Óvissa um framtíð írönsku siðgæðislögreglunnar

Óvissa ríkir um siðgæðis­lögregluna í Íran eftir að dómsmála­ráðherra landsins lagði til að leggja hana niður. En hefur siðgæðis­lögreglan virkilega lagt niður störf eða eru þetta orðin tóm til að friðþægja mótmælendur?

Mótmæli hafa staðið yfir í Íran í tæpa þrjá mánuði.
Mótmæli hafa staðið yfir í Íran í tæpa þrjá mán­uði. Mynd: EPA

Mohammad Jafar Montazeri, dómsmála­ráðherra Írans greindi frá því á laugardag að siðgæðis­lögreglan í landinu yrði lögð niður. Ráðherrann tilkynnti einnig að til stæði að meta hvort tilefni sé til að breyta ströngum lögum um klæðaburð kvenna og notkun höfuðslæðu (hijab).

Raddir þess efnis hvort stjórn­völdum sé raun og veru alvara með þessum aðgerðum fóru fljótt að heyrast, fyrst frá Írönum sem búsettir eru í kúrdistahéröðum nágranna­ríkisins Íraks.

Montazeri segist aðspurður að siðgæðis­lögreglan „hafi verið lögð niður í þeirri mynd sem hún var stofnuð“. Írönsk stjórn­völd hafa samt sem áður ekki staðfest að siðgæðis­lögreglan hafi verið eða verði lögð niður og íranskir ríkis­fjölmiðlar segja að orð dómsmála­ráðherra hafi verið mistúlkuð.

Kveikjan að umfangsmestu mótmælum í áraraðir

Siðgæðis­lögreglan spilar stórt hlutverk í mótmælunum sem staðið hafa yfir í Íran í að verða þrjá mánuði. Upphaf mótmælanna má rekja til dauða Mahsa Amini, 22 ára konu frá Kúrdistan, sem lést í haldi siðgæðis­lögreglunnar í Íran.

Mahsa Amini, sem heitir réttu nafni Jina en nafnið Masha er í vegabréfi hennar þar sem hennar rétta nafn gefur til kynna kúrdískan uppruna hennar sem brýtur gegn írönskum lögum, var á ferða­lagi í Teher­an um miðjan september þegar íranska sið­gæð­is­lög­reglan hand­tók hana fyrir meint brot á reglum um að bera slæðu.

Mat sið­gæð­is­lög­reglan það svo að slæðan huldi ekki nægi­lega mikið af höfði hennar þar sem hár hennar var sýni­legt. Þá hafi klæðn­aður hennar einnig verið „óvið­eig­and­i“. Skikka átti Amini á nám­skeið um klæða­burð en skömmu eftir hand­töku hennar féll hún í dá. Hún lést á sjúkra­húsi þremur dögum síð­ar. Fjöl­skylda hennar og vitni segja að hún hafi verið barin til dauða. Yfir­völd full­yrða hins vegar að hún hafi fengið hjarta­á­fall.

Snýst um meira en að bera slæðu

Sið­gæð­is­lög­reglan hefur það hlut­verk að tryggja að íslömsk gildi séu í hávegum höfð og sjá um að refsa þeim sem virða það ekki, til að mynda þeim klæð­ast óvið­eig­andi. Meðal ákvæða sem finna má í írönskum lög­um, sem byggja á túlkun stjórn­valda á sjar­ía, laga­kerfi íslam, eru að konum ber að bera slæðu og klæð­ast skó­síð­um, víðum fötum til að fela lík­ams­vöxt sinn.

Mót­mælin hófust í Kúr­distan, heima­hér­aði Amini, þar sem konur tóku sig saman og brenndu slæður sín­ar. Mót­mælin breidd­ust fljótt út um allt land auk samstöðu­mótmæla í mörgum öðrum ríkjum. Mót­mæl­endur eru á öllum aldri, konur jafnt sem karl­ar, en það sem er ef til vill nýtt við mót­mælin nú er að þau eru leidd af konum af öllum kyn­slóðum og hafa stjórn­mála­skýrendur full­yrt að um fem­iníska bylt­ingu sé að ræða, bylt­ingu þar sem krafan snýst um frelsi til að velja.

Ströng lög um klæðnað hafa verið í gildi frá bylt­ing­unni árið 1979 en áhersl­urnar hafa verið mis­mun­andi eftir hvaða for­seti er við völd hverju sinni. Sitj­andi for­seti, Ebra­him Raisi, er mjög íhalds­sam­ur.

Kjarninn ræddi við íranskan flótta­mann sem búsettur er hér á landi um mótmælin í lok september. Hann segir mót­mælin snú­ast um meira en að bera slæðu. „Þetta eru ekki fyrstu mót­mælin en með hverjum mót­mæl­unum eykst stuðn­ing­ur­inn við þau. En fólk verður ekki sátt fyrr en breyt­ingum verður náð. Fólk þráir frelsi til að velja,“

Segja orð dómsmálaráðherra mistúlkuð

Siðgæðis­lögreglan er hluti af ríkis­lögreglunni í Íran og heyrir undir innan­ríkis­ráðuneytið. Siðgæðis­lögreglan hefur verið til í ýmsum myndum eftir klerka­byltinguna 1979. Sú sem er nú að störfum nefnist Gasht-e Ershad og hefur frá 2006 fyrst og fremst sinnt eftirliti sem snýr að því að tryggja að konur klæðist skósíðum klæðnaði og beri slæður.

„Siðgæðis­lögreglan hefur ekkert með dóms­valdið að gera og hefur verið lögð niður í þeirri mynd sem hún var sett á laggirnar,“ sagði Montazer í samtali við fjölmiðla á trúar­ráðstefnu sem hann sótti um helgina.

Eftir að breska ríkis­útvarpið og aðrir erlendir miðlar höfðu eftir dómsmála­ráðherranum að búið væri að leggja siðgæðis­lögregluna niður drógu íranskir ríkis­miðlar úr orðum ráðherrans og sögðu orð hans í raun hafa verið mistúlkuð.

Hossein Amir-Abdollahian, utan­ríkis­ráðherra Írans, er staddur í Serbíu og var spurður út í ummæli Montazeri. Hann hvorki staðfesti né véfengdi orð dómsmála­ráðherra. „Í Íran miðar öllu vel áfram hvað varðar lýðræði og frelsi,“ sagði utan­ríkis­ráðherrann.

Mótmælunum hvergi nærri lokið

Ef full­yrðingin reynist rétt og siðgæðis­lögreglan verður í raun og veru lögð niður er það viðurkenning á ákveðnum kröfum mótmælenda.

Antony Blinken, utan­ríkis­ráðherra Banda­ríkjanna, segir afnám siðgæðis­lögreglunnar geta verið jákvætt skref. Hann lofsamar „gríðarlegt hugrekki ungs fólks í Íran, sérstak­lega kvenna, sem hafa leitt mótmælin“. „Ef stjórn­völd eru að bregðast við af einhverju tagi, þá gæti það verið mjög jákvætt,“ segir Blinken.

En mótmælunum er hvergi nærri lokið.

„Þó svo að stjórn­völd viðurkenni að slæðan er persónulegt val hvers og eins er það ekki nóg. Fólk veit að Íran á enga framtíð með þessa ríkis­stjórn. Við munum sjá fleira fólk frá mismun­andi hópum íransks samfélags sameinast með konum um að fá réttindi þeirra til baka,“ segir mótmælandi í samtali við BBC.

„Okkur, mótmælendunum, er sama um slæðuna. Við höfum farið út án hennar síðustu 70 daga,“ segir annar mótmælandi. „Bylting er okkar vopn. Slæðan var upphaf hennar og við viljum ekkert nema dauða einræðis­herrans og nýja stjórn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár