N1 Rafmagn biðst velvirðingar og ætlar að endurgreiða mismun frá 1. nóvember

„Við störfum á neyt­enda­mark­aði og tökum mark á þeim athuga­semdum sem okkur ber­ast og biðj­umst vel­virð­ingar á því að hafa ekki gert það fyrr,“ segir í yfir­lýs­ingu frá N1 Rafmagni, sem hefur verið gagn­rýnt fyrir tvö­falda verð­lagn­ingu á raf­orku.

Hinrik Örn Bjarnason er framkvæmdastjóri N1.
Hinrik Örn Bjarna­son er fram­kvæmda­stjóri N1. Mynd: N1

N1 Rafmagn seg­ist taka mark á þeim athuga­semdum sem gerðar hafa verið við tvö­falda verð­lagn­ing­ingu fyr­ir­tæk­is­ins á raf­orku í opin­berri umræðu und­an­farna tvo daga og biðst fyr­ir­tækið „vel­virð­ingar á því að hafa ekki gert það fyrr,“ í yfir­lýs­ingu sem Hinrik Örn Bjarna­son fram­kvæmda­stjóri N1 sendi frá sér á sjö­unda tím­anum í kvöld.

Fyr­ir­tækið seg­ist ætla að selja alla raf­orku til heim­ila sam­kvæmt upp­gefnum taxta til allra sinna við­skipta­vina, sama hvort þeir hafi skráð sig í við­skipti eða komið í við­skipti óaf­vit­andi í gegnum þrauta­vara­leið­ina svoköll­uðu. Fyr­ir­tækið seg­ist jafn­framt ætla að end­ur­greiða mis­mun á upp­gefnum taxta og þrauta­vara­taxta aftur til 1. nóv­em­ber síð­ast­lið­ins.

Í yfir­lýs­ingu N1 segir að það hafi aldrei verið ætl­unin að blekkja neyt­endur á nokkurn hátt og að fyr­ir­tæk­inu þyki leitt ef neyt­endur túlki það svo. „Vegna skyndi­legrar inn­komu þrauta­vara­við­skipta til fyr­ir­tæk­is­ins, þurfti N1 Rafmagn að kaupa orku handa þessum hópi á skamm­tíma­mark­aði þar sem verð eru afar breyti­leg og hafa hækkað ört á síð­ustu miss­erum,“ segir í yfir­lýs­ing­unni frá N1.

Þar er því bætt við að N1 Rafmagn hafi á engum tíma­punkti „fengið mis­mun á upp­gefnum taxta sam­kvæmt verð­skrá og þrauta­vara­taxta í sinn vasa“, heldur hafi Lands­virkjun, sem selur N1 orku á skamm­tíma­mark­aði „á mun dýr­ara verði en til langs tíma“, fengið mis­mun­inn í vas­ann.

Fyr­ir­tækið seg­ist hvetja Orku­stofnun ein­dregið til að hraða vinnu sinni varð­andi þær kvaðir sem orku­sali til þrauta­vara þarf að und­ir­gang­ast og segir í yfir­lýs­ing­unni að það sé erfitt fyrir þann orku­sala sem verður fyrir val­inu að gera ráð fyrir þessum hóp í lang­tíma­við­skiptum sínum við birgja.

„Taka þarf inn í mynd­ina ófyr­ir­sjá­an­legar verð­sveiflur á orku­mark­aði og getu orku­sal­ans til að bjóða þessum hópi orku á sem bestu kjörum,“ segir í yfir­lýs­ingu N1 Rafmagns.

Yfirlýsing N1 í heild sinni má lesa hér að neðan

Í ljósi umræðu síð­ustu tveggja daga varð­andi N1 Rafmagn sem sölu­að­ila til þrauta­vara, vill N1 Rafmagn koma eft­ir­far­andi á fram­færi.

Ákveðið hefur verið að frá og með 1. jan­úar 2022 muni N1 Rafmagn selja alla raf­orku til heim­ila sam­kvæmt upp­gefnum taxta til allra okkar við­skipta­vina, hvort sem þeir hafa skráð sig í við­skipti hjá okkur eða koma í gegnum þrauta­vara­leið stjórn­valda. Jafn­framt hefur verið ákveðið að end­ur­greiða mis­mun á upp­gefnum taxta og þrauta­vara­taxta frá 1. nóv­em­ber síð­ast­liðnum þegar félagið var valið af Orku­stofnun til að sinna þessu hlut­verki. Við störfum á neyt­enda­mark­aði og tökum mark á þeim athuga­semdum sem okkur ber­ast og biðj­umst vel­virð­ingar á því að hafa ekki gert það fyrr.

Aldrei var ætl­unin að blekkja neyt­endur á nokkurn hátt og þykir okkur leitt ef neyt­endur túlka það svo. Vegna skyndi­legrar inn­komu þrauta­vara­við­skipta til fyr­ir­tæk­is­ins, þurfti N1 Rafmagn að kaupa orku handa þessum hópi á skamm­tíma­mark­aði þar sem verð eru afar breyti­leg og hafa hækkað ört á síð­ustu miss­erum. Því skal haldið til haga að N1 Rafmagn hefur á engum tíma­punkti fengið mis­mun á upp­gefnum taxta sam­kvæmt verð­skrá og þrauta­vara­taxta í sinn vasa, heldur Lands­virkjun sem selur orku á skamm­tíma­mark­aði á mun dýr­ara verði en til langs tíma.

Á sama tíma hvetjum við Orku­stofnun ein­dregið til að hraða vinnu sinni hvað varðar þær kvaðir sem orku­sali til þrauta­vara þarf að und­ir­gang­ast þar sem erfitt er fyrir þann sem fyrir val­inu verður að gera ráð fyrir þessum hóp í lang­tíma­við­skiptum sínum við birgja. Taka þarf inn í mynd­ina ófyr­ir­sjá­an­legar verð­sveiflur á orku­mark­aði og getu orku­sal­ans til að bjóða þessum hópi orku á sem bestu kjörum.

Við fögnum virkri sam­keppni og munum nú sem áður þjón­usta okkar við­skipta­vini með það að leið­ar­ljósi að bjóða lægsta verð hverju sinni. (Sjá https://aurbjorg.is/rafmagn). Við hvetjum alla neyt­endur til að skrá sig sjálfa hjá þeim orku­sala sem þeir kjósa, án aðkomu stjórn­valda.

Virð­ing­ar­fyllst,

Hinrik Örn Bjarna­son, fram­kvæmda­stjóri N1

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár