Fékk vinstrimennsku í vöggugjöf

Keir Starmer er orð­inn for­maður Verka­manna­flokks­ins. Líklegt þykir að undir hans for­ystu muni Verka­manna­flokk­ur­inn sækja í átt að miðj­unni á næstu árum, þrátt fyrir að Starmer sjálfur segi að hann vilji halda í rót­tækni lið­inna ára.

Sir Keir Rodney Starmer heitir hann, nýr leiðtogi breska Verkamannaflokksins.
Sir Keir Rodney Starmer heitir hann, nýr leið­togi breska Verka­manna­flokks­ins. Mynd: EPA

Keir Starmer, nýkjör­inn leið­togi Verka­manna­flokks­ins, óskaði þess á ung­lings­aldri að for­eldrar hans hefðu gefið honum annað og algeng­ara nafn eins og til dæmis Dave eða Pete. Keir er enda eilítið sér­kenni­legt nafn, en það var nafnið sem dreng­ur­inn fékk í upp­hafi sjö­unda ára­tug­ar­ins.

For­eldr­arnir, ein­arðir vinstri­menn sem voru til heim­ilis í suð­ur­hluta Lundúna, nefndu son sinn í höf­uðið á Keir Hardie, sem var einn stofn­enda Verka­manna­flokks­ins og fyrsti þing­flokks­for­maður hans í upp­hafi 20. aldar. Það var því ef til vill ekki við öðru að búast en að son­ur­inn erfði nokkuð af stjórn­mála­skoð­unum þeirra.

Nú leiðir hann vinstrið í breskum stjórn­málum, þessi 57 ára gamli lög­fræð­ingur, sem fyrst tók sæti á þing­inu í Westminster árið 2015 eftir að hafa áður risið hátt í starfi sem mann­rétt­inda­lög­maður og síðar sak­sókn­ari hins opin­bera. Hann hefur fengið aðals­titil fyrir störf sín í þágu laga og rétt­lætis, Sir Keir, sem hann kýs raunar að nota ekki.

Starmer hlaut rúm 56% atkvæða í for­manns­kjöri Verka­manna­flokks­ins, en valið stóð á milli hans og þeirra Lisu Nandy og Rebeccu Long-Baily í kosn­ingu flokks­manna, sem 490 þús­und manns tóku þátt í.

Í mynd­skila­boðum sem Starmer sendi frá sér á laug­ar­dag eftir að kjör hans var stað­fest lof­aði hann að leiða upp­byggi­lega stjórn­ar­and­stöðu og sagð­ist von­ast til þess að Verka­manna­flokk­ur­inn gæti á ný þjónað land­inu í rík­is­stjórn, helst strax árið 2024 þegar næstu kosn­ingar eiga að fara fram.

Flokk­ur­inn beið sem kunn­ugt er afhroð í þing­kosn­ingum á síð­asta ári og hefur ekki verið með færri þing­menn í neðri mál­stofu breska þings­ins síðan í síð­ari heims­styrj­öld. Verk­efnið sem bíður er því ærið.

Þykir líklegur til að sækja inn að miðju

En hvert mun Starmer leiða Verka­manna­flokk­inn? Sjálfur talar hann um hann ætli að leiða flokk­inn inn í „nýtt tíma­bil“ og ýmsir álits­gjafar um bresk stjórn­mál telja að flokk­ur­inn muni nú feta veg­inn aftur inn að miðju eftir að hafa verið færst ræki­lega til vinstri undir for­ystu Jeremys Corbyn, án mik­ils árang­urs. Í for­mennsku­bar­átt­unni und­an­farna mán­uði sagð­ist Starmer ætla að sam­eina flokk­inn, en einnig halda í rót­tækni síð­ustu fjög­urra ára.

Hann lýsir Corbyn sem vini, jafnt sem kollega, en Starmer hefur verið í skugga­ráðu­neyti Verka­manna­flokks­ins undir stjórn Corbyns, frá 2016 sem skugga­ráð­herra Brexit-mála, en áður hafði hann reyndar sagt sig úr skugga­ráðu­neyt­inu í mót­mæla­skyni við stefnu Corbyns. Vinnu­sam­bandi þeirra er lýst sem þokka­legu og þeir spjalla víst gjarna um gengi Arsenal í enska bolt­anum. Starmer hefur þó verið á skjön við Corbyn og aðra í flokks­for­yst­unni í veiga­miklum málum, eins og til dæmis hvað Brexit varðar.

Á árs­fundi Verka­manna­flokks­ins árið 2018 lagði hann til að flokk­ur­inn beitti sér fyrir því að það yrði haldin önnur þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um útgöng­una, þar sem val um að vera áfram í Evr­ópu­sam­band­inu yrði á kjör­seðl­inum. Sjálfur sagð­ist hann ætla að berj­ast fyrir því að vera áfram. Áhrifa­menn innan flokks­ins vilja sumir rekja slæmt gengi Verka­manna­flokks­ins í ýmsum verka­manna­kjör­dæmum sem sner­ust til Íhalds­flokks­ins í síð­ustu kosn­ingum til þess­arar stefnu sem Starmer mót­aði.

Eftir útreið­ina sem Verka­manna­flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum, sem sner­ust jú að miklu leyti um hvort Boris Johnson fengi umboð kjós­enda til þess að „koma Brexit í verk“, sagð­ist Starmer loks vera búinn að sætta sig við að Bretland myndi yfir­gefa Evr­ópu­sam­bandið.

Baðst strax afsökunar á gyðingaandúð

Fyrsta skrefið í átt að því að sam­eina Verka­manna­flokk­inn tók Starmer eig­in­lega um leið og hann tók við emb­ætti á laug­ar­dag, en þá lýsti hann því yfir að hann ætl­aði að úthýsa gyð­inga­andúð algjör­lega úr Verka­manna­flokknum.

„Við þurfum að takast heið­ar­lega á við fram­tíð­ina. Gyð­inga­andúð hefur verið smán­ar­blettur á flokknum okkar. Ég hef séð sorg­ina sem hún hefur haft í för með sér í svo mörgum sam­fé­lögum gyð­inga. Fyrir hönd Verka­manna­flokks­ins, þá biðst ég for­láts,“ sagði Starmer áður en hann hét því að „rífa eitrið út með rótum.“ Árang­ur­inn af vinnu sinni seg­ist hann ætla að meta með hlið­sjón af því hversu margir gyð­ingar snúa aftur í flokk­inn.

Starmer hefur áður tekið afstöðu gegn gyð­inga­andúð innan flokks­ins og gerði það meðal ann­ars í nóv­em­ber, þegar veru­lega gustaði um Corbyn fyrir að neita að biðj­ast afsök­unar á gyð­inga­andúð í flokknum.

Málefnið stendur honum nærri, en tengda­faðir hans er pólskur inn­flytj­andi af gyð­inga­ættum og sagði Starmer við blaðið New Statesman, sem fjall­aði ítar­lega um feril hans og líf í lok síð­asta mán­aðar, að honum sárni þegar fólk segi að hann hafi ekki talað nógu opin­skátt gegn gyð­inga­höt­urum.

Öðruvísi leiðtogi en Corbyn

Starmer er stundum gagn­rýndur fyrir að vera flatur stjórn­mála­maður, hreint út sagt leið­in­legur og óspenn­andi karakter sem muni eiga erfitt með að heilla kjós­endur. Hann við­ur­kennir fús­lega að hann sé afar ólíkur for­vera sínum í emb­ætti flokks­for­manns, en Corbyn var einmitt talið það til tekna að mikið af fólki hóf þátt­töku í innra starfi Verka­manna­flokk­inn er hann var for­maður.

„Það eru margar leiðir til þess að veita fólki inn­blástur,“ sagði Starmer í við­tali við Andrew Neil á BBC fyrir skemmstu. Hann sagð­ist þannig ekki vera leið­togi sem héldi inn­blásnar ræður fyrir fólk svo allir heill­uð­ust með, heldur leið­togi sem byggði í kringum sig teymi fólks sem vildi takast á við það verk­efni að breyta bæði flokki sínum og landi.

Starmer hefur verið Arsenal-aðdá­andi frá unga aldri, á ársmiða á Emirates-völl­inn og þegar hann á lausan tíma er hann lík­legur til þess að sitja fyrir framan sjón­varpið að reyna að finna fót­bolta­leik til þess að horfa á, sam­kvæmt því sem vinir hans sögðu blaða­manni New Statesman. Starmer kom aðeins inn á stöðu fót­boltaliðs­ins í við­tali sínu við blaðið og á orðum hans mátti skilja að bæði Arsenal og Verka­manna­flokk­ur­inn þyrftu að takast á við mikið upp­bygg­ing­ar­starf. Ef til vill sam­bæri­legt.

Skuggaráðuneyti skipað

Í gær sáust kannski fyrstu stóru merkin um í hvaða átt Starmer mun stefna með upp­bygg­ingu sína á Verka­manna­flokknum, er hann skip­aði skugga­ráðu­neyti sitt. Þar koma kunn­ug­leg nöfn aftur á fremri bekk­ina, eftir að hafa verið sett til hliðar í valda­tíð Corbyns.

Einn þeirra er til dæmis Ed Miliband, fyrr­ver­andi flokks­leið­togi, sem verður nú skugga­ráð­herra við­skipta- orku- og iðn­að­ar­mála. Fáir yfir­lýstir stuðn­ings­menn Corbyns halda stöðum sínum í skugga­ráðu­neyti Starmers, en þó ein­hverjir, sam­kvæmt frétt Guardian. Heilt yfir þykir skipan skugga­ráðu­neyt­is­ins bera þess vott að nú muni Verka­manna­flokk­ur­inn horfa inn að miðju á ný, „mjúka vinstrið“ sé komið með yfir­hönd­ina.

Starmer sagð­ist í gær stoltur af teym­inu sem hann hefði valið sér, sem sam­anstendur af 17 konum og 15 körlum. Hann sagði þau end­ur­spegla breidd­ina í flokknum og myndu nú ganga í það verk að hjálpa rík­is­stjórn­inni að bregð­ast við heims­far­aldr­inum og að því loknu byggja flokk­inn upp til kosn­inga­sig­urs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár