Hvað á að gera við ofurkornið?

Hrærð egg með beikoni, korni og sveppum. Nanna Rögnvaldar kennir okkur á kornið og gefur okkur uppskriftir með girni­legum réttum sem innihalda kínóa, farró, hirsi, hveiti­korn, amaranth, bókhveiti, bulgur eða bygg.

Á seinustu árum hafa ýmsar korn­tegundir, sem áður var erfitt eða alls ekki hægt að fá hérlendis, orðið æ algengari; það eru ekki bara trjá­faðmandi hippar og aðrir furðu­fuglar sem kaupa þær og elda – nei, heilsu­bylgjan hefur gert það að verkum að heilkorn og ýmsar óvenjulegar korn­tegundir eru allt í einu kúl og það er eiginlega engin kona með konum nema hún fái sér bygg­grjónagraut í morgun­matinn og kínóa­salat í hádeginu eða kunni að minnsta kosti að búa til tabbouleh. Og það er auðvitað hið besta mál því þótt þetta sé kannski ekki það ofurkorn sem sumir vilja vera láta er flest af þessu afbragðs­gott hollmeti sem einnig skapar aukna fjöl­breytni í matar­gerðinni.

Svo er það nátt­úrlega glúten­ógnin ógurlega, lágkolvetna­lífs­stíllinn og paleomataræðið. Allt þetta hefur gert að verkum að margir eru farnir að leita í tegundir sem voru nánast alveg gleymdar eða ekki þekktar nema í afkimum heimsins …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár