Endalok kebabsins hugsanlega í nánd í Evrópu

Evrópu­þingið hugleiðir nú að leggja bann við fosfati en það er eitt mikil­vægasta efnið til að halda kebab-kjöti fersku og bragð­miklu.

Margir kynnu að verða fyrir vonbrigðum með Evrópuþingið ef bannið tekur gildi.
Margir kynnu að verða fyrir von­brigðum með Evr­ópu­þingið ef bannið tekur gildi. Mynd: EPA

Bann gegn fosfati í Evrópu gæti haft alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir aðdáendur kebabsins. Til skoðunar er nú á Evrópu­þinginu að banna fosfat sem er lykil­hráefni til að halda kebab-kjöti safaríku og bragð­miklu.

Þetta kemur fram í frétt The Guardian en í henni er greint frá því að ef bannið verði að veruleika þá muni það hafa gríðarleg áhrif á matvæla­framleiðslu með kebab.

Kebab nýtur mikilla vinsælda víða í Evrópu en í frétt The Guardian segir að um 200 þúsund manns vinni í geiranum. Í Þýska­landi er þetta einn vinsælasti skyndi­bitinn og því hefur fréttunum ekki verið vel tekið þar í landi.

Fosfat er mikið notað í matvæla­framleiðslu, til að mynda má finna það í ýmsum kjötvörum, sjávar­fangi, ávöxtum og grænmeti. Fosfat eykur vökva­söfnun í matvörum og gerir kjöt meyrara. Einnig viðheldur það bragðinu lengur.

Bann á fosfati dauðadómur fyrir kebabinn

Talið er að um 1,3 milljón döner-kebabar, sem er tyrknesk útgáfa af kebab, séu seldir á hverjum degi í Bretlandi á meira en 20 þúsund sölu­stöðum.

„Ef Evrópu­þingið kemst upp með þetta þá mun það verða dauða­dómur fyrir döner-kebab bransann í Evrópu­sambandinu,“ segir Kenan Koyuncu formaður sambands þýskra kebabframleiðenda.

Einnig hefur Renate Sommer, embættis­maður á vegum Kristinna demókrata í Þýska­landi, lýst yfir áhyggjum sínum varðandi áform Evrópu­þingsins og sagt að bannið muni valda því að þúsundir muni missa vinnuna.

Ástæðan fyrir banninu er sú að forfat er talið hafa slæm áhrif á heilsu en rann­sóknir frá árinu 2012 gefa til kynna að tenging sé milli notkunar fosfats í matvæla­framleiðslu og hjarta­sjúkdóma.

Evrópu­þingið mun greiða atkvæði um málið eftir tvær vikur í Strasbourg en ef þingið kýs gegn tillög­unni þá mun það fara aftur til framkvæmda­stjórnar Evrópu­sambandsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár