N1 Rafmagn ætlar að endurgreiða allt sem var ofrukkað – „Við gerðum mistök“

N1 Rafmagn harmar að hafa hækkað þrautavara­taxta án þess að leita fyrst annarra leiða til að veita öllum viðskipta­vinum sama verð og auglýst er. Allir fá nú lægsta taxta og þeir sem borguðu of mikið fá endur­greitt.

Hinrik Örn Bjarnason er framkvæmdastjóri N1.
Hinrik Örn Bjarna­son er fram­kvæmda­stjóri N1. Mynd: N1

N1 Rafmagn hefur ákveðið að endur­greiða þeim viðskipta­vinum sem komu til félagsins í gegnum þrautavara­leið stjórn­valda þann mismun sem var á auglýstum taxta og þrautavara­taxta frá upphafi. Áður hafði raforku­salinn, sem er í eigu skráða fyrir­tækisins Festi, ákveðið að endur­greiða viðskipta­vinum fyrir tímabilið 1. nóvember 2021 til 31. desember 2021 án þess að útskýra með skýrum hætti af hverju það yrði einungis miðað við það tímabil.

N1 rafmagn ákvað Í mars 2021 að hækka þrautavara­taxta í samræmi við verð á skammtíma­markaði. Sú ákvörðun um að breyta verð­lagningu á rafmagni til þeirra fjölmörgu viðskipta­vina sem koma óafvitandi i viðskipti hjá félaginu á grund­velli þrautavara­kerfisins, hefur verið harðlega gagnrýnd af samkeppnis­aðilum félagsins og jafnvel kölluð okur. Gagn­rýnendur hafa sagt verðið sem neytendur voru látnir greiða hafi verið allt að 75 prósent yfir auglýstu verði.

í tilkynningu sem send var út í morgun segir að N1 Rafmagn harmi „að hafa hækkað þrautavara­taxtann án þess að leita fyrst annarra leiða til að veita öllum viðskipta­vinum sama verð og auglýst er.“ Þar er eftir­farandi haft eftir Hinriki Erni Bjarna­syni, framkvæmda­stjóra N1: „Við gerðum mistök, öxlum ábyrgð á þeim og munum læra af þessu máli.“

Ætluðu fyrst aðeins að endurgreiða tvo mánuði

Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem N1 tilkynnir um endur­greiðslur og biður neytendur afsökunar. Þann 20. janúar sendi félagið frá sér tilkynningu og sagðist þá taka mark á þeim athuga­semdum sem gerðar hafa verið við tvö­falda verð­lagningu fyr­ir­tæk­is­ins á raf­orku í opin­berri umræðu og baðst „vel­virð­ingar á því að hafa ekki gert það fyrr.“

N1 rafmagn sagðist ætla að selja alla raf­orku til heim­ila sam­kvæmt upp­gefnum taxta til allra sinna við­skipta­vina, sama hvort þeir hafi skráð sig í við­skipti eða komið í við­skipti óaf­vit­andi í gegnum þrauta­vara­leið­ina svoköll­uðu. Það sagðist jafn­framt ætla að end­ur­greiða mis­mun á upp­gefnum taxta og þrauta­vara­taxta aftur til 1. nóv­em­ber síð­ast­lið­ins­.

Þegar Kjarninn óskaði eftir útskýringum á því af hverju N1 Rafmagn, ætlaði einungis að endur­greiða mismun undan­farinna tveggja mánaða, voru svörin loðin. Nú hefur verið ákveðið að endur­greiða lengra aftur.

Allir fá nú lægsta taxta

Í tilkynningunni sem N1 rafmagn sendi í morgun segir að félagið hafi fyrst tekið við sem sölu­fyrirtæki til þrauta­vara 1. maí 2020 en enginn munur var á auglýstum taxta til heimila og þrautavara­taxta til heimila fram til mars 2021. „Endur­greiðslan á því við um tímabilið 1. mars 2021 til 31. október 2021 og getur heildar­upphæð numið allt að 40 milljónum króna. Þegar hefur verið endur­greitt til viðskipta­vina fyrir tímabilið 1. nóvember 2021 til 31. desember 2021.“

þar segir enn fremur að það hafi verið ósk N1 Rafmagns að finna sann­gjarna niður­stöðu í máli félagsins sem söluaðili til þrauta­vara, hratt og örugglega. „Leitað var til Orku­stofnunar, sem hefur umsjón og eftirlit með þrautavara­leiðinni, um leiðsögn hvað það varðar. Þar sem Orku­stofnun hefur ekki enn birt félaginu niður­stöður sínar eða gefið svör við þeim spurningum sem lúta að stöðu N1 Rafmagns sem orkusali til þrauta­vara, þykir nauðsynlegt að koma til móts við þrautavara­viðskipta­vini félagsins eins fljótt og kostur er með endur­greiðslu á uppgefnu tímabili. Um leið er beðist velvirðingar á ofan­greindu misræmi í verð­lagningu og munu allir viðskipta­vinir sem koma í gegnum þrautavara­leið færast á lægsta taxta félagsins hér eftir.“

Þrauta-vara-hvað?

Orku­­sala til þrauta­vara er kannski ekki eitt­hvað sem hinn almenni neyt­andi veltir fyrir sér í amstri hvers­­dags­ins, en það raf­­orku­­fyr­ir­tæki sem er með lægst með­­al­verð á til­­­teknu tíma­bili er útnefnt sem raforku­sali til þrauta­vara af Orku­­stofn­un.

Fyr­ir­tæki eru valin til að gegna þessu hlut­verki til sex mán­aða í senn og hefur N1 Raf­­­magn, sem áður hét Íslensk orku­mið­l­un, verið valið þrisvar sinnum í hlut­verkið frá því að valið fór fyrst fram með þessum hætti árið 2020.

Á þessa svoköll­uðu þrauta­vara­­leið fær­­ast síðan þeir raf­­orku­not­endur sem ekki hafa af ein­hverjum ástæðum valið sér til­­­tek­inn raf­­orku­­sala til að vera í við­­skiptum við. Þetta getur gerst þegar fólk flytur í nýtt hús­næði eða tekur við sem nýir við­­skipta­vinir á neyslu­veitu, til dæmis við frá­­­fall maka sem áður var skráður fyrir raf­­­magns­­reikn­ingn­­um. Eða ein­fald­­lega, þegar fólk hefur ekki hug­­mynd um að það eigi og þurfi að velja sér sér­­stak­­lega fyr­ir­tæki til að vera í við­­skiptum við um raf­­orku.

Núgild­andi reglu­­gerð um þetta fyr­ir­komu­lag var sett árið 2019, af Þór­­dísi Kol­brúnu R. Gylfa­dóttur fyrr­ver­andi ráð­herra orku­­mála. Ekki er skýrt af lestri þeirrar reglu­­gerðar hvort orkusali til þrauta­vara skuli að veita þeim sem koma í við­­skipti sjálf­krafa sama verð og öðrum not­end­­um. Þó er orku­sal­inn settur í það hlut­verk á grund­velli þess að vera með lægsta orku­verðið á land­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár