Seðlabankafólk ræddi um Facebook gjaldmiðilinn

Seðla­bankastjóri Banda­ríkjanna, Jerome Powell, segir að rafmyntin sem Facebook ætlar að setja í loftið á næsta ári hafi komið til umræðu innan Seðla­banka Banda­ríkjanna.

Jerome Powell, seðla­bankastjóri Banda­ríkjanna, sagði á blaðamanna­fundi í dag að sérfræðingar Seðla­banka Banda­ríkjanna hefðu átt fundi með Facebook, vegna áforma samfélags­miðla- og tækni­risans um að setja í loftið rafmynt, Libra, á næsta ári.

Powell sagði að of snemmt væri að fullyrða hver yrðu áhrifin af þessum áformum, en of snemmt væri að tala um að Libra gæti orðið eitthvað í líkindum við það sem Bandaríkja­dalurinn er í dag, þegar kemur að alþjóða­viðskiptum.

Tilkynnt var um þá ákvörðun Seðla­bankans í dag, að halda stýri­vöxtum óbreyttum í tveimur prósentum, en fram kom í máli Powell að vextir gætu jafnvel lækkað við næstu endur­skoðun vaxta. Ástæðan er meðal annars sú, að dregið hefur úr eftir­spurn í heims­búskapnum, og yrði vaxta­lækkun þá til þess fallin að örva heims­búskapinn enn frekar, til að stuðla að meiri hagvexti og atvinnu­sköpun.

Markaðir brugðust vel við þessum yfir­lýsingum, og hækkuðu hlutabréfa­vísitölur víða í kjölfarið, samkvæmt umfjöllun Wall Street Journal.

Powell sagði horfur í bandarískum efnahag vera nokkuð góðar um þessar mundir, en þó yrði að fylgjast grannt með þróuninni í heims­málunum, og hvernig næstu misserin yrðu í þeim efnum, ekki síst í Evrópu og Asíu.

Atvinnu­leysi í Banda­ríkjunum er nú með allra lægsta móti, eða um fjögur prósent, en spár gera ráð fyrir að hagvöxtur í Banda­ríkjunum á þessu ári verði um 2 til 3 prósent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár