Demókratinn Doug Jones vann í Alabama

Repúblikaninn Roy Moore naut stuðnings Donalds Trumps Bandaríkja­forseta en það dugði ekki til.

Doug Jones, 63 ára gamall saksóknari og frambjóði Demókrata, vann óvæntan sigur í kosningum um sæti í öldunga­deild Banda­ríkjaþings. Hann lagði Repúblikanann Roy Moore, fyrr­verandi dómara í Alabama, en Donald Trump Bandaríkja­forseti studdi hann og hvatti stuðnings­menn Repúblikana til að kjósa hann.

Margar konur í Alabama hafa stigið fram á undan­förnum vikum og mánuðum og sakað Moore um að hafa brotið gegn þeim kynferðis­lega, þegar þar voru undir lögaldri, en Moore hefur neitað ásökununum. Trump tjáði sig ekki um þær, og studdi Moore eindregið í kosninga­baráttunni. Svo virðist sem þessar stuðnings­yfir­lýsingar Trumps hafi þjappað Demó­krötum í Alabama saman, því ríkið er þekkt fyrir yfir­gnæfandi stuðning við Repúblikana í gegnum tíðina.

Kosningarnar fóru fram þar sem Jeff Sessions, öldunga­deildar­þing­maðurinn, tók við embætti dómsmála­ráðherra í stjórn Trumps, og því þurfti að kjósa til að fylla skarð hans í öldunga­deildinni.

Jones er einna þekktastur fyrir lögmanns­störf í Alabama, og var hann meðal þeirra sem vann að málsókn gegn meðlimum Ku Klux Klan samtak­anna sem brenndu niður kirkju í Birmingham, árið 1963, með þeim afleiðingum að fjórar stúlkur létust. Hann sótti málið sem saksóknari en málið vakti mikla athygli og leiddi til mikillar umræðu um kynþátta­hyggju og kynþátta­hatur í Banda­ríkjunum.

Niður­staðan í kosningunni er áfall fyrir Repúblikana sem nú halda naumari meirihluta en áður, 51 - 49, í öldunga­deildinni. Þetta er í fyrsta sinn í aldar­fjórðung sem Demó­kratar ná að hafa betur en Repúblikanar í kosningu um sæti Alabama í öldunga­deildinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár