Dauði saklausrar konu kornið sem fyllti mælinn

Að sjá sak­lausa konu drepna að ástæðu­lausu var kornið sem fyllti mæl­inn hjá írönsku þjóð­inni að mati Írana sem kom til Íslands sem flótta­maður fyrir nokkrum árum. Hræðsla stöðvar ekki þátt­töku í mót­mælum þar sem krafan snýst um frelsi til að velja.

Mahsa Amini var 22 ára gömul Kúrdi sem lést í haldi siðgæðislögreglu í Íran í síðustu viku. Andlát hennar hefur leitt til feminískrar byltingar þar sem krafan snýst um frelsi til að velja.
Mahsa Amini var 22 ára gömul Kúrdi sem lést í haldi sið­gæð­is­lög­reglu í Íran í síð­ustu viku. Andlát hennar hefur leitt til fem­inískrar bylt­ingar þar sem krafan snýst um frelsi til að velja. Mynd: EPA

„Að sjá sak­lausa konu vera drepna að ástæðu­lausu, það var kornið sem fyllti mæl­inn. Þetta gat komið fyrir hverja sem er, þetta gæti verið dóttir hvers sem er, systir hvers sem er, eig­in­kona hvers sem er. Allir eru reiðir.“

Þannig hljóða orð íransks manns um ástandið í heima­land­inu þar sem allt leikur á reiði­skjálfi eftir að Mahsa Amini, 22 ára kona frá Kúr­distan, lést í haldi sið­gæð­is­lög­regl­unnar í Íran. Maðurinn, sem er á þrí­tugs­aldri, er búsettur hér á landi og kom til Íslands fyrir nokkrum árum sem flótta­maður. Hann ræddi við Kjarnann um mót­mælin í Íran, ástæðu þeirra og vonir hans um hverju mót­mælin muni skila. Hann kýs að koma ekki fram undir nafni þar sem hann vill vernda fjöl­skyldu sína sem búsett er í Íran.

Umdeild siðgæðislögregla

Mahsa Amini var á ferða­lagi í Teheran, höf­uð­borg Íran, í síð­ustu viku þegar íranska sið­gæð­is­lög­reglan hand­tók hana fyrir meint brot á reglum um að bera slæðu. Mat sið­gæð­is­lög­reglan það svo að slæðan huldi ekki nægi­lega mikið af höfði hennar þar sem hár hennar var sýni­legt. Þá hafi klæðn­aður hennar einnig verið „óvið­eig­andi“. Skikka átti Amini á nám­skeið um klæða­burð en skömmu eftir hand­töku hennar féll hún í dá. Hún lést á sjúkra­húsi þremur dögum síðar. Fjöl­skylda hennar og vitni segja að hún hafi verið barin til dauða. Yfirvöld full­yrða hins vegar að hún hafi fengið hjarta­á­fall.

Sið­gæð­is­lög­reglan hefur það hlut­verk að tryggja að íslömsk gildi séu í hávegum höfð og sjá um að refsa þeim sem virða það ekki, til að mynda þeim klæð­ast óvið­eig­andi. Meðal ákvæða sem finna má í írönskum lögum, sem byggja á túlkun stjórn­valda á sjaría, laga­kerfi íslam, eru að konum ber að bera slæðu (hijab) og klæð­ast skó­síðum, víðum fötum til að fela lík­ams­vöxt sinn.

Faðir Amini hefur gagn­rýnt yfir­völd harð­lega, meðal ann­ars fyrir að tak­marka aðgang fjöl­skyld­unnar að líki Amini. Í sam­tali við frétta­rit­ara BBC í Íran segir hann að honum hafi verið mein­aður aðgangur að krufn­ing­ar­skýrslu dóttur sinnar og að hluti lík­ama hennar hafði verið hul­inn þegar fjöl­skyldan fékk loks­ins að sjá hana. Stór hluti lík­ama hennar hafi verið hul­inn og fékk fjöl­skyldan aðeins að sjá and­lit hennar og fætur, þar sem greina mátti mar­bletti.

Faðir Amini óskaði einnig eftir öllum gögnum frá lög­reglu vegna hand­tök­unnar en var þá tjáð af yfir­völdum að ekki væri hægt að skoða mynda­vélar sem lög­reglu­menn sið­gæð­is­lög­regl­unnar bera þar sem þær væru raf­hlöðu­lausar.

Feminísk bylting þar sem krafan snýst um frelsi til að velja

Mótmælin hófust í Kúr­distan, heima­hér­aði Amini, þar sem konur tóku sig saman og brenndu slæður sínar. Mótmælin breidd­ust fljótt út og nú er mót­mælt í að minnsta kosti 80 borgum í 31 hér­aði í Íran, auk fjölda ann­arra landa þar sem mót­mælt hefur verið fyrir utan sendi­ráð Írans. Mót­mæl­endur eru á öllum aldri, konur jafnt sem karlar, en það sem er ef til vill nýtt við mót­mælin nú er að þau eru leidd af komum af öllum kyn­slóðum og hafa stjórn­mála­skýrendur full­yrt að um fem­iníska bylt­ingu sé að ræða, bylt­ingu þar sem krafan snýst um frelsi til að velja.

Samkvæmt opin­berum tölum frá yfir­völdum hafa 35 látið lífið síð­ustu daga í mót­mæl­unum, sem eru þær mestu í áraraðir. Mann­rétt­inda­sam­tök, til að mynda Hengaw, sem berj­ast fyrir rétt­indum Kúrda, telja að tala lát­inna sé mun hærri. Mótmælt hefur verið dag­lega í meira en viku og hefur her­inn boðað frek­ari hörku gegn mót­mæl­endum, sem kall­aðir eru óvinir rík­is­ins í yfir­lýs­ingu hers­ins.

Mótmælin hafa farið stig­magn­andi og ekki er útlit fyrir að hægist um á næst­unni. Mót­mæl­endur hafa sjálfir sagt að ef þau bregð­ist ekki við núna geti sömu örlög mætt þeim og Amini.

Hræðslan kemur ekki í veg fyrir þátttöku í mótmælunum

Ströng lög um klæðnað hafa verið í gildi frá bylt­ing­unni árið 1971 en áhersl­urnar hafa verið mis­mun­andi eftir hvaða for­seti er við völd hverju sinni. Sitjandi for­seti, Ebrahim Raisi, verður að telj­ast mjög íhalds­samur.

Við­mæl­andi Kjarnans segir fólk hrætt en það stöðvi það ekki í að taka þátt í mót­mæl­unum. „Það er svo þreytt á ástand­inu. Unga kyn­slóðin vill hafa frelsi til að klæð­ast eins og þau vilja en það er ein­ræð­is­stjórn í Íran svo auð­vitað reynir hún að bæla niður mót­mælin. Þau vilja ekki gefa fólk­inu rödd.“

Hann segir mót­mælin snú­ast um meira en að bera slæðu. „Þetta eru ekki fyrstu mót­mælin en með hverjum mót­mæl­unum eykst stuðn­ing­ur­inn við þau. En fólk verður ekki sátt fyrr en breyt­ingum verður náð. Fólk þráir frelsi til að velja.“

Hann á vini í mis­mun­andi borgum í Íran og hefur átt í sam­skiptum við nokkra þeirra. „Þau eru auð­vitað mjög hrædd, sama hvort þau eru inn­an­dyra eða utandyra. Þau passa sig í öllum sam­skiptum í lög­reglu, hvort sem það er örygg­is­sveitin eða sið­gæð­is­lög­reglan, þau vita aldrei hverju þau mega eiga von á.“

Instagram var um tíma eini sam­fé­lags­mið­ill­inn sem var aðgengi­legur, áður en lokað var fyrir allan aðgang að inter­net­inu, líkt og gert var á mið­viku­dag. „Instagram var eina leiðin til að eiga í sam­skiptum við umheim­inn en svo þurfti að fara króka­leiðir til þess,“ segir hann. For­eldrar hans eru búsettir í Íran en hann hefur ekki náð sam­bandi við þau síð­ustu daga.

„Hann ber ábyrgð á dauða þeirra“

Alls­herj­ar­þing Sam­ein­uðu þjóð­anna kom saman í vik­unni. Raisi, for­seti Írans, sótti þingið og tjáði við­stöddum að mál­frelsi ríkti í land­inu. Við­mæl­andi Kjarnans gagn­rýnir sýni­leika for­set­ans á alþjóða­svið­inu og að honum hafi verið heim­ilt að vera við­staddur alls­herj­ar­þing Sam­ein­uðu þjóð­anna. „Hann ber ábyrgð á dauða þeirra sem hafa látið lífið í mót­mæl­unum. Þetta er eins og að bjóða leið­toga talí­bana eða íslamska rík­is­ins í Sam­ein­uðu þjóð­irnar.“

Hann segir það sér­staka stöðu að fylgj­ast með þró­un­inni í Íran á Íslandi en það hafi fengið hann til að hugsa um mun­inn á aðstæðum fólks hér á landi og í Íran, sem hann segir átak­an­legan. „Hér geta konur gert það sem þær vilja og verið þær sem þær vilja vera. Í Íran er það ekki þannig. Konur í Íran völdu ekki að fæð­ast þar en þær hafa ekki grund­vall­ar­mann­rétt­indi. Þær þurfa að berj­ast fyrir til­vist sinni og lífs­við­ur­væri.“

Hann hvetur alla sem geta til að vera rödd fólks­ins í Íran. „Það er auð­veld­ara að ræða málin en grípa til beinna aðgerða, en ein­hvers staðar verðum við að byrja.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár