Jeremy Corbyn vikið úr Verkamannaflokknum

Fyrr­verandi formanni breska Verkamanna­flokksins var í dag vikið tíma­bundið úr flokknum vegna viðbragða sinna við nýrri skýrslu um gyðinga­andúð innan flokksins. Corbyn sagði þau mál öll hafa verið blásin upp í pólitískum tilgangi.

Jeremy Corbyn, fyrrverandi leiðtogi breska Verkamannaflokksins.
Jeremy Corbyn, fyrr­ver­andi leið­togi breska Verka­manna­flokks­ins. Mynd: EPA

Sir Keir Starmer, formaður breska Verkamanna­flokksins, hefur ákveðið að víkja forvera sínum, Jeremy Corbyn, úr flokknum. Frá þessu er greint í breskum fjöl­miðlum í dag. Ástæðan er viðbrögð Corbyns við nýrri skýrslu frá mann­réttinda­samtökunum EHRC, sem skoðaði ásakanir um gyðinga­andúð innan flokksins.

Samtökin komust að þeirri niður­stöðu að flokkurinn, undir stjórn Corbyns, væri ábyrgur fyrir pólitískum afskiptum af kvörtunum um gyðinga­andúð frá félags­mönnum, láðst að þjálfa starfs­fólk flokksins sem tók á móti slíkum kvörtunum á viðeigandi hátt og sömuleiðis gerst sekur um áreitni.

Í frétt Guardian af þessu máli segir að Corbyn hafi brugðist við skýrslunni í morgun með þeim orðum að mál tengd gyðinga­andúð innan Verkamanna­flokksins hefðu verið blásin upp í pólitískum tilgangi, bæði af andstæðingum innan flokks og utan og fjöl­miðlum.

Corbyn sagði þó jafnframt að hver sá sem segði að enga gyðinga­andúð væri að finna innan flokksins hefði rangt fyrir sér og að hann vonaðist til þess að flokkurinn myndi innleiða ráðleggingar frá skýrslu­höfundum hratt og örugglega, þrátt fyrir að hann væri ekki sammála öllum niður­stöðunum.

Forgangsmál hjá Starmer að uppræta gyðingaandúð

Deildar meiningar hafa komið fram um umfang vandans og alvarleika hans á undan­förnum misserum, en Keir Starmer hefur gert það að forgangs­máli hjá sér frá því hann tók við formennsku fyrr á árinu að taka á gyðinga­andúð innan flokksins með festu.

Hann hefur sagt niður­stöður skýrslunnar skammarlegar fyrir Verkamanna­flokkinn.

Tveimur tímum eftir að honum var gert kunnugt um ofan­greind ummæli Corbyn vék hann forvera sínum úr flokknum, eftir að Corbyn hafði neitað að draga orð sín, um að vandinn hefði verið blásinn upp, til baka.

Fram kemur í frétt Guardian að brott­vísun Corbyn úr flokknum sé tíma­bundin, að minnsta kosti þar til að rannsókn á málinu fari fram. Corbyn segir í yfir­lýsingu á Twitter að hann muni berjast gegn þessari ákvörðun flokks­forystunnar, sem sé ramm­pólitísk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár