Tvöföld og ógagnsæ verðlagning á rafmagni til rannsóknar

Verð­lagn­ing N1 Rafmagns á raf­magni til þeirra sem koma óaf­vit­andi í við­skipti hjá félag­inu hefur verið harð­lega gagn­rýnd af sam­keppn­is­að­ilum. Lög­fræð­ingur hjá Orku­stofnun segir ekki hafa verið fyr­ir­séð að N1 myndi rukka eins og fyr­ir­tækið gerir.

Ekki er hægt að segja til um það hvenær Orku­stofnun verður búin að ljúka rann­sókn máls sem varðar verð­lagn­ingu N1 Rafmagns á raf­orku til við­skipta­vina sem ekki hafa valið að vera í við­skiptum við fyr­ir­tækið. Stofn­unin leggur áherslu á að skoða málið vel, en er fáliðuð og hefur mörg verk­efni á sinni könnu þessa dag­ana, sam­kvæmt svari Hönnu Bjargar Kon­ráðs­dóttur, lög­fræð­ings Orku­stofn­unar, við fyr­ir­spurn Kjarnans um fram­gang máls­ins.

Formleg kvörtun vegna við­skipta­hátta N1 Rafmagns, sem áður hét Íslensk orku­miðlun, kom inn á borð Orku­stofn­unar um miðjan des­em­ber. Eins og fjallað var um í tveimur fréttum Stund­ar­innar í kjöl­farið varðar kvörtunin það að N1 Rafmagn, sem Orku­stofnun hefur útnefnt sem svo­kall­aðan orku­sala til þrauta­vara, hefur rukkað neyt­endur sem fær­ast óaf­vit­andi í við­skipti við félagið öllu hærra verð fyrir raf­orku en almennum við­skipta­vinum stendur til boða.

Hanna Björg segir í sam­tali við Kjarnann að það hafi ekki verið fyr­ir­séð að þessi staða kæmi upp – og sömu­leiðis lætur hún þess getið að hún þekki engin dæmi þess frá Evrópu að orku­sölu­fyr­ir­tæki séu með tvö verð á raf­orku eins og N1, þ.e. einn opin­beran taxta fyrir neyt­endur sem velja sér að koma í við­skipti og annan taxta, sem hvergi er opin­ber­lega upp­gef­inn, fyrir hina svoköll­uðu þrauta­vara­við­skipta­vini.

Á sama tíma, segir Hanna Björg, var það ekki fyr­ir­séð að margir stórir kúnnar væru að lenda í þrauta­vara­við­skiptum og það sé sér­stakt rann­sókn­ar­efni enda eigi allir að vera upp­lýstir um rétt sinn til að velja sér sölu­fyr­ir­tæki. Hún segir að rann­sókn Orku­stofn­unar taki til þess hvað hafi gerst, hvernig heild­sölu­mark­að­ur­inn hafi breyst og hvort verðið hafi hækkað mjög mikið. Það sé mjög margt sem taka þurfti til skoð­unar á grund­velli þeirrar kvört­unar sem barst.

Hún segir að ástæða sé til að skoða hvort ástæða sé til að breyta núver­andi fyr­ir­komu­lagi varð­andi orku­sölu til þrauta­vara og hvort aðrar leiðir væru betur til þess fallnar að ná þeim mark­miðum sem núver­andi fyr­ir­komu­lagi er ætlað að ná – að neyt­endur standi ekki skyndi­lega uppi orku­lausir og tryggt verði með betri hætti að þeir velji sér raf­orku­sala.

Stundin sagði frá nýjum vend­ingum í mál­inu síð­degis í gær, en sam­kvæmt frétt mið­ils­ins hefur Orku­stofnun nú sent út upp­færðar leið­bein­ingar til sölu­fyr­ir­tækja um að ekki sé hægt að selja orku til þrauta­varakúnna nema á birtu verði. Rannsókn Orku­stofn­unar heldur þó áfram og stofn­unin mun skera úr um hvort N1 Rafmagni hafi verið heim­ilt að rukka þrauta­vara­við­skipta­vini um hærra verð en opin­ber­lega var gefið upp af hálfu fyr­ir­tæk­is­ins.

Hörð gagnrýni frá keppinautum á raforkumarkaði

Keppi­nautar N1 Rafmagns á smá­sölu­mark­aði með raf­orku hafa gagn­rýnt þessa tvö­földu verð­lagn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins harð­lega á opin­berum vett­vangi. Berglind Rán Ólafs­dóttir, fram­kvæmda­stýra Orku nátt­úr­unnar, birti aðsenda grein á Vísi í gær þar sem hún segir N1 Rafmagn fá að okra á ómeð­vit­uðum neyt­endum í skjóli rík­is­valds­ins, með núver­andi fyr­ir­komu­lagi.

„Fyr­ir­tækið sem sendir opin­beru starfs­mönn­unum lægsta lista­verðið er nefni­lega búið að búa til sér­stakan okur­flokk fyrir unga parið og önnur þau sem ekki velja sér raf­magns­sala sjálf. Í stað­inn fyrir að borga lista­verðið sem opin­beru starfs­menn­irnir eru með í hönd­unum borga sögu­hetjur okkar verð sem er næstum tvö­falt hærra, 75% hærra en verðið sem var gefið upp til að verða þess­ara nauð­ung­ar­flutn­inga raf­orku­kaup­enda aðnjót­andi. Í stað þess að borga lista­verðið 6,44 kr eru þau að borga 11,16 kr. á kílóvatt­stund,“ segir í grein Berg­lindar.

Hún segir í grein­inni að núver­andi fyr­ir­komu­lag ekki bara óvið­un­andi, heldur sé það „alger­lega ótækt að ríkið taki að sér að flytja við­skipti mörg þús­und manns án vit­neskju þess yfir í hæsta verðið á mark­aðnum.“

Berglind Rán Ólafsdóttir framkvæmdastýra Orku náttúrunnar.
Berglind Rán Ólafs­dóttir fram­kvæmda­stýra Orku nátt­úr­unnar.

Svona gangi það hins vegar, „mánuð eftir mánuð eftir mánuð, að ung pör á öllum aldri sem eru að byrja búskap, eða bara að flytja, eru þvinguð af rík­inu í við­skipti við fyr­ir­tæki sem aug­lýsir lægsta verðið en rukkar svo hæsta verðið – lang­hæsta verðið hjá N1 raf­magn.“

Í sam­tali við Stundina í des­em­ber sagði Símon Ein­ars­son, einn eig­enda raf­orku­sal­ans Straum­lindar, að hann teldi málið hneyksli. „Verðið er allt of hátt. Maður vill bara sjá ákveðna sann­girni og mér finnst fólk hafa rétt á að vita þetta því það er bara verið að svindla á fólki,“ sagði Símon.

Framkvæmdastjóri N1 sagði fyrirtækið ekki reyna að blöffa einn né neinn

Í fram­halds­um­fjöllun Stund­ar­innar um málið kom þó fram frá for­svars­mönnum N1 að fyr­ir­tækið teldi sig ekki vera að hafa rangt við að neinu leyti, heldur væri ástæðan fyrir því að þrauta­varakúnnar væru á hærri taxta en þeim almenna sú að N1 Rafmagn gæti ekki gert ráð fyrir þessum kúnnum í lang­tímainn­kaupum.

„Við erum hins vegar vissu­lega að hvetja fólk til að skrá sig í við­skipti hjá okkur og greiða þá lægra verð hjá okkur. Vanda­málið er hins vegar að við höfum engar upp­lýs­ingar um fólkið sem kemur inn hjá okkur í gegnum þrauta­vara­leið­ina og getum því ekki haft sam­band við það. Við erum því ekk­ert að reyna að blöffa einn né neinn í þessum bransa og þetta er alveg heim­ilt sam­kvæmt lögum,“ sagði Hinrik Örn Bjarna­son fram­kvæmda­stjóri N1 í svari sínu til Stund­ar­innar.

Þrauta-vara-hvað?

Orkusala til þrauta­vara er kannski ekki eitt­hvað sem hinn almenni neyt­andi veltir fyrir sér í amstri hvers­dags­ins, en það raf­orku­fyr­ir­tæki sem er með lægst með­al­verð á til­teknu tíma­bili er útnefnt sem raf­orku­sali til þrauta­vara af Orku­stofnun.

Fyr­ir­tæki eru valin til að gegna þessu hlut­verki til sex mán­aða í senn og hefur N1 Rafmagn, sem áður hét Íslensk orku­miðlun, verið valið þrisvar sinnum í hlut­verkið frá því að valið fór fyrst fram með þessum hætti í maí árið 2020.

Á þessa svoköll­uðu þrauta­vara­leið fær­ast síðan þeir raf­orku­not­endur sem ekki hafa af ein­hverjum ástæðum valið sér til­tek­inn raf­orku­sala til að vera í við­skiptum við. Þetta getur gerst þegar fólk flytur í nýtt hús­næði eða tekur við sem nýir við­skipta­vinir á neyslu­veitu, til dæmis við frá­fall maka sem áður var skráður fyrir raf­magns­reikn­ingnum. Eða ein­fald­lega, þegar fólk hefur ekki hug­mynd um að það eigi og þurfi að velja sér sér­stak­lega fyr­ir­tæki til að vera í við­skiptum við um raf­orku.

N1 Rafmagn auglýsir þessa dagana af miklum móð að fyrirtækið bjóð upp á ódýrustu raforkuna á Íslandi. Á vef fyrirtækisins er tekið fram að þetta verð gildi ekki um þrautavaraleið.
N1 Rafmagn aug­lýsir þessa dag­ana af miklum móð að fyr­ir­tækið bjóð upp á ódýr­ustu raf­ork­una á Íslandi. Á vef fyr­ir­tæk­is­ins er tekið fram að þetta verð gildi ekki um þrauta­vara­leið.

Núgild­andi reglu­gerð um þetta fyr­ir­komu­lag var sett árið 2019, af Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfa­dóttur fyrr­ver­andi ráð­herra orku­mála. Ekki er skýrt af lestri þeirrar reglu­gerðar hvort orku­sali til þrauta­vara skuli að veita þeim sem koma í við­skipti sjálf­krafa sama verð og öðrum not­endum. Þó er orku­sal­inn settur í það hlut­verk á grund­velli þess að vera með lægsta orku­verðið á land­inu.

Hanna Björg segir við Kjarnann að ef horft sé út fyrir land­stein­ana sé mis­mun­andi hvernig ríki ákvarði hver skuli vera orku­sali til þrauta­vara, í Bret­landi sé til dæmis ekki horft til þess að lægsta verðið ráði för þegar verið er að velja þrauta­vara­að­il­ann. Þar í landi sé hins vegar ljóst af gild­andi lög­gjöf að ekki sé gert ráð fyrir því að fólk lendi hjá þrauta­vara­sala á öðrum taxta en sá orku­sali aug­lýsir.

Hið nýlega fyr­ir­komu­lag hvað þetta varðar hér á landi á rætur sínar að rekja til þess að Orku­stofnun tók árið 2019 ákvarð­anir þess efnis að allar dreifi­veitur lands­ins hefðu gerst brot­legar við þágild­andi reglu­gerð um raf­orku­við­skipti og mæl­ingar, með því að færa við­skipta­vini sjálf­krafa til tengdra orku­sölu­fyr­ir­tækja við not­enda­skipti.

Þessir starfs­hættir, segir Hanna Björg, voru leifar af gam­alli tíð, áður en upp­skipt­ing raf­orku­fyr­ir­tækj­anna átti sér stað. Í kjöl­far inn­leið­ingar á öðrum raf­orku­pakka Evr­ópu­sam­bands­ins hér á landi áttu síðan allir almennir not­endur að geta valið sér það sölu­fyr­ir­tæki sem þeir vildu versla við. Árið 2019 segir Hanna Björg að heil­mikil vinna unnin við að breyta reglu­verk­inu og nið­ur­staðan varð á end­anum að fela Orku­stofnun að til­nefna ákveðið fyr­ir­tæki sem sölu­fyr­ir­tæki til þrauta­vara á grund­velli lægsta verðs.

Hún segir að „höf­uð­mark­miðið“ með þessum þrauta­vara­við­skiptum sé að neyt­endur fái raf­orku þrátt fyrir að hafa ekki valið sér raf­orku­sala. Fólk sé mjög háð raf­orku og það geti haft hörmu­legar afleið­ingar ef heim­ili eða stofn­anir hrein­lega verði raf­magns­laus þó það væri ein­ungis í stuttum tíma. Hún segir núver­andi fyr­ir­komu­lag líka hafa búið til hvata fyrir aukna verð­sam­keppni á þessum mark­aði.

„Að þessu leyti má segja að það hafi náðst góður árangur í að efla sam­keppni á mark­aði og líka neyt­enda­vit­und almenn­ings um að taka ákvörðun um hvar þau vilji kaupa raf­orku,“ segir Hanna Björg.

Algengt að þrautavaraverð lúti eftirliti eða sé ákvarðað

Starfs­hópur um orku­ör­yggi fjall­aði um þrauta­vara­leið­ina, sem byggir á til­skipun Evr­ópu­sam­bands­ins um innri markað raf­orku, í skýrslu sem gefin var út árið 2020. Þar segir að sam­kvæmt til­skupun­inni eigi heim­il­is­not­endur rétt á alþjón­ustu hvað raf­orku varðar, þ.e. „að fá afhenta raf­orku af til­teknum gæðum á sann­gjörnu verði sem er auð­veld­lega og greini­lega sam­an­burð­ar­hæft, gagn­sætt og án mis­mun­unar“.

Hverju og einu ríki er síðan falið að útfæra þessa alþjón­ustu. Starfs­hóp­ur­inn segir frá því í skýrsl­unni að í flestum ríkjum ESB sé skil­greindur svo­kall­aður sölu­að­ili til þrauta­vara – og þá sé „algengt, en ekki algilt, að verð fyrir raf­ork­una sé háð sér­stöku eft­ir­liti eða hrein­lega ákvarðað af eft­ir­lits­að­ila“ en til­gangur alþjón­ust­unnar þó fyrst og fremst sagður sá að sjá til þess að heim­ili sem ekki velji raf­orku­sala fái samn­ing um raf­orku.

Hanna Björg segir að um 40 pró­sent aðild­ar­ríkja á raf­orku­mark­aði Evr­ópu­sam­bands­ins séu með ein­hvers­konar verð­stýr­ingar, en að þær þykji ekki ákjós­an­legar og geti haft slæm áhrif á mark­að­inn, sér í lagi ef þær hafa þannig áhrif að verð sé undir kostn­að­ar­verði.

Verðstýringar á orkusölu til þrautavara tíðkast að einhverju leyti allvíða í þeim ríkjum sem eru hluti af innri markaði Evrópusambandins um raforku.
Verð­stýr­ingar á orku­sölu til þrauta­vara tíðkast að ein­hverju leyti all­víða í þeim ríkjum sem eru hluti af innri mark­aði Evr­ópu­sam­band­ins um raf­orku.

Hún segir jafn­framt að með reglu­gerð­inni frá 2019 hafi auknar skyldur verið lagðar á sölu­fyr­ir­tæki og dreifi­veitur, með það að mark­miði að upp­lýsa neyt­endur um rétt sinn til að velja sér raf­orku­sölu­fyr­ir­tæki, leið­beina þeim með aðgengi­legum og sýni­legum og hætti og gæta jafn­ræðis í hví­vetna þannig að ekki sé til dæmis vakin athygli not­enda á einu sölu­fyr­ir­tæki umfram annað.

Varðandi rann­sókn­ina sem er í gangi hjá Orku­stofnun segir Hanna Björg að stofn­un­inni beri að rann­saka málið með full­nægj­andi hætti og hafa allar stað­reyndir á hreinu. „Meðal ann­ars að skoða frá hvaða tíma­punkti slíkir við­skipta­hættir hafa verið við­hafðir og hver ástæðan er fyrir þeim. Við erum stjórn­sýslu­stofnun sem ber að hafa eft­ir­lit með raf­orku­mark­aði og á sama tíma er okkar meg­in­mark­mið að þjóna almenn­ingi í land­inu,“ segir Hanna Björg.

Spurð út í heim­ildir Orku­stofn­unar til að beita sér, komi í ljós að eitt­hvað athuga­vert þyki við tvö­falda verð­lagn­ingu N1 Rafmagns til neyt­enda, segir Hanna Björg að þær séu að finna í ákvæðum raf­orku­laga.

Samkvæmt lög­unum hefur Orku­stofnun heim­ild til að beita dag­sektum ef eft­ir­lits­skyld starf­semi sam­ræm­ist ekki skil­yrðum þeirra sömu laga, eða áminn­ingum með veittum fresti til úrbóta, komi í ljós að brotið hafi verið gegn lögum. Hvort ástæða sé til að grípa til ein­hverra slíkra aðgerða er óvíst, enda liggur engin ákvörðun fyrir hjá Orku­stofnun vegna máls­ins.

Eignalítið fyrirtæki keypt á 722,5 milljónir

Eggert Þór Kristófersson forstjóri Festi og Magnús Júlíusson, þáverandi framkvæmdastjóri Íslenskrar orkumiðlunar.
Eggert Þór Krist­ó­fers­son for­stjóri Festi og Magnús Júl­í­us­son, þáver­andi fram­kvæmda­stjóri Íslenskrar orku­miðl­unar.

Rifjum upp hvernig það kom til að N1 fór að gera sig gild­andi á raf­orku­mark­aði. Fyr­ir­tækið Íslensk orku­miðlun byrj­aði að selja íslenskum neyt­endum raf­orku árið 2017. Félagið var stofnað af þeim Bjarna Ármanns­syni fjár­festi sem var stærsti hlut­hafi þess og Magnúsi Júl­í­us­syni, sem var fram­kvæmda­stjóri félags­ins og einnig hlut­hafi. Hann var nýlega ráð­inn aðstoð­ar­maður Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur ráð­herra.

Aðrir stærstu hlut­hafar Íslenskrar orku­miðl­unar voru Kaup­fé­lag Skag­firð­inga og Ísfélag Vest­manna­eyja og síðar Festi, en Festi keypti félagið síðan að fullu undir lok árs 2020 og greiddi 722,5 millj­ónir króna fyrir félagið, sem síðar féll undir N1 og fékk síðla árs 2021 nafnið N1 Rafmagn.

Verð­matið á félag­inu á þeim tíma er það var selt var alls 850 millj­ónir króna, sem vakti nokkra athygli, enda var hátt í 70 pró­sent af bók­færðu virði félags­ins óefn­is­legar eignir í formi við­skipta­vildar. Ekki lá fyrir í hverju nákvæm­lega þessu verð­mæta við­skipta­vild fælist.

Stundin fjall­aði um náin tengsl lyk­il­leik­enda í þessum við­skiptum þegar þau áttu sér stað, en Eggert Þór Krist­ó­fers­son for­stjóri Festi er vinur og fyrr­ver­andi við­skipta­fé­lagi Bjarna Ármanns­sonar, og var á árum áður fram­kvæmda­stjóri fjár­fest­ing­ar­fé­lags Bjarna, sem er einmitt sama fyr­ir­tæki og Festi keypti hlut­inn í Íslenskri orku­miðlun af.

Þáver­andi stjórn­ar­for­maður Festi, Þórður Már Jóhann­es­son, sem nýlega lét af störfum í kjöl­far ásak­ana um kyn­ferð­is­brot, hefur einnig verið við­skipta­fé­lagi Bjarna og þekkt hann frá því á upp­vaxt­ar­árum þeirra á Akranesi, eins og blogg­ar­inn Guð­mundur Hörður Guð­munds­son vakti athygli á í færslu sinni um málið, sem sett var fram undir fyr­ir­sögn­inni „Vin­sam­legt verð­mat“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið undanfarið ár