„Íslamska ríkið“ braust inn á Njáluslóðir

Vefsíðan njala.is hökkuð af aðila sem segist vera ISIS

Aðilar sem segjast vera á vegum íslamska ríkisins, ISIS, hafa brotist inn á vefsíðu Sögu­setursins á Hvols­velli, sem er tileinkuð Brennu-Njáls sögu. 

Á vefslóðinni njala.is mátti sjá skilaboð frá hópnum eða aðilanum sem er að baki innbrotinu: „Hakkaður af Íslamska ríkinu. Við erum alls staðar.“

Íslamska ríkið á Njáluslóðum
Íslamska ríkið á Njálu­slóðum „Hakkað af Íslamska ríkinu“, segir nú á vefsíðu Sögu­setursins á Hvols­velli.

Hluti af árás á heimsvísu

Á síðunni var auk þess birtur fáni Íslamska ríkisins, með áletruðum skila­boðum á arabísku: „Það er enginn Guð, nema Guð.“ Þegar farið var inn á njala.is hljómaði arabískt lag, svokallað „nasheed“. Nú hafa skemmdirnar á síðunni verið lagfærðar.

Skemmdar­verkin á njala.is eru hluti af víðtækri tölvuárás sömu aðila um allan heim um helgina. Fyrirtæki, brugg­verksmiðjur, dýra­garður, veitinga­staðir, hótel og fleira hafa orðið fyrir barðinu á þeim. Í skila­boðunum frá ISIS var vísað á slóð yfir á Facebook-síðu með lista yfir vefsíður um allan heim sem höfðu verið hakkaðar. Þeirri Facebook-síðu hefur nú verið lokað.

Undan­farna mánuði hefur Íslamska ríkið, eða fylgis­menn þess, staðið fyrir vef-jihad, eða „heilögu stríði“ á vefnum, sem hefur beinst gegn kirkjum, bandaríska ríkinu og fleiri aðilum.

Boða píslarvætti með myndum af íslenskri náttúru

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem fréttir af herskáum íslamistum tengist Íslandi. Síðasta haust kom á daginn að ISIS væri með skráð lén á Íslandi, en því var lokað í kjölfarið af ákvörðun ISNIC, sem sér um útleigu íslenskra vefslóða. Var það í fyrsta sinn sem ISNIC lokaði vefsvæði vegna innihalds efnis á síðunni. 

Ekki er líklegt að árásin á Njálu­slóðir tengist þeim aðgerðum.

Þá er eitt vinsælasta mynd­bandið á Youtube, sem hefur skírskotun til heilags stríðs, lagið Hermenn Allah spilað yfir mynd­skeiðum af íslenskri náttúru. Yfir tvær milljónir manna hafa horft á mynd­bandið. Þar er heitið á hermenn Allah og fagnað deginum sem píslar­vætti verður náð.

Ákall til hermanna Allah
Ákall til hermanna Allah Yfir mynd­skeiðum af íslenskri náttúru er sungið: „Við sækjum fram sem hermenn, brjótum óvininn undir okkur, með Kóran Drottins sem uppsprettu.“

Reynisdrangar
Reynis­drangar „Fram að orustunni... við svörum kallinu, snúum aftur sem hermenn.“

Neskaupstaður
Neskaupstaður „Og það fyllir okkur nýrri fullvissu um að dagur píslarvættisins sé stórfeng­legur sigur.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár