Kona, líf, frelsi

Mann­réttinda­samtök segja að minnsta kosti 83 látna í mótmælum í Íran. Yfirvöld segja töluna mun lægri, 41 í mesta lagi. Þingmaður Pírata hvetur fólk til að segja nafn konunnar sem kom mómæltunum af stað: Jina Amini.

Jina Amini, 22 ára Kúrdi, lést í haldi írönsku siðgæðislögreglunnar í síðasta mánuði. Mótmæli hafa staðið yfir í Íran, og víðar, frá því að hún lést.
Jina Amini, 22 ára Kúrdi, lést í haldi írönsku sið­gæð­is­lög­regl­unnar í síð­asta mán­uði. Mótmæli hafa staðið yfir í Íran, og víðar, frá því að hún lést. Mynd: EPA

83. 52. 41.

Fimmtánda daginn í röð er mótmæli í Íran. Tala látinna er á reiki. Mann­réttinda­samtök um stöðuna í Íran (IHR), sem hafa aðsetur í Noregi, segja 83 hafa látið lífið í mótmælum í Íran síðustu tvær vikur. Alþjóð­legu mann­réttinda­samtökin Amnesty International eru með nöfn 52 karla, kvenna og barna sem öryggis­sveitir íranska ríkisins hafa drepið. Yfirvöld segja 41 hafa látið lífið í átökunum, liðsmenn öryggis­veita þar á meðal.

Rúmar tvær vikur eru síðan Mahsa Amini, 22 ára kona frá Kúr­distan, lést í haldi sið­gæð­is­lög­regl­unnar í Íran. Amini var á ferða­lagi í Teher­an, höf­uð­borg Íran, um miðjan september þegar íranska sið­gæð­is­lög­reglan hand­tók hana fyrir meint brot á reglum um að bera slæðu. Mat sið­gæð­is­lög­reglan það svo að slæðan huldi ekki nægi­lega mikið af höfði hennar þar sem hár hennar var sýni­legt. Þá hafi klæðn­aður hennar einnig verið „óvið­eig­and­i“.

Skikka átti Amini á nám­skeið um klæða­burð en skömmu eftir hand­töku hennar féll hún í dá. Hún lést á sjúkra­húsi þremur dögum síð­ar. Fjöl­skylda hennar og vitni segja að hún hafi verið barin til dauða. Yfir­völd full­yrða hins vegar að hún hafi fengið hjarta­á­fall.

Tugir drepnir af yfirvölum í nafni öryggis

Kona. Líf. Frelsi.

Á þessum orðum hóf Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, ræðu sína undir liðnum störf þingsins á Alþingi á fimmtudag.

„Þrjú orð þrungin djúpri og sársauka­fullri merkingu. Þessi þrjú orð kjarna mótmælin í Íran á mjög einfaldan hátt þar sem tugir hafa verið drepnir af yfir­völdum í nafni öryggis. Í nafni öryggis þarf að drepa konur sem klæðast ekki réttu fötunum. Að vera kona sem getur ekki valið hvernig hún klæðist, að vera kona sem ræður ekki lífi sínu, að vera kona sem má ekki ræða opinber­lega um jafnrétti, að vera kona sem má ekki ferðast erlendis án þess að fá leyfi frá eigin­manni sínum, að vera kona sem má ekki heita nafninu sínu er ógn við öryggi yfirvalda. Kona, líf, frelsi,“ sagði Björn Leví.

Masha Amini hét réttu nafni Jina Amini. Mahsa Amini var nafnið í vega­bréf­inu þar sem hennar rétta nafn, Jina, gaf til kynna kúrdískan upp­runa hennar sem brýtur gegn írönskum lög­um.

„Nú berst fólk í Íran fyrir frelsi sínu, frelsi til að tala, klæða sig og lifa sjálf­stæðu lífi, frelsi sem yfirvöld í Íran svipta fólk með ofbeldi sem er réttlætt með trúboði, að í krafti einhvers almættisins megi valdhafar drepa konur. Baráttan fyrir sjálf­stæðu lífi er aldrei langt í burtu,“ sagði Björn Leví, sem hvatti þingheim til að taka þátt með því að segja nafn hennar.

„Jina Amini. Við getum tekið þátt í því með því að segja orðin: Kona, líf, frelsi,“ sagði þing­maðurinn.

Samstöðumótmæli víða um heim – líka á Íslandi

Mótmælin hófust í Kúrdistan, heima­héraði Amini, en breiddust fljótt út. Dagleg mótmæli hafa staðið yfir í tugum borga í Íran í 15 daga og samstöðu­mótmæli hafa verið í borgum víða um heim. Boðað hefur verið til samstöðu­mótmæla á Austur­velli í kvöld klukkan 19.

Mót­­mæl­endur eru á öllum aldri, konur jafnt sem karl­­ar, en það sem er ef til vill nýtt við mót­­mælin nú er að þau eru leidd af konum af öllum kyn­slóðum og hafa stjórn­­­mála­­skýrendur full­yrt að um fem­iníska bylt­ingu sé að ræða, bylt­ingu þar sem krafan snýst um frelsi til að velja.

Ebrahim Raisi, forseti Írans, segir að dauði Amini veki upp sorg hjá öllum en að ríki­stjórn hans „geti ekki leyft fólki að trufla frið samfélagsins með óeirðum“.

Í ávarpi sem hann flutti á miðvikudags­kvöld sakaði hann „óvini“, þar á meðal Banda­ríkin, um að „etja fólki gegn hvort öðru“.

Afrit af skjali, sem lekið var til Amnesty International, sýnir að yfir­stjórn öryggis­sveita í Teheran, höfuðborg Írands, sendu fyrirmæli til öryggis­sveita í öllum héruðum landsins 21. september, þess efnis að taka á mótmælendum af hörku.

„Yfirvöld í Íran hafa tekið meðvitaða ákvörðun um að særa eða drepa fólk sem tjáir reiði sína eftir áratuga kúgun og óréttlæti,“ segir Agnes Callamard, aðal­framkvæmda­stjóri Amnesty International.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár