Ísland studdi ályktun gegn Bandaríkjunum

Yfir­gnæfandi meirihluti aðildar­ríkja Sameinuðu þjóðanna.

Yfir­gnæfandi meirihluti aðildar­ríkja Sameinuðu þjóðanna samþykkti ályktun sem fordæmir ákvörðun Trump Bandaríkja­forseta um að viðurkenna Jerúsalem sem höfuðborg Ísraels.

Ísland studdi ályktunina að því er fram kemur á vef RÚV.

Samtals stóðu 128 þjóðir að ályktuninni en það voru Egyptar sem kölluðu eftir því að atkvæði yrðu greidd um hana á allsherjar­þinginu. Níu þjóðir greiddu atkvæði gegn henni, að Banda­ríkjunum meðtöldum, og 35 þjóðir kusu að sitja hjá.

Umræður um ályktunina standa enn.

Banda­ríkin höfðu áður beitt neitunar­valdi á vettvangi Öryggis­ráðs Sameinuðu þjóðanna, en 14 af 15 ríkjum, þar sem Banda­ríkin voru alveg einangruðu, ályktuðu gegn ákvörðun Banda­ríkjanna um að viðurkenna Jerúsalem sem höfuðborg Ísraels og færa þangað sendiráð landsins.

Eins og greint var frá í frétta­skýringu á vef Kjarnans í gær, þá sendi Nikki Haley, sendi­herra Banda­ríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, ýmsum aðildar­ríkjum Sameinuðu þjóðanna bréf þar sem tekið var fram að Donald Trump Bandaríkja­forseti myndi fylgjast með því hvaða þjóðir myndi ekki styðja ákvörðun Banda­ríkjanna. Var tekið fram í bréfinu að því yrði tekið „persónu­lega“ ef ákvörðun Banda­ríkjanna nyti ekki stuðnings.

Þjóðirnar sem greiddu atkvæði gegn ályktuninni gegn ákvörðun Banda­ríkjanna, voru, auk Banda­ríkjanna: Gvatemala, Hondúras, Ísrael, Marshall-eyjar, Míkrónesía, Nárú, Palá og Tógó, að því er fram kemur á vef RÚV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár