsmenn 365 ávíttir fyrir að hafa ekki þagað um framkomu forsætisráðherra

„Uppákoma sem varð hér innanhúss um helgina rataði í frétt á DV, sem er fjarri því að vera í lagi,“ segir í tölvu­pósti aðstoðar­ritstjóra til starfs­manna 365.

Hrund Þórs­dóttir, aðstoðar­ritstjóri frétta­stofu 365, telur að starfs­menn á fjöl­miðlinum hafi rofið trúnað við forsætis­ráðherra með því að greina blaða­mönnum DV og Stundarinnar frá bræðis­kasti sem hann er sagður hafa tekið á ritstjórnar­gólfinu. Þetta kemur fram í tölvu­pósti Hrundar til starfs­manna á 365 miðlum. 

DV greindi frá því í gær að Bjarni Benediktsson forsætis­ráðherra hefði „tryllst á ritstjórn 365-miðla“ og að „tryllt öskur“ hefðu ómað um vinnu­staðinn.

Frétt DV er í grófum dráttum í samræmi við frásögn heimildar­manna Stundarinnar sem urðu vitni að atvikinu. 

Samkvæmt heimildum Stundarinnar var framkoma Bjarna viðhöfð í opnu rými og án þess að óskað hefði verið sérstaks trúnaðar um samskiptin.

Að því er fram kemur í tölvu­póstinum sem starfs­mönnum barst í morgun og Stundin hefur undir höndum er litið svo á að starfs­menn hefðu átt að þegja um framkomu forsætis­ráðherra. Er vísað til atviksins sem „uppákomu sem varð hér innanhúss“. 

„Ég sendi þennan póst til að ítreka mikilvægi þess að starfs­menn hér á hæðinni haldi trúnað við frétta­stofuna og samstarfs­fólk sitt. Uppákoma sem varð hér innanhúss um helgina rataði í frétt á DV, sem er fjarri því að vera í lagi,“ segir í tölvu­póstinum. 

Aðstoðar­ritstjórinn vitnar í 1. gr. siða­reglna Blaðamanna­félags Íslands, en þar stendur: Blaða­maður leitast við að gera ekkert það, sem til vanvirðu má telja fyrir stétt sína eða stéttar­félag, blað eða frétta­stofu. Honum ber að forðast hvaðeina sem rýrt gæti álit almennings á starfi blaða­manns eða skert hagsmuni stéttarinnar. Blaða­maður skal jafnan sýna drengskap í skiptum sínum við starfs­félaga.

„Þetta er lykil­atriði í starfi okkar og má aldrei klikka“

„Fólk sem hér vinnur, og ekki síður viðmælendur og aðrir sem eigi erindi inn á ritstjórnar­skrif­stofuna, VERÐA að geta treyst því að hér ríki trúnaður. Þetta er lykil­atriði í starfi okkar og má aldrei klikka. Það sem gerist á frétta­stofunni fer ekki út fyrir frétta­stofuna. Höfum þetta alltaf í huga,“ segir í tölvu­pósti Hrundar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár