Starmer sparkar skuggaráðherra fyrir illa ígrundað tíst

Keir Starmer formaður Verkamanna­flokksins ákvað í dag að reka þing­konuna Rebeccu Long-Bailey úr skugga­ráðuneyti sínu, fyrir að deila viðtali við breska leikkonu með fylgjendum sínum á Twitter.

Rebecca Long-Bailey var skuggaráðherra menntamála í skuggaráðuneyti Starmer. Þangað til í dag.
Rebecca Long-Bailey var skugga­ráð­herra mennta­mála í skugga­ráðu­neyti Starmer. Þangað til í dag. Mynd: EPA

Keir Starmer leiðtogi breska Verkamanna­flokksins rak í dag þing­konuna Rebeccu Long-Bailey úr skugga­ráðuneyti sínu, eftir að hún deildi viðtali af vef Independent við bresku leik­konuna Maxine Peake með fylgjendum sínum á Twitter.

Í viðtalinu er haft eftir Peake að bandaríska lögreglan hafi lært þá tækni, að krjúpa með hné á hálsi George Floyd, á námskeiðum hjá ísraelsku leyni­þjónustunni. Full­yrðingum Peake um þetta efni hefur verið mótmælt af ísraelskum yfir­völdum og ekkert kemur fram um það í viðtalinu við hana hvaðan þessar upplýsingar væru fengnar.

Rebecca Long-Bailey deildi viðtalinu með þeim orðum að Maxine Peake væri „algjör demantur“.

Talsmaður flokks­leiðtogans sagði í yfir­lýsingu að greinin sem Long-Bailey deildi með fylgjendum sínum á Twitter í morgun hefði falið í sér samsæris­kenningu um gyðinga, en samtök breskra gyðinga höfðu áður fordæmt tístið og beðið þing­konuna um að eyða því og biðjast afsökunar.

Það gerði hún ekki, en sagði þó að tíst hennar hefði ekki átt að taka sem stuðningi við allt það sem kom fram í greininni.

Atburðarás dagsins hefur nú verið hröð og nú hefur þetta mál leitt til þess að Long-Bailey, sem endaði önnur á eftir Starmer í leiðtoga­kjöri Verkamanna­flokksins fyrr á árinu, er ekki lengur í skugga­ráðuneyti flokksins, en þar var hún skugga­ráðherra mennta­mála.

Ætlar sér að vinna traust gyðinga

Keir Starmer hefur sagst ætla að endur­heimta traust gyðingasamfélagins í Bretlandi, en þau ár sem flokkurinn var undir stjórn Jeremy Corbyn kom oft og tíðum fram gagnrýni vegna meints gyðinga­haturs innan flokksins, sem flokks­forystan var sökuð um að láta óátalið. Rebecca Long-Bailey var einmitt náinn samstarfs­maður Corbyn er hann var leiðtogi flokksins.

Er Star­mer tók við emb­ætti flokks­formanns í byrjun apríl lýsti hann því yfir að hann ætl­aði að úthýsa gyð­inga­andúð algjör­lega úr Verka­manna­flokkn­um.

„Við þurfum að takast heið­ar­lega á við fram­tíð­ina. Gyð­inga­andúð hefur verið smán­ar­blettur á flokknum okk­ar. Ég hef séð sorg­ina sem hún hefur haft í för með sér í svo mörgum sam­fé­lögum gyð­inga. Fyrir hönd Verka­manna­flokks­ins, þá biðst ég for­láts,“ sagði Star­mer í ræðu sem hann hélt við það tilefni, áður en hann hét því að „rífa eitrið út með rót­u­m.“

Árang­ur­inn af vinnu sinni sagðist hann ætla að meta með hlið­sjón af því hversu margir gyð­ingar sneru aftur í flokk­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár