Forsætisráðherra: „Slæm ráðstöfun“ að veita albönsku fjölskyldunum ríkisborgararétt

Bjarni Benediktsson segir að lögreglan fari ekki óvopnuð í Víðines þar sem hælis­leitendur dvöldu.

Bjarni Benediktsson forsætis­ráðherra telur að það hafi verið „slæm ráðstöfun“ að veita albönskum fjöl­skyldum með langveik börn ríkis­borgararétt á Íslandi árið 2015. Íslendingar þurfi að beita ströngum reglum til að tryggja að „við fáum ekki yfir okk­ur millj­ón flótta­menn“, jafnvel taka upp kerfi þar sem fólki sé ekki hleypt inn í landið án vegabréfs­áritunar.

Þetta er haft eftir Bjarna í frásögn Morgun­blaðsins af fundi Samtaka eldri sjálfstæðis­manna sem fram fór í Valhöll í gær, en þar sat forsætis­ráðherra fyrir svörum. Bjarni mun hafa sagt að lögreglan hætti sér ekki óvopnuð í Víðines þar sem fjöldi hælis­leitenda biði úrlausnar sinna mála. Rétt er þó að taka fram að nokkrir mánuðir eru síðan aðstöðu Útlendinga­stofnunar á Víðinesi var lokað. Bjarni sagði erfitt að horfa á eftir miklum fjármunum sem varið væri til hælis­leitenda­mála. Engu að síður þyrfti að virða mannúðar­sjónarmið og mann­réttindi. 

„Það var slæm ráðstöf­un að fara rík­is­borg­ara­leiðina í Alban­íu­mál­inu. Það má kannski segja að við höf­um með ein­hverj­um hætti misst stjórn á því máli sem endaði svona,“ sagði Bjarni um þá ákvörðun Alþingis að veita Pepaj-fjöl­skyldunni og Phellumb-fjöl­skyldunni ríkis­borgararétt í desember 2015. Mál fjöl­skyldnanna höfðu vakið mikla athygli, ekki síst vegna yngstu fjölskyldu­meðlimanna, Kevin litla sem glímir við ólæknandi slímseigju­sjúkdóm og Arjans sem er með hjarta­galla. 

Ríkis­stjórn Sjálfstæðis­flokksins, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar hefur hert verulega á stefnu Íslands í hælis­leitenda­málum frá því hún tók við í janúar, meðal annars með því að svipta tiltekna hópa hælis­leitenda réttinum til að fá réttar­áhrifum ákvörðunar Útlendinga­stofnunar um brott­vísun frestað vegna kæru til æðra stjórn­valds eða dómstóla og með því að svipta hælis­leitendur réttinum til framfærslu­fjár eftir að hælis­umsóknum þeirra er synjað og þeir bíða þess að vera sendir úr landi. Formaður efnahags- og viðskipta­nefndar Alþingis hefur lýst stefnunni sem svo að mæta eigi ákveðnum hópi hælis­leitenda með „hörðum stálhnefa“. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár