Bandaríkin slá met í halla á vöruskiptum

Tolla­stríð Donalds Trump nær ekki ávinningi að sinni.

Hvíta húsið
Hvíta húsið Tollar Trumps for­seta leiddu til þess að inn­flutn­ingur jókst til skamms tíma. Mynd: AFP

Vöruskipta­halli Banda­ríkjanna náði nýjum methæðum árið 2025, samkvæmt gögnum frá stjórn­völdum sem birt voru í dag, þrátt fyrir víðtæka tolla sem Donald Trump forseti lagði á á fyrsta ári sínu aftur í Hvíta húsinu.

Vöruskipta­halli Banda­ríkjanna nam 1,24 billjónum dala, eða 152 billjónum króna, fyrir allt síðasta ár og jókst lítillega frá árinu 2024 í mesta halla sem mælst hefur í tölum viðskipta­ráðuneytisins allt frá árinu 1960.

En vöruskipta­hallinn við Kína minnkaði hins vegar á árinu þar sem innflutningur Banda­ríkjanna frá næst­stærsta hagkerfi heims dróst saman um 30 prósent.

Þegar bæði vörur og þjónusta voru tekin með í reikninginn minnkaði heildar­viðskipta­halli Banda­ríkjanna fyrir árið 2025 í 901,5 milljarða dala (110 billjónum króna), úr 903,5 milljörðum dala árið 2024.

Þetta var samt þriðji mesti halli sem mælst hefur.

Í desember­mánuði jókst heildar­hallinn meira en búist var við, eða um 32,6 prósent, í 70,3 milljarða dala, …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár