Utanríkisráðherrar og föruneyti í bjórbað og mat

Utan­ríkis­ráðherrar Íslands og Finnlands heimsóttu Árskógssand um miðjan janúar síðastliðinn en sú heimsókn fól m.a. í sér bjórbað og kvöld­verð­arboð fyrir finnska utan­ríkis­ráðherrann og föruneyti hans. Reikn­ing­urinn hljóðaði upp á 185 þúsund krónur.

Timo Soini og Guðlaugur Þór
Timo Soini og Guð­laugur Þór Mynd: Samsett mynd

Guðlaugur Þór Þórðarson utan­ríkis­ráðherra og Timo Soini utan­ríkis­ráðherra Finnlands heimsóttu Árskógssand um miðjan janúar síðastliðinn en sú heimsókn fól jafnframt í sér kvöldverðarboð utan­ríkis­ráðherra fyrir finnska utan­ríkis­ráðherrann og föruneyti hans. Þetta kemur fram í svari utan­ríkis­ráðuneytisins við fyrir­spurn Kjarnans.

Í frétt RÚV um málið frá því í morgun kemur fram að utan­ríkis­ráðuneytið hafi greitt í lok síðasta mánaðar reikning upp á tæpar 185 þúsund frá Bjórböðum ehf. á Árskógssandi. Samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu er reikningurinn tilkomin vegna fyrr­nefndar heim­sóknar Guðlaugs Þórs og Timo Soini í Bjórböðin.

Segir í svari ráðuneytisins til Kjarnans að alls hafi verið fjórtán manns í sendi­nefndum Íslands og Finnlands, sjö frá hvoru ríki. Þar af hafi verið greiddur aðgangs­eyrir fyrir tíu manns að baðaðstöðunni. Samkvæmt upplýsingum á vef Bjórbaða kostar stakt bjórbað 7.900 krónur en para­bjórbað 14.900 krónur.

Þá hafi jafnframt verið keyptur matur handa öryggis­verði finnska ráðherrans, íslenskum lögreglu­mönnum og bílstjórum. Ekki fást afhendir sundur­liðaðir reikningar, samkvæmt ráðuneytinu.

Málefni norðurslóða og Norður­skauts­ráðsins var ofarlega á baugi í heim­sókninni, segir í svarinu, en Ísland tekur við formennsku í Norður­skauts­ráðinu af Finnlandi í maí. Af því tilefni var ákveðið að þeir Guðlaugur Þór Þórðarson utan­ríkis­ráðherra og Soini funduðu á Siglu­firði og tækju svo þátt í málþingi um norðurslóðir í Háskólanum á Akureyri.

„Á meðan heim­sókninni stóð kynntu ráðherrarnir sér jafnframt atvinnulíf og starfsemi fyrir­tækja á Trölla­skaga. Meðal annars heimsóttu þeir Bjórböðin á Árskógssandi ásamt föruneyti sínu. Eigendur fyrir­tækisins, sem jafnframt reka Bruggs­miðjuna á Árskógssandi, hafa hlotið mikið lof fyrir atvinnu­uppbyggingu og nýsköpun. Má í því sambandi nefna að framkvæmda­stjórinn, Agnes Sigurðar­dóttir, var á nýársdag sæmd riddara­krossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir framlag til þróunar atvinnu­lífs í heima­byggð,“ segir í svari ráðuneytisins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár