Trump segist allt í einu „æfur“ út í þá sem hann sagðist elska á miðvikudag

Bandaríkja­forseti las upp ræðu að kvöldi fimmtudags og sagðist „æfur“ út í ofbeldið sem fólst í árásinni á þingið á miðvikudag, þrátt fyrir að hafa áður sagst elska þá sem að henni stóðu. Einnig viðurkenndi forsetinn að ný stjórn tekur við 20. janúar.

Donald Trump Bandaríkjaforseti. Mynd úr safni.
Donald Trump Banda­ríkja­for­seti. Mynd úr safni. Mynd: EPA

Donald Trump Bandaríkja­forseti birti ávarp á Twitter-síðu sinni, sem hann hefur nú aftur fengið aðgang að, þegar klukkan var að ganga eitt um nótt að íslenskum tíma.

Ávarpið var gjörólíkt því sem hann birti að kvöldi miðvikudags, eftir að stuðnings­menn hans höfðu ruðst inn í húsakynni Banda­ríkjaþings. Þá sagði hann: „Við elskum ykkur.“

„Eins og allir Bandaríkja­menn er ég æfur yfir ofbeldinu, lögleysunni og glundroðanum,“ sagði Trump í kvöld og hélt því síðan fram, þvert á það sem rétt og satt er, að hann hefði samstundis sent þjóð­varðliða og alríkis­lögreglu­menn til að koma böndum yfir ástandið.

Fjöl­miðlar vestanhafs hafa greint frá því að hann hafi beitt sér gegn því að þjóð­varðliðið yrði kallað út til þess að yfirbuga múginn sem hafði brotið sér leið í gegnum veikar varnir lögreglu­liðsins á Kapitóluhæð.

Viðurkenndi ósigur

Í ávarpinu viðurkenndi Trump að ný stjórn myndi taka við í Banda­ríkjunum 20. janúar næst­komandi, en þá mun Joe Biden sverja embættiseið sinn.

Hann kallaði eftir því að ró myndi færast yfir bandarískt þjóðlíf og sagðist ætla að beita sér fyrir því að valda­skiptin myndu ganga vel fyrir sig – þó að hann teldi úrslit kosninganna ekki réttlát.

Trump sagði að það væri búið að vera mesti heiður lífs hans að þjóna Banda­ríkjunum sem forseti.

Wall Street Journal – og fleiri – kalla eftir afsögn Trump

Teymið sem Donald Trump hefur haft í kringum sig undan­farin ár splundraðist í sundur eftir atburði miðvikudagins og fjölmargir hátt­settir ráðamenn í stjórn hans hafa sagt af sér.

Fregnir hafa borist af því að rætt sé um það í fúlustu alvöru á meðal ráðherra­liðsins að beita 25. grein stjórnar­skrár Banda­ríkjanna til þess að leysa hann frá störfum – og kallað hefur verið eftir afsögn forsetans úr ýmsum áttum.

Til dæmis kallar ritnefnd Wall Street Journal eftir afsögn forsetans, í grein sem birtist á fimmtudags­kvöld. „Það er best fyrir alla, hann sjálfan meðtalinn, ef hann lætur sig hverfa hljóðlega,“ segir ritnefndin í greininni.

Leiðtogar Demókrata­flokksins á Banda­ríkjaþingi hafa lýst því yfir að þeir hyggist ákæra Trump til embættis­missis, ef ráðherrar hans víki honum ekki úr embætti.

Ritnefnd Wall Street Journal vonast til þess bandarísku þjóðinni verði hlíft við slíkum æfingum, á síðustu 13 dögum storma­samrar forseta­tíðar Donalds Trump.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár