Sökuð um að fara mjúkum höndum um barnaníðinga og beðin að skilgreina orðið „kona“

Repúblikanar í dómsmála­nefnd öldunga­deildar Banda­ríkjaþings þjörmuðu að Ketanji Brown Jackson í vikunni. Jackson stóðst prófið að mati demókrata og fátt ætti að koma í veg fyrir að hún taki sæti í Hæstarétt Banda­ríkjanna í apríl, fyrst svartra kvenna.

Tilnefning Ketanji Brown Jackson í stöðu hæstaréttar Bandaríkjanna verður að öllum líkindum staðfest í næsta mánuði. Jackson verður fyrsta svarta konan sem tekur sæti í réttinum í 233 ára sögu hans.
Til­nefn­ing Ketanji Brown Jackson í stöðu hæsta­réttar Banda­ríkj­anna verður að öllum lík­indum stað­fest í næsta mán­uði. Jackson verður fyrsta svarta konan sem tekur sæti í rétt­inum í 233 ára sögu hans. Mynd: EPA

Stað­festingar­ferli Ketanji Brown Jackson í embætti hæstaréttar­dómara hélt áfram í vikunni þegar Jackson kom fyrir dómsmála­nefnd öldungar­deildar Banda­ríkjaþings. Vitna­leiðslurnar stóðu yfir í tvo daga.

Joe Biden Bandaríkja­forseti tilnefndi Jackson í lok febrúar og stóð þannig við orð sín úr kosninga­baráttunni fyrir tveimur árum þegar hann lofaði að tilnefna fyrstu svörtu kon­una sem dóm­ara við hæsta­rétt lands­ins.

Sumir nefndar­menn Repúblikana­flokksins virtust í hefndarhug, ekki síst vegna vitna­leiðslna sem Brett M. Kavanaugh undir­gekkst eftir að Donald Trump þáverandi Bandaríkja­forseti tilnefndi hann í embætti hæstaréttar­dómara.

En það er stór munur á Jackson og Kavanaugh. Kavanaugh var sakaður um kynferðis­ofbeldi og Christine Blasey Ford, sem sakaði Kavanaugh um nauðgun, bar vitni fyrir dómsmála­nefnd öldunga­deildar­þingsins í stað­festingar­ferli Kavanaugh. Sjálfur sagði hann stað­festingar­ferli hans í embættið þjóðar­skömm.

Skipun Kavanaugh var að lokum samþykkt með 50 atkvæðum gegn 48 og hefur hæstaréttar­dómari ekki verið samþykktur með minni mun frá árinu 1881.

Vill gera staðfestingarferlið mannlegra

Áskoranir Jackson í vitna­leiðslunum voru af allt öðrum toga. Nefndar­menn Repúblikana­flokksins sögðu hana vera róttæka í félags­málum og fara mjúkum höndum um barna­níðinga.

Dick Durbin, þingmaður Repúblikana­flokksins fyrir Illinois, spurði Jackson út í orð kollega síns frá Missouri sem segir Jackson hafa orð á sér fyrir væga dóma í kynferðis­brotum gegn börnum, til að mynda hvað varðar vörslu barna­kláms. Jackson, sem er tveggja barna móðir, vísaði ásökunum á bug. „Það er ekkert fjarri sann­leikanum en þetta.“

Að vitna­leiðslunum loknum virtust fáir, ef einhverjir, nefndar­menn repúblikana sjá eftir orðum sínum. „Ég held að þetta hafi ekki verið svo gróft,“ sagði Tom Cotton, þingmaður fyrir Arkansas, sem sagði Jackson „vinstri-aðgerða­sinna“ þegar hann tók til máls í vitna­leiðslunum. „Við erum bara að meta dómgreind hennar,“ sagði Cotton.

Sheldon Whitehouse, þingmaður demókrata fyrir Rhode Island, sagði vitna­leiðslurnar hafa sýnt „eitraða, kaldrana­lega hegðun“ sem viðgengst hefur hjá öldungar­deildar­þingmönnum. „Vonum að þetta hafi verið lágpunkturinn og að leiðin liggi nú upp á við,“ sagði Whitehouse.

Richard J. Durbin, öldunga­deildar­þingmaður demókrata í Illinois, stjórnaði vitna­leiðslunum. „Ég held að við ættum að reyna að breyta ferlinu og gera það mannlegra,“ sagði Durbin að þeim loknum.

„Ég er ekki lífffræðingur“

Jackson fékk líka óhefðbundnar og jafnvel furðulegar spurningar við vitna­leiðslunum. Þar má meðal annars nefna beiðni Marsha Blackburn, öldungar­deildar­þingmanns repúblikana fyrir Tennessee, sem bað Jackson um að skilgreina orðið „kona“. Umræða um málefni trans­fólks hefur verið áberandi upp á síðkastið eftir að ríkis­stjórar í Indiana og Utah, sem báðir eru repúblikanar, beittu neitunar­valdi og komu þannig í veg fyrir samþykkt laga­frumvarps sem hefði bannað trans stúlkum að keppa í íþróttum. Ellefu ríkis­stjórar hafa samþykkt sams konar frumvarp.

Blackburn minntist á sund­konuna Lia Thomas, transkonu sem sigraði nýlega á háskóla­móti í sundi, þegar hún bar upp spurninguna fyrir Jackson: „Getur þú útskýrt merkingu orðsins „kona“?“

Svar Jackson var einfalt: „Ég get það ekki.“ Þegar Blackburn furðaði sig á svari Jackson bætti hún við: „Ekki í þessu samhengi. Ég er ekki líffræðingur.“

Blackburn var ósátt með að Jackson gæti ekki svarað spurningu hennar og sagði það „undir­strika þær hættur sem fylgja fram­sækinni menntun sem við heyrum ítrekað meira um“.

„Hún er mögnuð“

Dómsmála­nefnd öldunga­deildarinnar, sem er skipuð 22 nefndar­mönnum, mun greiða atkvæði um tilnefningu Jackson 4. apríl.

Verði tilnefning hennar staðfest þar fer fram atkvæða­greiðsla í öldunga­deildinni. Þar hafa demó­kratar 48 sæti, auk tveggja óháðra þingmanna sem demó­kratar geta reiknað með stuðningi frá, og repúblikanar 50 sæti. Þrátt fyrir harðsvífnar vitna­leiðslur í vikunni má gera ráð fyrir að einhverjir þingmenn Repúblikana­flokksins í öldunga­deildinni greiði með tilnefningu Jackson í embætti hæstaréttar­dómara. Verði atkvæðin jöfn kemur það í hlut Kamala Harris vara­forseta að eiga úrslita­atkvæðið.

Stuðningur Harris við Jackson fer ekki á milli mála. Í færslu á Twitter sem hún birti í vikunni segir hún Jackson hafa sannað hæfi sitt fyrir dómsmála­nefnd öldunga­deildar­þingsins. „Hún er mögnuð og hefur sýnt einstakt skaplyndi í gegnum alla vitna­leiðsluna. Þegar tilnefning hennar verður staðfest verður hún fram­úrskarandi hæstaréttar­dómari,“ segir Harris í færslu sinni.

Verði til­nefn­ing Jackson sam­þykkt mun hún taka sæti Stephen Breyer, sem mun setjast í helgan stein í júní. Líkt og hann er hún frjáls­lynd í túlkun sinni á stjórn­ar­skrá Banda­ríkj­anna og sinnti hún raunar starfi aðstoð­ar­manns hans við hæsta­rétt á tíma­bil­inu 1999-2000. Íhalds­samir dómarar verða því enn í meirihluta í hæstarétti, sex talsins, en þrír frjáls­lyndir.

Ef allt gengur samkvæmt áætlun ætti stað­festingar­ferlinu að ljúka í kringum páska og allt bendir til þess að Ketanji Brown Jackson taki við af Breyer í júní. Í 233 ára sögu Hæstaréttar Banda­ríkjanna verður Jackson því fyrsta svarta konan sem tekur sæti í réttinum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár