Norski olíusjóðurinn nemur nú 21 milljón á hvern Norðmann

Norski olíu­sjóðurinn á nú að um 1,3 prósent af öllum skráðum hluta­bréfum í heiminum.

Norski olíu­sjóðurinn hefur vaxið jafnt og þétt undan­farinn misseri og eru eignir hans nú komnar yfir eitt þúsund milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 107 þúsund milljörðum króna.

Um 96 prósent af eignum sjóðsins eru geymdar í eignum utan Noregs.

Ótrúlegar stærðir

Upphæðin nemur um 21 milljón króna, miðað við núverandi gengi Bandaríkja­dals gagnvart krónu (107), á hvern íbúa Noregs. Íbúar landsins eru 5,1 milljón.

Til saman­burðar eru eignir íslenska lífeyris­sjóða­kerfisins um 3700 milljarðar króna, eða sem nemur um 10,8 milljónum króna á hvern Íslending.

Norðmenn eru hins vegar líka með lífeyris­kerfi, sem er alveg ótengt olíu­sjóðnum. Hann er vara­sjóður þjóðarinnar fyrir fram­tíðina.

Norsk stjórn­völd hafa þó örlítið - í hlutfalli við heildar­eignir - tekið fé úr sjóðnum til að byggja upp innviði heima fyrir.

Heildar­umfang áætlunar Norðmanna þegar kemur að innviðum, samgöngu­mannvirkjum ekki síst, nemur 1.064 milljörðum norskra króna eða sem nemur um 15 þúsund milljörðum íslenskra króna. Áætlunin, sem er til 10 ára, miðar að því ekki síst að undirbúa norskt samfélag undir miklar tækni­breytingar. Þannig verður vega­kerfið stórbætt, hafnir nútíma­væddar, byggt upp 5G kerfi til auðvelda innleiðingu á gervi­greindar­tækni og ýmsu fleiru. Fjármagn í þessi verkefni verður meðal annars sótt í sjóðinn, en aðeins með því að láta hluta af innstreyminu sem fer í sjóðinn að öllu jöfnu, renna í ríkissjóð Noregs og þaðan í áætlunina.

Norski olíu­sjóðurinn er stærsti fjár­festinga­sjóður sinnar tegundar í heiminum. Hann er í eigu norska ríkisins, en er með sjálf­stæða stjórn sem heyrir undir Seðla­banka Noregs og fjármála­ráðuneytið.

Einn áhrifamesti maður heims

Æðsti yfirmaður sjóðsins er Yngve Slyngstad, 54 ára gamall hagfræðingur frá Noregi. Hann hefur í tvígang verið á lista Forbes yfir hundrað áhrifa­mesta fólk heims, þá númer 72 og 74, vegna starfa sinna fyrir sjóðinn.

Umfang sjóðsins er með ólíkindum, miðað við það að hann er í eigu smáþjóðar. Hann á 1,3 prósent af öllum skráðum hluta­bréfum í heiminum, samkvæmt umfjöllun Financial Times, en innstreymið í sjóðinn kemur úr olíu­auðlindum Noregs. Hagnaður olíu­fyrir­tækisins Statoil er skatt­lagður beint um 78 prósent, en norska ríkið á tæplega 70 prósent hlut í fyrir­tækinu á móti einka­fjárfestum og er félagið skráð á markað í Noregi. Stór hluti þeirra sem eiga ríflega 30 prósent hluta­bréfanna á móti norska ríkinu eru lífeyris­sjóðir í Noregi og aðrir norskir fjár­festinga­sjóðir.

Hagnaðurinn af olíu­auðlindunum rennur síðan í norska olíu­sjóðinn, sem ávaxtar hann eftir fjár­festinga­stefnu sinni á alþjóða­mörkuðum. Sjóðurinn er áhrifa­mikill fjár­festir í öllum helstu geirum. Hann hefur ávaxtast að meðaltali um 3,3 prósent á ári, á síðustu árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár