Starfsfólk Árnastofnunar reitt við Ríkisútvarpið

Pistill Guju Daggar Hauks­dóttur í Víðsjá um Hús íslenskra fræða sagður uppfullur af rang­færslum. Alvarlegt að fræjum efa sé sáð um öryggi íslensku hand­ritanna. Handrita­geymslan eigi að standast náttúru­hamfarir.

Alvarlegar rangfærslur
Alvar­legar rang­færslur Guðrún Nordal, for­stöðu­kona Árna­stofn­unar, gerir alvar­legar athuga­semdir við rang­færslur í pistli arki­tekts­ins Guju Daggar Hauks­dóttur um Hús íslenskra fræða.

Starfs­fólk Árna­stofnunar, Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, er furðu lostið og mjög ósátt við pistil arkitektsins Guju Daggar Hauks­dóttur í þættinum Víðsjá á Rás 1 sem fluttur var 18. apríl síðastliðinn. Í pistli Guju Daggar segir hún að handrita­geymsla stofnunarinnar eigi að vera staðsett í kjallara við hlið sorp­geymslu og „beint undir yfirborði vatns­tjarnarinnar sem umlykur húsið á alla vegu.“ Guja Dögg leiðir líkum að því í pistlinum að ekki sé nægilega gætt að varð­veislu skinn­handrita þjóðarinnar, hinum ómetanlega menningar­arfi. Guðrún Nordal, forstöðu­kona Árna­stofnunar, segist furðu lostin yfir málflutningi Guju Daggar enda séu þetta tómar rang­færslur og alvarlegt að sáð sé fræjum efa um öryggi hand­ritanna.

Í pistli Guju Daggar fjallar hún um tvö menningarhús sem risin eru eða eiga að rísa á Melunum, á svæði Háskóla Íslands. Annars vegar er þar um að ræða Veröld - Hús Vigdísar, sem hýsir Stofnun Vigdísar Finnboga­dóttur í erlendum tungu­málum, og hins vegar Hús íslenskra fræða sem rísa á eilítið norðar við Suðurgötu. Guja Dögg fer nokkuð jákvæðum orðum um Veröld en ekki eins jákvæðum um fyrir­hugað Hús íslenskra fræða sem hún segir að á teikningum virki „frekar fráhrindandi og furðulega einangrað á þessum stað í samhengi við aðrar byggingar á háskóla­svæðinu.“

Segir handritin geymd undir vatni og við hlið ruslakjallara

Hús íslenskra fræðaSvona mun húsið líta út sam­kvæmt teikn­ingum.

Það eru hins vegar orð Guju Daggar um notagildi hússins og öryggis­þætti í byggingu þess sem fara verulega fyrir brjóstið á Guðrúnu Nordal, forstöðu­konu Árna­stofnunar, og fleira starfs­fólki sem hefur tjáð sig um málið. Í pistlinum segir Guja Dögg: „Það sem helst vekur þó ugg er Firmitas þáttur tillög­unnar, en gert er ráð fyrir því að helstu gersemar stofnunarinnar: um þúsund ára gömul og ómetanleg skinn­handrit þjóðarinnar sem eru á sérstökum UNESCO lista um heimsarf, verði geymd neðanjarðar, við hlið bílastæða­kjallara, eldhúss og sorp­geymslu, beint undir yfirborði vatns­tjarnarinnar sem umlykur húsið á alla vegu. Þak byggingarinnar mun að auki verða lagt torfi. Samkvæmt alþjóð­legum stöðlum um varðveislu­byggingar eiga mikilvæg gögn alls ekki að vera staðsett þannig að erfitt sé að tryggja fyrir vatns­tjóni, landsigi, eldsvoða, hita­sveiflum, hamförum og fleiru.“ Hún bætir við að í forsögn samkeppni um teikningu hússins komi þó fram að handrita­geymslan og sýningar­salur hand­ritanna eigi að þola ýmislegt, að aðrar hæðir hússins hrynji á það, að þau rými eigi ekki að brenna þó kvikni í húsinu að öðru leyti og að vatn eigi ekki að geta komist þangað inn. Engu að síður heldur Guja Dögg áfram og veltir því upp hvort ekki þyrfti að rýna tillöguna betur, hvað varðar fagur­fræði, öryggi og notagildi. „Ég hugsa að sum okkar myndu sofa betur,“ skrifar Guja Dögg.

Alvarlegar rangfærslur í pistlinum

Guðrún Nordal segist í samtali við Stundina hafa orðið mjög hissa á pistli Guju Daggar því að þessi hluti hans, hið minnsta, sé beinlínis rangur. „Geymslan er vissulega í kjallara en að sjálfsögðu ekki undir vatni. Hún er sérbygging inni í húsinu sjálfu, hús í húsinu undir því miðju, og búin sérstak­lega til að verja okkar dýrmæta menningararf. Geymslan á að standast ýmiskonar hamfarir, það er meðal annars tekið tillit til jarða­skjálfta­hættu og því er hún einmitt staðsett í kjallaranum. Við höfum fengið sérfræði­ráðgjöf á öllum stigum málsins og vandað mjög til verka. Það var sett sem algjört grunn­skilyrði að handritin yrðu tryggð. Það var búin til þarfa­greining í upphafi þar sem allt var greint í hönnun hússins sem taka þarf tillit til. Síðan voru fengnir öryggis­ráðgjafar til að fara sérstak­lega yfir þennan þátt.“

Guðrún segir að hún telji alvarlegt að pistill sem þessi fái gagnrýnis­laust að fljúga í Ríkis­útvarpinu. Þar fyrir utan undrast hún hinn neikvæða tón sem í pistlinum megi greina í garð hinnar fyrir­huguðu byggingar. „Mér finnst mjög alvarlegt að fara fram með rang­færslur og villur um húsið, mjög alvarlegt. Ríkis­útvarpið hlýtur að veita okkur tækifæri til að leiðrétta þessar rang­færslur á sama vettvangi. Ég hef sent þeim bréf þar sem ég fer fram á að tryggð verði vönduð umfjöllun. Þetta eru nefnilega rang­færslur hjá Guju Dögg. Fólk má auðvitað hafa skoðanir á húsinu sem slíku, útliti þess og hvernig því líkar það. Það er hins vegar ekki enn risið og mér finnst nú ekki snjallt að bera saman tvö hús, annað risið en hitt ekki, eins og Guja Dögg gerir þegar hún ber saman Veröld, hús Vigdísar Finnboga­dóttur, annars vegar og Hús íslenskra fræða hins vegar.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár