„Það virðist full ástæða til viðbragða“

Upplýsinga­fulltrúi Umhverfis­stofnunar segir að þó hann þekki ekki forsendur texta­gerðar á upplýsinga­skilti um Sigríði í Brattholti við Gullfoss, þar sem afreka hennar í náttúru­vernd er hvergi getið, „virðist full ástæða til viðbragða“.

Sigríður Tómasdóttir í Brattholti er sögð hafa hótað að henda sér í Gullfoss yrði hann virkjaður.
Sigríður Tóm­as­dóttir í Bratt­holti er sögð hafa hótað að henda sér í Gullfoss yrði hann virkj­aður. Mynd: OPalsson

Ingibjörg Sólrún Gísla­dóttir, fyrr­verandi ráðherra, segist ekki geta orða bundist eftir að hafa séð texta á upplýsinga­skilti Umhverfis­stofnunar um Sigríði Tómasdóttur í Brattholti. Sigríður, sem fæddist árið 1871 og lést 1957, er þjóðþekkt kona fyrir framtak sitt til verndunar Gullfoss og annarra fossa, en hún barðist af einurð gegn áformum um virkjun fossins og var braut­ryðjandi á sviði náttúru­verndar. Þess er þó hvergi getið á upplýsinga­skilti sem stendur við fossinn og er á fjórum tungu­málum. Þar kemur hins vegar fram að Sigríður hafi verið meðalkona á hæð, nokkuð þrekin, þótt fríð sýnum „á yngri árum“ og hafði „mikið og fagurt ljóst hár“.

„Það er margt vont við þennan texta en það versta er að þarna er ekki orð um baráttu Sigríðar gegn virkjun Gullfoss og hvernig hún opnaði augu almennings fyrir gildi og fegurð Gullfoss og mikilvægi hans og annarra ósnortinna náttúru­perla,“ skrifaði Ingibjörg Sólrún á Facebook-síðu sína í gær. „Ég get heldur ekki ímyndað mér annað en að útlendingar sem lesa þennan texta hljóti að velta fyrir sér hvað þeim komi þessi kona við sem vann sér það helst til frægðar að fylgja ferða­mönnum að fossinum! Getur Umhverfis­stofnun ekki lagfært þennan texta?“

Kjarninn hafði samband við Björn Þorláksson, upplýsinga­fulltrúa Umhverfis­stofnunar, sem sagðist hafa séð textann á skiltinu í fyrsta skipti í gærkvöldi. „Ýmsar spurningar kvikna. Fyrsta skref er að fá botn í forsendurnar fyrir texta­gerðinni. Án frekari skoðunar væri óvarlegt að hrapa að ályktunum en það virðist full ástæða til viðbragða.“

Ein af hetjum Íslandssögunnar

Guðmundur Andri Thorsson, þingmaður Samfylkingarinnar, bendir á að Sigríður í Brattholti sé konan sem „bjargaði Gullfossi undan virkjana­áformum“. Fyrir vikið sé hún sterkasta táknmynd náttúru­verndar hér á landi. „Hún er ein af hetjum Íslands­sögunnar. Það að strika út þennan þátt úr ævi hennar í kynningu á henni jafn­gildir því að fjarlægja styttuna af Jóni Sigurðs­syni af Austur­velli eða fjalla um Skúla Magnússon án þess að nefna Innréttingarnar,“ skrifar Guðmundur Andri á Facebook í morgun.

„Sumir hægri menn hafa ógurlegar áhyggjur af kalla­styttum í Banda­ríkjunum og telja það jafngilda sósíal­ískri byltingu að fjarlægja slíkar tákn­myndir sigra og meintra afreka. Skiltið með útlits­lýsingunum á Sigríði í Brattholti, þar sem náttúru­verndin er feimnismál, er miklu nærtækara dæmi um hið hljóðláta styttu­stríð á hendur merkum konum í sögu okkar sem fer fram án þess að við tökum eftir því.“

Barátta sem tók á sig ævintýrablæ

Í ítarlegri grein Eyrúnar Inga­dóttur sagn­fræðings, um baráttu Sigríðar í Lesbók Morgun­blaðsins árið 1994, er rifjað upp að um aldamótin 1900 hafi Gullfoss verið leigður til 150 ára er kaup­sýslumenn voru í óða önn að tryggja sér rétt yfir fossum þegar virkjunar­framkvæmdir hæfust.

Annar eiganda fossins, Tómas Tómasson í Brattholti, fékk bakþanka og upp frá því hófust málaferli þar sem hann reyndi að fá samninginn ógiltan. „Dóttir Tómasar, Sigríður, lagði á sig ómælt erfiði til þess að það tækist þau sex ár sem mála­ferlin stóðu. Þegar dómur féll í málinu, Brattholts­feðginum í óhag, hótaði hún að henda sér í fossinn þegar fyrsta skóflu­stungan yrði tekin vegna virkjunar­framkvæmda,“ segir í grein Eyrúnar.

Nokkrum árum síðar gekk þó leigu­samningurinn til baka og Gullfoss var aldrei virkjaður og er eins og allir vita ein þekktasta náttúru­perla Íslands í dag. „Barátta Sigríðar fyrir fossinum tók á sig ævintýrablæ og varð hún vel þekkt vegna þessa,“ segir í greininni í Lesbókinni. „Almenningur dáðist að átthagaást og áræði sveita­konunnar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár