Dagur hafnar samstarfi við Sjálfstæðisflokk og Miðflokk

Samfylkingin getur ekki unnið með flokkum í borgar­stjórn sem hafna uppbyggingu Borgar­línu. Dagur B. Eggertsson segir þá sem það gera ekki hafa sett fram neinar aðrar raunhæfar lausnir í samgöngu­málum

Útilokar Sjálfstæðisflokk og Miðflokk
Útilokar Sjálf­stæð­is­flokk og Miðflokk Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri og odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar, seg­ist ekki geta unnið með Sjálf­stæð­is­flokki og Mið­flokki í borg­ar­stjórn Reykja­víkur. Flokk­arnir hafni upp­bygg­ingu Borg­ar­línu og það geti Sam­fylk­ingin ekki sætt sig við. Mynd: PressPhotos

Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í borginni, hafnar samstarfi við Sjálfstæðis­flokkinn og Miðflokkinn í borgar­stjórn. Helsta áherslumál Samfylkingarinnar sé uppbygging Borgar­línu á höfuð­borgar­svæðinu en flokkarnir tveir hafa lýst sig andvíga þeirri uppbyggingu. Af þeim sökum geti Samfylkingin ekki starfað með þeim.

Þetta kemur fram í úttekt Stundarinnar, sem kom út í dag, á kosninga­loforðum Samfylkingarinnar frá því fyrir fjórum árum, efndum þeirra og kosninga­loforðum þeirra nú. Fyrir kosningarnar 2014 lofaði flokkurinn því að efla almennings­samgöngur og þó vissulega hafi tíðni verið aukin hjá Strætó, forgangs­akreinar lagðar og nætur­strætó tekinn upp þá er trauðla hægt að halda því fram að nokkur bylting hafi orðið varðandi eflingu almennings­samgangna á kjör­tímabilinu. Hins vegar hefur verið unnið að þróun Borgar­línu á þessum árum og nú leggur Samfylkingin höfuð­áherslu á að samningar um þær framkvæmdir verði kláraðir strax á þessu ári og framkvæmdir hefjist þegar árið 2019 við fyrsta áfanga. Með því mætti leysa þau vandamál sem glímt er við varðandi samgöngur í borginni.

„Ég hef tekið eftir því að þeir fram­bjóðendur sem hafna Borgar­línu færa ekki fram neinar lausnir“

Uppbygging Borgar­línu er hins vegar ekki á döfinni hjá öllum þeim flokkum sem bjóða fram til borgar­stjórnar. Meðal þeirra flokka eru Sjálfstæðis­flokkurinn, sem mælist ýmist sem stærsti eða næst stærsti flokkurinn í borginni, og Miðflokkurinn sem spár segja að fá kjörn einn til tvo borgar­fulltrúa. Dagur segist ekki geta unnið með þeim flokkum í meirihluta.

 „Nei, ég get það ekki. Ég held að það verði að gera þær kröfur til fólks sem vill stjórna borginni á næsta kjör­tímabili að það komi með einhverjar raunhæfar lausnir í samgöngu­málum. Ef að þær ganga út á að dreifa byggðinni og auka umferð á Miklubraut og Kringlu­mýrarbraut, þá held ég að hver maður sjái að það gengur ekki. Ég hef tekið eftir því að þeir fram­bjóðendur sem hafna Borgar­línu færa ekki fram neinar lausnir. Það tekur bara Morgunblaðs­línuna, að vera á móti öllu sem lagt er fram af meirihlutanum í Reykjavík, jafnvel þó að það sé unnið í samstarfi við Sjálfstæðis­flokkana í nágranna­sveitar­félögunum. Ég held að þarna sé bara verið að ganga í gildru einhverra gamaldags stjórn­mála, að stunda einhverja skotgrafa­pólitík.“

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár