Loðin svör um endurgreiðslur til neytenda berast frá N1 Rafmagni

Óskir um útskýringar á því af hverju N1 Rafmagn, sem hefur frá sumrinu 2020 rukkað þrautavara­viðskipta­vini meira fyrir rafmagn en almenna viðskipta­vini, ætli einungis að endur­greiða mismun undan­farinna tveggja mánaða, skila loðnum svörum.

Hinrik Örn Bjarnason er framkvæmdastjóri N1.
Hinrik Örn Bjarna­son er fram­kvæmda­stjóri N1. Mynd: N1

Ástæðurnar fyrir því að orku­sölu­fyrirtækið N1 Rafmagn ákvað að miða boðaðar endur­greiðslur til hóps neytenda við 1. nóvember 2021, þrátt fyrir að ljóst sé að fyrir­tækið hafi allt frá sumrinu 2020 verið með tvöfalda verð­lagningu á rafmagni, eru enn nokkuð óskýrar þrátt fyrir að svör um málið hafi borist frá fyrir­tækinu.

Kjarninn beindi spurningum til N1 í síðustu viku og spurði af hverju dóttur­félagið N1 Rafmagn hefði einungis ákveðið að endur­greiða neytendum mismun á þrauta­varaverði og almennu verði á raforku frá 1. nóvember, þrátt fyrir að fyrir liggi að N1 Rafmagn, sem áður hét Íslensk orku­miðlun, hafi allt frá sumrinu 2020 rukkað viðskipta­vini sem eru í svokölluðum þrautavara­viðskiptum um hærra verð en almennt er auglýst hjá félaginu.

„Í ljósi umræðu um aukinn verðmun eftir verð­hækkanir á skammtíma­markaði vildi N1 Rafmagn koma til mót við þann hóp sem fær rafmagn eftir þrautavara­leið og miðum þess vegna við 1. nóvember en þá var N1 Rafmagn síðast valinn orkusali til þrauta­vara af Orku­stofnun,“ segir í skriflegu svari Hinriks Arnar Bjarna­sonar, framkvæmda­stjóra N1, til Kjarnans.

Forstjóri Festi segir félagið ekki telja þetta ofrukkanir

Í skriflegu svari Hinriks Arnar, sem virðist að mestu leyti orðrétt það sama og Eggert Þór Krist­ófersson forstjóri Festi, móður­félags N1, veitti Stundinni, er bent á að N1 Rafmagn hafi þurft að afla raforku handa þeim hópi sem beint var til fyrir­tækisins eftir þrautavara­leið á skammtíma­markaði „þar sem verð eru mun hærri og sveiflu­kenndari en þegar raforku­salar gera langtíma­samninga við raforku­birgja lengra fram í tímann.“

„Verð á þessum markaði eru í hámarki þessa dagana enda orku­skortur og aukin eftir­spurn á landsvísu. Þrautavara­viðskipta­vinir hafa greitt meðal­talsverð af því rafmagni sem N1 Rafmagn verslar á skammtíma­markaði á hverju tímabili fyrir sig,“ segir í svari Hinriks, en vert að taka fram að N1 Rafmagn hafði hvergi látið þess getið að fyrir­tækið væri að rukka þrautavara­viðskipta­vini sína á öðrum taxta en auglýstur var í verðskrá félagsins.

Neytendur þurftu að fatta það sjálfir og hafa samband við N1 Rafmagn til þess að fá lægra orkuverð. Á síðustu vikum hefur verðið verið sagt allt að 75 prósentum yfir opinber­lega auglýstu verði N1 Rafmagns.

Í frétt Stundarinnar er haft eftir Eggerti Þór að samkvæmt skilningi Festi hafi ekki verið „um ofrukkanir að ræða“.

Afsökunarbeiðni og breytt verklag

Óljóst er því af hverju N1 Rafmagn fann sig knúið til þess að senda frá sér yfir­lýsingu í síðustu viku um að til stæði að endur­greiða neytendum, sem félagið lítur ekki svo á að hafi verið ofrukkaðir.

„Við störfum á neytenda­markaði og tökum mark á þeim athuga­semdum sem okkur berast og biðjumst velvirðingar á því að hafa ekki gert það fyrr,“ sagði í þeirri yfir­lýsingu, en þar var einnig greint frá því að frá 1. janúar myndi félagið rukka alla viðskipta­vini eftir sama taxta fyrir raforku.

Eftir að þessi afsökunar­beiðni var sett fram hafa hins vegar verið gerðar athuga­semdir við að N1 Rafmagn hyggist einungis endur­greiða viðskipta­vinum mismun undan­farinnar tveggja mánaða, þegar ljóst er að fyrir­tækið hefur verið með tvöfalda verð­lagningu á rafmagni um lengri tíma.

Fyrirkomulagið þurfi að endurskoða – gert ráð fyrir 50 prósent álagi í fyrri reglum

Í svari Hinriks segir að N1 Rafmagn hafi beðið um fund með Orku­stofnun, þar sem fyrir­tækið muni meðal annars „kalla eftir skýrum og rökstuddum upplýsingum frá Orku­stofnun um hvernig stofnunin ætlar sér að koma til móts við N1 Rafmagn vegna stöðu fyrir­tækisins sem orkusali til þrauta­vara“ og segir Hinrik að um sé að ræða nýtt fyrir­komulag sem augljós­lega þurfi að lagfæra.

Hinrik Örn segir að minna megi á að í fyrra fyrir­komulagi um orkusölu til þrauta­vara hafi verið skrifað inn í reglugerð að gert væri ráð fyrir því að neytendur sem ekki völdu sér raforku­sala sjálfir greiddu 50 prósentum meira fyrir orkuna en þeir sem voru með samning við viðkomandi orkusala.

„Í dæmi Orku nátt­úrunnar væri það 8,82kr + 50% = 13,32kr/kWst. Auk þess sáu veiturnar um að sölu­fyrirtækin í þeirra eigu fengu viðskiptin,“ segir í svari Hinriks Arnar.

Þrauta-vara-hvað?

Orku­sala til þrauta­vara er kannski ekki eitt­hvað sem hinn almenni neyt­andi veltir fyrir sér í amstri hvers­dags­ins, en það raf­orku­fyr­ir­tæki sem er með lægst með­al­verð á til­teknu tíma­bili er útnefnt sem raf­orku­sali til þrauta­vara af Orku­stofn­un.

Fyr­ir­tæki eru valin til að gegna þessu hlut­verki til sex mán­aða í senn og hefur N1 Raf­magn, sem áður hét Íslensk orku­miðl­un, verið valið þrisvar sinnum í hlut­verkið frá því að valið fór fyrst fram með þessum hætti árið 2020.

Á þessa svoköll­uðu þrauta­vara­leið fær­ast síðan þeir raf­orku­not­endur sem ekki hafa af ein­hverjum ástæðum valið sér til­tek­inn raf­orku­sala til að vera í við­skiptum við. Þetta getur gerst þegar fólk flytur í nýtt hús­næði eða tekur við sem nýir við­skipta­vinir á neyslu­veitu, til dæmis við frá­fall maka sem áður var skráður fyrir raf­magns­reikn­ingn­um. Eða ein­fald­lega, þegar fólk hefur ekki hug­mynd um að það eigi og þurfi að velja sér sér­stak­lega fyr­ir­tæki til að vera í við­skiptum við um raf­orku.

Núgild­andi reglu­gerð um þetta fyr­ir­komu­lag var sett árið 2019, af Þór­dísi Kol­brúnu R. Gylfa­dóttur fyrr­ver­andi ráð­herra orku­mála. Ekki er skýrt af lestri þeirrar reglu­gerðar hvort orku­sali til þrauta­vara skuli að veita þeim sem koma í við­skipti sjálf­krafa sama verð og öðrum not­end­um. Þó er orku­sal­inn settur í það hlut­verk á grund­velli þess að vera með lægsta orku­verðið á land­inu.

Ekki fyrirséð staða

Hanna Björg Konráðs­dóttir lögfræðingur hjá Orku­stofnun sagði í samtali við Kjarnann um þetta mál að það hefði ekki verið fyrirséð að N1 Rafmagn myndi sem orkusali til þrauta­vara rukka viðskipta­vini um hærra verð en félagið byði almennt upp á.

Hún lét þess sömuleiðis getið að hún þekkti engin dæmi þess frá Evr­ópu að orku­sölu­fyr­ir­tæki væru með tvö verð á raf­orku eins og N1 hefði verið með, þ.e. einn opin­beran taxta fyrir neyt­endur sem velja sér að koma í við­skipti og annan taxta, sem hvergi væri opin­ber­lega upp­gef­inn, fyrir hina svoköll­uðu þrauta­vara­við­skipta­vini.

Orku­stofnun sendi í síðustu viku út upp­færðar leið­bein­ingar til sölu­fyr­ir­tækja um að ekki væri hægt að selja orku til þrauta­varakúnna nema á birtu verði. Rann­sókn Orku­stofn­unar á málinu er enn í gangi og stofn­unin mun skera úr um hvort N1 Raf­magni hafi verið heim­ilt að rukka þrauta­vara­við­skipta­vini um hærra verð en opin­ber­lega var gefið upp af hálfu fyr­ir­tæk­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár