Vögguvísa úr barnæsku sannfærði Lenyu um að vera um kyrrt í Kúrdistan

Baráttu­söngur mótmælenda í Íran er kúrdísk vögguvísa sem móðir Lenyu söng fyrir hana sem barn. Það er meðal ástæðna þess að hún ákvað að vera um kyrrt í Kúrdistan og leggja byltingunni lið sem þar er hafin eftir dauða Jina Amini.

Lenya Rún Taha Karim, varaþingmaður Pírata, var stödd í Kúrdistan þegar Jina Amini, kúrdísk 22 ára kona, lést í haldi lögreglu. Hún ákvað að vera um kyrrt og leggja byltingunni sem þar er hafin lið.
Lenya Rún Taha Karim, vara­þing­maður Pírata, var stödd í Kúr­distan þegar Jina Amini, kúrdísk 22 ára kona, lést í haldi lög­reglu. Hún ákvað að vera um kyrrt og leggja bylt­ing­unni sem þar er hafin lið. Mynd: Bára Huld Beck

Andrúms­loftið í Kúrdistan er spennu­þrungið. „Fólk sýnir mikla samstöðu, bæði í orði og verki, og það hefur verið mótmælt í mörgum héruðum Kúrdistans. Þetta snertir alla Kúrda, Jina Amini var Kúrdi og mótmælin hófust meðal Kúrda í Íran. Allir Kúrdar vilja því leggja barátt­unni lið, þrátt fyrir að við séum hinum megin við landa­mærin,“ segir Lenya Rún Taha Karim, vara­þingmaður Pírata, í samtali við Kjarnann.

Lenya er stödd í Kúrdistan þar sem hún hefur verið í heimsókn hjá fjöl­skyldu og vinum um tíma. Hún stefndi að því að koma til Íslands í síðustu viku en ákvað að dvelja lengur til að fylgja eftir viðbrögðunum vegna andláts Amini, 22 ára konu sem lést í haldi írönsku siðgæðis­lögreglunnar fyrir tíu dögum, þremur dögum eftir að hún var handtekin fyrir meint brot á reglum um að bera slæðu.

„Jina Amini var Kúrdi,“ segir Lenya. Því það var hennar rétta nafn. Mahsa Amini var nafnið í vega­bréfinu þar sem hennar rétta nafn, Jina, gaf til kynna kúrdískan uppruna hennar sem brýtur gegn írönskum lögum. „Að þurrka út kúrdísk einkenni af manneskju sem kom af stað þjóðar­byltingu er viðrngarlaust og skaðlegt,“ segir Lenya í færslu á Twitter.

Mót­mælin hófust í Kúr­distan, heima­hér­aði Amini, þar sem konur tóku sig saman og brenndu slæður sín­ar. Mót­mælin breidd­ust fljótt út og nú er mót­mælt í að minnsta kosti 80 borgum í 31 hér­aði í Íran. Samstöðu­mótmæli hafa auk þess verið í fjölda borga, til að mynda Boston, París og Reykjavík. Mót­mæl­endur eru á öllum aldri, konur jafnt sem karl­ar, en það sem er ef til vill nýtt við mót­mælin nú er að þau eru leidd af konum af öllum kyn­slóðum og hafa stjórn­mála­skýrendur full­yrt að um fem­iníska bylt­ingu sé að ræða, bylt­ingu þar sem krafan snýst um frelsi til að velja.

Alþjóðasamfélagið oft ragt við að taka undir kvenréttindabaráttu í Mið-Austurlöndum

Lenya hefur vakið athygli á ýmsu sem tengist mótmælunum og því sem er að eiga sér stað í Íran á Twitter, til að mynda að um feminíska byltingu, eða öllu heldur stríð, sé að ræða. En Lenya spyr:. „Hvar eru allir femínistarnir? Hvar er alþjóð­lega samfélagið? Hvar er stjórnmála­fólkið?“

Spurð nánar út í hvað hún eigi við með þessum spurningum segir Lenya alþjóða­samfélagið vera oft ragt við að taka undir kven­réttinda­baráttu í Mið-Austur­löndum af ótta við að vera stimplað fordóma­fullt eða íslamófóbískt.

„Það þarf auðvitað að passa að þetta fari ekki út í hatur og alhæfingar en þessi bylting snýst um réttinn og frelsið til að velja. Að konur fái sjálfar að ákveða hvort þær beri hijab eða ekki. Alþjóða­samfélagið og feminístar ættu óhrædd að geta tekið undir þá kröfu,“ segir hún.

„Fallega sorglegt“

Lenya var búsett í Kúrdistan frá 2013 til 2016 og var þar í heimsókn þegar fregnir af dauðsfalli Jina bárust. Hún átti bókað flug til Íslands síðasta miðvikudag en ákvað að vera um kyrrt. Hún þurfti að hugsa sig vel um en ákveðið atvik varð til þess að ákvörðunin var í raun og veru einföld. „Það sem endanlega sannfærði mig um að fresta heim­ferðinni var þegar ég sá myndband af Kúrdum í Íran að mótmæla með því að syngja vögguvísu sem mamma söng fyrir mig þegar ég var yngri. Vöggu­vísan var sungin og skrifuð eftir að efna­vopnsárásin á heima­bæinn hennar mömmu átti sér stað árið 1988 og drap 6000 manns,“ segir Lenya.

Hún segir það „fallega sorglegt“ að baráttu­söngurinn nú sé sá sami og var sunginn fyrir nærri 25 árum í öðrum hluta í Kúrdistan. Sami baráttu­söngur og fjöl­skylda hennar söng eftir að hún lifði af.

Forræðishyggja yfir klæðnaði og líkömum kvenna

Mótmælin hafa farið stig­magnandi. Íranskir Kúrdar áttu upptökin að mótmælunum og í dag er tíundi dagurinn í röð sem mótmælendur þyrpast út á götur fjölmargra borga í Íran. Konur hafa brennt slæður sínar og klippt hár sitt til að undir­strika mann­réttinda­brotin sem konur í Íran búa við. En rætur mótmælanna eru dýpri.

„Ég met stöðuna þannig að íbúar í Íran séu hreinlega komin með nóg af núverandi ríkis­stjórn þeirra. Forræðis­hyggjan yfir klæðnaði og líkömum kvenna er auðvitað stærsti hlutinn af þessu en sagan hefur sýnt að laga­setning byggð á trúar­brögðum skili ekki árangri, þvert á móti, þá hefur það leitt til jaðar­setningar, átaka og byltingar að lokum. Þetta birtist okkur núna í öfga­fullum viðbrögðum yfirvalda við því að það hafi sést í hár konu og hinnar skiljanlegu reiði í fram­haldinu,“ segir Lenya.

Vonar að mótmælin leiði til farsælla breytinga fyrir íbúa Írans

Erfitt er að segja til um hvernig fram­haldið verður að sögn Lenyu en að óhjákvæmilegt sé að bera mótmælin nú saman við mótmæli sem urðu árið 2019 þegar stjórn­völdum var mótmælt, þá fyrir slæmt efnahags­ástand og hækkandi olíuverð.

„Þá var einnig gripið til þess að rjúfa netsamband íbúa Írans og loka fyrir aðgang að nokkrum samskipta­forritum en talið er að tæplega 1500 manns hafi dáið í þeim mótmælum. Það væri óskandi að þessi mótmæli þróist ekki með jafn hörmulegum hætti en það er ekki að sjá á þessari stundu að þau séu renna út í sandinn.“

Lenya vonast til þess að fjöl­miðlar haldi áfram að sýna mótmælunum áhuga og athygli. „Vonandi helst kastljós fjöl­miðlanna á þessum atburðum, alþjóða­samfélagið gleymi ekki fólkinu sem berst nú fyrir réttindum sínum og að mótmælin leiði til farsælla breytinga fyrir íbúa Írans.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár