Facebook hyggst koma á fót eigin rafmynt

Samfé­lags­miðl­arisinn Facebook tilkynnti í dag um áætlun sína að koma á fót nýrri rafmynt sem mun kallast Libra.

Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook.
Mark Zuckerberg, stofn­andi Facebook. Mynd: EPA

Stjórn­endur Facebook tilkynntu í morgun að fyrir­tækið hefði í huga að koma á fót eigin rafmynt. Rafmyntin mun bera heitið Libra og mun vera notendum aðgengileg árið 2020.

Hægt verður að nota rafmyntina til að greiða fyrir hluti í daglegu lífi auk þess verður hægt að nota hana til þess að greiða fyrir hluti eða þjónustu á netinu.

Rafmyntin er þróuð í samstarfi við 27 önnur fyrirtæki, til að mynda Uber og Mastercard. Áhyggjur eru yfir því að Facebook muni auka völd sín yfir notendum sínum um of og hafa of miklar upplýsingar um notendur sína verði rafmyntin að veruleika, að því er kemur fram í frétt The New York Times.

Facebook staðhæfir að fjárhags­upplýsingar verði ekki notaðar til þess að sérsníða auglýsingar á samfélags­miðla­forritinu.

Verði Libra að veruleika verður fjármála­kerfi þess ekki stjórnað af seðla­banka. Hægt verður að borga fyrir ýmsa þjónustu með rafmyntinni, að því er kemur fram í frétt The New York Times. Slíkt geti bætt samkeppnis­stöðu Facebook við önnur samfélags­miðla­forrit sem bjóða upp á greiðslu­þjónustu, líkt og hið kínverska WeChat.

Nái Libra vinsældum hjá 2,4 milljörðum notendum Facebook, gæti það haft veruleg áhrif á fjármála­kerfi heimsins. Ýmsir bandarískir og breskir embættis­menn hafa einmitt lýst yfir áhyggjum sínum af slíkri þróun samfélagsmiðlarisans.

Þá kemur fram í fréttinni að Libra muni vera stjórnað af the Libra Association, sem ekki verði rekið í gróðrar­skyni. Libra muni notast við svokallaða Blockchain, eða skjala­keðju, líkt og rafmyntin Bitcoin gerir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár