Skilti um afrek Sigríðar tímabundið frá vegna framkvæmda

Vegna framkvæmda við Gullfoss hafa nokkur upplýsinga­skilti verið tekin niður í sumar. „Það kann að skýra þá upplifun sumra gesta að samhengi upplýsinga sé ábótavant og að Umhverfis­stofnun sýni ekki ævistarfi Sigríðar þá virðingu sem hún á skilið.“

Unnið er að framkvæmdum á stígum og útsýnispalli við Gullfoss.
Unnið er að fram­kvæmdum á stígum og útsýnis­palli við Gullfoss. Mynd: Arnar Þór Ingólfsson

Umhverfis­stofnun hefur farið yfir þá gagnrýni sem fram hefur komið á samfélags­miðlum á þær upplýsingar um baráttu­konuna Sigríði Tómasdóttur í Brattholti sem sjá má á upplýsinga­skilti við fossinn. Skýring hefur nú fengist á málinu.

Rétt er að í texta á skilti við fossinn nú er ekki getið afreka Sigríðar og baráttu hennar fyrir verndun Gullfoss við upphaf síðustu aldar. Það skilti er þó að sögn Umhverfis­stofnunar aðeins eitt af mörgum sem alla jafna er á hinu friðlýsta svæði sem stofnunin hefur umsjón með.

„Vegna frétta og umræðu um skilti við Gullfoss og meintan skort á mikil­vægum upplýsingum um umhverfis­sinnann Sigríði frá Brattholti, vill Umhverfis­stofnun, umsjónar­aðili hins friðlýsta svæðis, taka fram að baráttu Sigríðar gegn virkjun fossins er að jafnaði getið í ýmsum upplýsingum sem lesa má á skiltum við fossinn,“ segir í tilkynningu Umhverfis­stofnunar. „Vegna framkvæmda á efri stíg og við útsýnis­pall við Gullfoss hafa aftur á móti nokkur skilti verið tekin niður tíma­bundið í sumar. Það kann að skýra þá upplifun sumra gesta að samhengi upplýsinga sé ábótavant og að Umhverfis­stofnun sýni ekki ævistarfi Sigríðar þá virðingu sem hún á skilið.“

Í texta á skilti í gesta­stofu Gullfoss segir m.a.: „Barátta Sigríðar fyrir fossinum var ósérhlífin og einstök. Hún lagði oft nótt við dag til að fylgja máli sínu eftir, fór í lang­ferðir yfir fjallvegi, óð stórár á hvaða tíma árs sem var og átti marga fundi með embættis­mönnum í Reykjavík. Vegna þessarar baráttu hefur Sigríður oft verið nefnd fyrsti umhverfis­sinni Íslands.”

Umhverfis­stofnun bendir á að öll skilti við efri stíg hafi verið fjarlægð tíma­bundið vegna framkvæmd­anna. Áætlað er að framkvæmdum við fossinn ljúki í september. Ættu upplýsingamál að komast í gott horf upp úr því.

„Umhverfis­stofnun þakkar vinsamlegar ábendingar um texta á einu skiltanna sem hverfist nokkuð ítarlega um útlit Sigríðar. Mun sá texti sæta endur­skoðun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár