Fyrsta svarta konan tilnefnd til hæstaréttar Bandaríkjanna

Joe Biden Banda­ríkja­for­seti hefur til­nefnt Ketanji Brown Jackson sem dóm­ara við hæsta­rétt Banda­ríkj­anna. Verði til­nefn­ing for­set­ans sam­þykkt verður hún fyrsta svarta konan til þess að taka sæti í rétt­inum.

Verði tilnefning Jackson samþykkt mun hún taka sæti Stephen G. Breyer hæstaréttardómara.
Verði til­nefn­ing Jackson sam­þykkt mun hún taka sæti Stephen G. Breyer hæsta­rétt­ar­dóm­ara. Mynd: Wikicago

Á kosn­inga­fundi í Suður-Kar­ólínu­ríki fyrir tveimur árum lof­aði Joe Biden, þáver­andi for­seta­efni Demókra­ta­flokks­ins í Banda­ríkj­unum, því að hann myndi til­nefna fyrstu svörtu kon­una sem dóm­ara við hæsta­rétt lands­ins. Nú hefur for­set­inn staðið við lof­orð sitt í kjöl­far þess að hæsta­rétt­ar­dóm­ar­inn Stephen G. Breyer til­kynnti í síð­asta mán­uði áætlun sína um að setj­ast í helgan stein.

Við til­kynn­ingu til­nefn­ingar Jackson, þar sem einnig var við­stödd Kamala Harris, fyrsta svarta konan til að gegna emb­ætti vara­for­seta Banda­ríkj­anna, sagði Biden að of lengi hafi rík­is­stjórnir og dóm­stólar Banda­ríkj­anna ekki end­ur­speglað banda­rísku þjóð­ina.

Verði til­nefn­ing Jackson sam­þykkt mun hún taka sæti Breyer, en líkt og hann er hún frjáls­lynd í túlkun sinni á stjórn­ar­skrá Banda­ríkj­anna og sinnti hún raunar starfi aðstoð­ar­manns hans við hæsta­rétt á tíma­bil­inu 1999-2000.

Jackson var fyrst skipuð dóm­ari við al­rík­is­dóm­stól árið 2013, og hlaut svo stuðn­ing þriggja öld­unga­deild­ar­þing­manna repúblík­ana þegar hún var skipuð dóm­ari við áfrýj­un­ar­dóm­stól Washingt­on um­dæm­is á síð­asta ári. Óvíst er hvort þeir muni allir styðja hana við kosn­ingu öld­unga­deild­ar­þings­ins, sem er jafnt skipað þing­mönnum repúblík­ana og demókrata, um skipan hennar í hæsta­rétt sem fram fer í apríl. Repúblikanar geta þó ekki komið í veg fyrir skip­un­ina ef allir 50 öld­unga­deild­ar­þing­menn demókrata sam­þykkja hana, en þá ætti Kamala Harris vara­for­seti úrslita­at­kvæðið.

[adspot]

Jackson stund­aði nám við laga­deild Harvard-háskóla, en það er meðal þess sem nokkrir þing­menn repúblík­ana hafa gagn­rýnt eftir að til­kynnt var um til­nefn­ingu hennar. Segja þeir nóg komið af skipun hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem nemið hafa við svo­kall­aða „Ivy League“-háskóla. Hljóti Jackson skipun verður hún ein af fjórum dóm­urum við hæsta­rétt sem nam við Harvard, en þar af voru tveir skip­aðir af for­setum úr röðum repúblík­ana.

Jackson fædd­ist í Washington D.C. en ólst upp í Miami í Flórída. For­eldrar Jackson eru báðir kenn­arar við almenn­ings­skóla og bróðir hennar hefur starfað fyrir lög­regl­una í Baltimore. Þá var frændi hennar lög­reglu­stjóri í Miami. Annar frændi hennar, Thomas Brown, var hins vegar dæmdur í lífs­tíð­ar­fang­elsi fyrir vörslu mik­ils magns af kóka­íni og ásetn­ing um að selja það til gróða í októ­ber 1989. Hann var lát­inn laus í nóv­em­ber 2017 þegar þáver­andi for­seti, Barack Obama, mild­aði refs­ingu hans og fjölda ann­arra sem höfðu verið dæmdir undir svoköll­uðum þriggja brota lögum sem urðu til þess að fjöld­inn allur af frið­sam­legum (e. non-violent) glæpa­mönnum voru dæmdir í lífs­tíð­ar­fang­elsi. Brown lést fjórum mán­uðum eftir að hann var lát­inn laus.

Samkvæmt umfjöllun New York Times þykir Jackson hafa ein­staka sýn á stjórn­ar­skrána og sér­stakan hæfi­leika til að setja sig í ann­arra spor, ekki síst eftir að hafa starfað sem skip­aður verj­andi (e. public def­ender), sem er óvenju­legt fyrir hæsta­rétt­ar­dóm­ara.

„Ef ég verð svo heppin að vera stað­fest sem næsti dóm­ari við hæsta­rétt Banda­ríkj­anna get ég aðeins vonað að líf mitt og starfs­fer­ill, ást mín á föð­ur­land­inu og stjórn­ar­skrá þess og skuld­bind­ing mín til þess að við­halda lögum og reglu og þeim helgu gildum sem land þetta var byggt, muni verða kom­andi kyn­slóðum inn­blástur,” sagði Jackson við til­nefn­ing­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár